Vísir - 16.02.1965, Side 16
■ mm
IWí
rf'-J : ■■■■■
- i <4
úr flugvélinni í sjúkrabíl á Akur-
''•■>_. >■
V '?V; |SIK
Þriðjudagur 16. fébrúar 1965 t \
Kanada með
nýjan fdna
Einni minútu fyrir kl. 12 á
hádegi f gær var hinn gamli
fáni Kanada dreginn niður á að-
alræðismannsskrifstofu Kanada
f Reykjavfk og einni mínútu síð-
ar var hinn nýi fáni Kanada
dreginn þar að hún. Nokkrir
gestir voru viðstaddir þessa at-
höfn, er var ein af mörgum,
sem fóru frani á sama tima hjá
öQum fufitrúum Kanada erlend-
is.
Haligrimur Fr. Hallgrfmsson
aðalræðismaður skýrði við þetta
tækifæri blaðamönnum frá
fánaskiptunum og aðdraganda
þeirra. Gamli samveldisfáninn
hefur þjónað í 252 ár. Þegar á-
kveðið hafði verið að skipta um
fána, bárust þúsundir tillagna,
og ákvað sérstök þingnefnd, að
fánS sá skyldi valinn, sem nú
hefur verið tekinn í notkun.
Grunnur fánans er hvítur.
Rauðir fletir eru til endanna og
í miðjum fána er rautt laufblað,
lauf hlynsins, e» það hefur
Iöngum verið táknrænt fyrir
Framh. á bls 6
r* tf. *r /tf .f f y .
mmmmmm
Tryggvi Helgason
eyrarflngvelli. (Ljósm. SB).
Flugvélar Tryggva fá ekki flugleyfí
vegna þess að flugskýli vantar
I undirbúningi oð reisa gott flugskýli á Akureyri — Samtal við Tryggva Helgason
Fréttaritari Vfsis á Akureyri
hefur náð tali af Tryggva Helga
syni flugmanni, forstjóra Norð-
rvae
urflugs og spurt hann um rekst
ur smáflugvéla.
— Hefur þú fiogið mikið
í vetur?
— í kringum og eftir ára-
mótin var veður til flugs mjög
óhagstætt og dögum saman
ekki hægt að fara á loft. En nú
í seinni tíð hefur veðráttan ver
ið hagstæðari og mikið að gera.
Þó að mikið snjóaði um áramót
in var Akuréyrarflugvelli hald
ið opnum, að heita má alla þá
daga sem hægt var að fljúga.
Sömu sögu er að segja af stærri
völhmum, sem ég flýg helzt á
eins og Egilsstaði, Húsavík og
Vopnafjörð. Minni vellirnir eru
hins vegar aldrei ruddir, en
margir þeirra eru svo vel stað
settir, að snjó setur ekki á þá.
— Hver er nú flugvélakostur
Norðurflugs?
Tvær tveggja hreyfla (Beech
craft) vélar, sem taka 8 far-
þega hvor, ein tveggja hreyfla
Piper Apache (sjúkravélin) fyrir
4 farþega og svo tvær eins
hreyfils vélar, sem nær ein
göngu eru notaðar til kennslu.
— Hvers konar flug stundar
þú aðallega?
— Mikið af því er leiguflug
með fólk og flutning, einnig hef
ur verið óvenjumikið um sjúkra
Framh. á bls. 6
7 TÍMA Á DANSGÓLFI í
NORÐURLANDAKEPPNI
Islenzku danspörin stóðu sig með ágætum / keppninni i Kaupmannahófn
Hallgr. Fr. Hallgrímsson (til vinstri) og Brian Holt, er nýi fáninn
var dreginn að hún.
Hið unga dansfólk úr dans-
skóla Hermanns Ragnars stóð
sig ágætlega f Norðurlanda-
mótinu f Kaupmannahöfn um
helgina. Þan voru 6 sinnum
kölluð út á gólfið í keppninni,
en voru ekki tekin út fyrr
eftir 7 klukkutima og komust
því mög langt í keppninni.
Vi'ð verðlaunaafhendinguna
voru þau sérstaklega kölluð
fram og fengu afhenta minja-
gripi frá Terpsichore sem er sam
band danskennara og var þakk
að sérstaklega fyrir að koma
alla þessa löngn leið til keppni.
Hermann Ragnars sagði að
ungu danspörin hefðu verið
til mesta sóma. Þau hefðu
ekki gert neinar villur allan tím
ann og hefðu komið sérlega
skemmtílega fram. Það sem að
allega vantaði væri meiri
sveigja í líkamann, en það fæst
ekki fyrr en enn meiri rækt er
lögð við dansinn sem keppnis-
grein, en til þessa hefur þa'ð
vart verið hægt hér á landi.
Dansaðir voru dansamir ensk
'ur vals og quickstep á Norður-
Framh. á bls. 6
ByrjaSir á þorskanót
Önnur loðnugnngu?
Vestmannaeyjum í morgun.
Talsverður afli hefur borizt
á land í Vestmannaeyjum um
og eftir helgina, fyrstu dagana
eftir óveðurskaflann. Góður aíli
er af loðnu og línubátar beita
henni á linuna. Þrír bátar hafa
tekið upp þorskanót, en með
litlum árangri. Aðkomubátarnir,
sem fylltu hér höfnina íyrir
nokkrum dögum, eru allir farn-
ir. Flestir em komnir til sinna
heimahafna og eru að skipta um
veiðarfæri, taka upp þorskanót
í stað síldarnótarinnar, og er því
síldarvertíð endanlega lokið í
þetta sinn.
Loðnan er nú komin á miðin
kringum Vestmannaeyjar og
eiga loðnubátarnir ekki nerna
hálftíma siglingu á miðin. Þrir
bátar stunda loðnuveiðamar og
landa þeir yfirleitt daglega, Kóp
ur tvisvar á sunnudaginn. Frétzt
hefur af því, að önnur loðnu-
ganga sé á leið vestur með Suð-
urlandi og reikna sjómenn með,
að þar sé betri loðna til beitu.
Fyrri gangan var nærri ein-
göngu hrygna, sem er léleg til
beitu, en reiknað er með, að
Framh. á bls 6
Skógarfossi gefið nafn
Mynd þessi var tekin, þegar hinu nýja skipi Eimskipafélags-
ins, Skógafossi, var hleypt af stokkunum í Álaborg á laugar-
daginn. - Á henni sjást talið frá vinstri: Óttarr Möller
forstjóri, frú Kristín Ingvarsdóttir, frú Amþrúður Möll-
er, sem skírði skipið, og S. M. Krag, forstjóri skipasmíða-
stöðvarinnar.