Vísir - 01.06.1965, Side 2

Vísir - 01.06.1965, Side 2
Vinsældarlistin — jbr/or hljómplötur úr Fálkanum í verölaun SíÐAN plötu (fjögurra laga) að eigin vali frá Hljómplötuverzluninni Fálkanum, en þar eru venjulega á boðstölum allar nýjustu dæg- urlaga- og bltlaplötur, svo eng- ínn þarf að kvíða úrvalinu. Vinsældarlistinn, sem hér birt ist, er gerður samkvæmt skoð- anakönnun Vísis, en framvegis verður birtur seðill, þar sem les- endur eru beðnir að skrifa þau þrjú lög, er þeir hafa mest dá- læti á. Einkum er þó átt við dægurlög. Síðan er vinsældar- listinn gerður samkvæmt niður- stöðum tillagnanna, en hverju sinni verða dregnar þrjár tillög- ur úr þeim sem borizt hafa, og hljóta sendendur þeirra hver um sig að verðlaunum eina EP 1 dag lftur vinsældarlisti Vísis þannig út (tölumar innan sviga merkja númer lagsins við siðustu könnun): 1) (2) Yes, it is ................................ Beatles 2) (4) Ticket to Ride ............................ Beatles 3) (5) The Last Time....................... Rolling Stones 4) (3) Fyrsti kossinn ............................ Hljómar 5 True Love Ways.................. 6) 1) I know why................... 7) Can't you hear my Heartbeat .. 8) (6) Bláu augun þín ............ 9) Mrs. Brown, you’ve got a lovely Daughter ................... 10) (9) Good Bye, my Love.......... Peter & Gordon Peter & Gordon Hermans Hermits ...... Hljómar Hermans Hermits ... The Searchers Eins og sjá má eru Bítlarnir I efstu sætunum, en á brezka sölulistanum s.l. laugardag var platan þeirra komin niður I 9. sæti. Þar áttu Hermans Hermits plötuna „Wonderful World“ I 10. sæti. Á fslenzka listanum eiga þeir þrjú lög — enda virð- ast þeir félagar njóta óskiptra vinsælda hjá íslenzkum hlust- Óvænt úrslit Á stundum fer allt öðruvísi en ætlað er og jafnvel hárná- kvæmustu útreikn'ingar reynast haldlausir. Þetta kemur ein- staka sinnum fyrir hjá verk- fræðingum, einnig mun þess dæmi hjá iðnaðarmönnum og jafnvel fleiri stéttum. Hjá íþróttamönnum okkar má þó helzt heita undantekning t. d. kemur það varla eða ekki fyrir, að þeir nái lakari árangri í utanferðum eða keppni við er- lenda gesti, en þeir hafa sjálfir gefið í skyn. Sér I Iagi á þetta þó Við um hina fræknu knatt- spyrnumenn okkar; þeirra reikn ingar standast nema þá að þeir fari fram úr áaetlun. Það kom því öllum landslýð mjög á óvart hvernig fór á Laugardalsvellinum sl. föstu- dagskvöld, þegar landsliðið — sem að vísu var ekki eiginlegt landslið, heldur landslið og þó ekki landslið. að sögn Sigurðar, sem virðist nú hafa tileinkað sér áramótaræðustíl yfirboðara sinna að verulegu leyti — keppti við þá brezku, og beið ósigur. Samkvæmt þeirri stór- stlgu framför, sem orðið hefur I íslenzkri knattspyrnu fyrir stórbættan aðbúnað, var þarna um óvænt úrslit að ræða. Það var einmitt á þessu vori, sem hinn glæsilegi árangur átti — samkvæmt öllum útre'ikningum — að fara að gera vart við sig og sanna. að öllum þeim millj ónum, sem farið hafa 1 það að^ koma knattspyrnumönnum vor um af mölinni á grasið, væri síður en svo á glæ kastað. Samkvæmt því hefði þetta samasem landsl'ið ekki átt að tapa fyrir þeim brezku nema með tveggja marka mun I stað þriggja. Þarna er, semsagt, um alvarlega reikningsskekkju að ræða... Sigurður upplýsti raunar að ekki hefðu allir þeir, sem kjörn'ir eða skipaðir voru I þetta samasem landslið, mætt til leiks. Varð þvl að grípa til þess óyndisúrræðis á síðustu stundu að tefla fram öðrum I þeirra stað til þess að hafa töluna. Það skal framtekið, að alrangt er að þeir hafi verið gripnir af handahófi úr hópi áhorfenda — og að það hafi verið þeir, sem stóðu sig bezt. Það er ekkert annað en rógur um íslenzka knattspyrnu — við líka og það, að knattspyrnu- menn okkar hefðu betur aldre’i komizt af mölinni á grasið, þar sem þeir litu á Laugardalsvöll inn eingöngu sem bithaga, þar sem þæg'ilegt sé að velta sér! En þrátt fyrir það er svona reikningsskekkja leiðinleg og á helzt ekki að koma fyrir. Það má kannski segja að eitt mark, til eða frá, geri ekki mikinn mun . . en samt.. Alltaf falleg Martine Carol er orðin fer- tug og hefur nokkur ár lifað lífinu I ró og næði en látið kvikmyndirnar eiga sig eft'ir að hún ofreyndi sig. Hún býr nú I London, en fer innan skamms til Hollywood til að semja um endurkomu sína eða „come-back“ eins og það héitir á leikmáli, þegar leikari byrjar aftur að leika eftir að vera „hættur.“ Annars virðist Mart ine, þessi dáða leikkona ekki mjög þreytuleg eða ofreynd á myndinni sem hér fylgir með, hún virðist enn vera falleg eins og á siðustu kvikmyndunum hennar. endum. Aðeins tvö Islenzk lög voru á listanum I þetta sinn, bæði leikin af Hljómum úr Keflavík. Þó hef ég lúmskan grun um að Svavar Gests sé á leiðinni með plötu, sem kann e. t. v. að slá I gegn. Lesendur eru beðnir að senda tillögur sínar um vinsælustu lög in fyrir hádegi næsta laugar- dag og verður listinn ásamt nöfnum vinningshE.fanna birtur þriðjudag eftir hvítasunnu. Vinsamlega merkið umslögin þannig: Vinsældarlisti Vísis Laugavegi 178 Reykjavík. NEO-tríóið „ölloftinu a í danska blaðinu „Fyns Tid- ende“ er sagt frá veitingastað, sem he'itir Brochmann, en þar mun NEO-tríóið íslenzka bráð- lega leika. Veitingastaðnum hef ur nýlega verið breytt, og þar verið sett upp „0Uoftet“, þar sem haldin eru „stemmings kvöld.“ Eigendur hússins 'þótt- ust hafa himin höndum tekið, er þeim tókst að fá NEO-tríóið til að leika á þessum kvöldum, því að það tríó hefur einmitt náð miklum vinsældum víða 1 Danmörku. Á myndinni, sem birtist I „Fyns Tidende“ eru, talið frá vinstri: Kristinn Vilhjálmsson, Jón Páll Bjarnason og Árni Schev'ing. Kári skrifar: TTúsmóðir af Hjallaveginum hringdi 1 mig um daginn og þakkaði mér fyrir hina ágætu til lögu um að veita ætti afslátt á útsvari, þeim sem hirða vel lóð ir sínar. Þó sagði hún að nauðsynlegt væri að muna, að mikill munur væri á afstöðu einstakra borgar búa til þess að þrífa I kringum sig. Hún byggi á Hjallavegi og hún hafi ekki orðið var við að neinir menn væru sendir þangað til þess að þrífa götur, eins og t.d. raka stórgrýti af götunum, né pappír og öðru drasli. jþað eina sem hún sagðist hafa orðið var við væri, að ein- stöku sinnum kæmu vegheflar, sem ýttu möl (eða kannski frek ar mold og leðju) upp að hús- um eða lóðamörkum, en enginn kæmi á eftir til þess að lagfæra „gangstéttarnar‘‘ þannig, að þangað safnaðist stórgrýti innan I moldarhaugnum, en seinna þeg ar þessar gangstéttir (þ.e. mold arhaugranir) úthverfanna hyrfu inn á heimilin, ýmis neðan á skósólum eða með sunnan, aust- an, vestan eða norðanáttinni, stæðu steinarnir einir eftir. Tj’r nokkurt réttlæti I því, bætti þessi ágæta húsmóðir við, að við þetta ógæfusama út- hverfafólk, séum sett svona gjör samlega á hakann I sambandi við allan hreinsun og snyrtingu. Ekki borgum við útsvör síður en aðrir borgarbúar. Það er ekki nema fyrir 17. júní og þeg ar kóngar og forsetar koma í heimsókn, sem eitthvað er gert I þessum málum, 1 það minnsta hér I Kleppsholtinu. Hver á eiginlega að sjá um þetta. Er það hreinsunardeild Borgarverkfræðings eða eru það hverfastjórar hinna einstöku hverfa? ss

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.