Vísir - 03.03.1966, Blaðsíða 4
VIS IR . Fimmtudagur 3, marzi®9fi6.
Boðskapurinn 1966:
Fyrsti marz er liðinn og það
er meira að segja kominn þriðji
marz. Parísarpósturinn er kom-
inn og með honum sending til
Kvennasíðunnar: tízkumyndir.
í fyrradag var hið opinbera
leyfi gefið til birtinga á myndum
frá tízkuvikunni, sem var fyrir
röskum mánuði. Kvennasíðan
hefur þó þegar birt fréttir af
tízkuvikunni, svo og mvndir,
sem einhvern veginn sluppu út
fyrir veggi tízkuhúsanna. Eins
og menn muna var stórfréttin í
ár: Pilsin 15 cm ofan við hné.
Tízkumyndirnar í dag eru
staðfesting á þessum fréttum
og óhætt er að fullyrða að þær
konur, sem ætla að tolla f tízk
unni, mega setjast niður með
þráð og nál og stytta.
Fyrstu fréttir, sem berast eru
ýmist óljósar eða öfgakenndar
en nú má segja að „línumar"
séu famar að skýrast.
Hvernig eru svo „línurnar?”
Því má svara með einu orði:
Einfaldar.
En við látum okkur ekki
nægja svo einfalda skýringu og
því skulum við bæta við nokkr
um orðum:
* ■>
< *»
■
' ' '
Hér sýnir hún Marfa okkur hálsmál, eins og tízkukóngurinn Heim
vill hafa það.
Óþarfa hnappar og vasar eru
úr sögunni. Hnappar eru aðeins
hafðir þar, sem þeim er hneppt,
og vasar þar, sem þörf er á
þeim.
Hálsmálið er ekki lengur fleg
ið, en handvegurinn aftur á móti
þeim mun víðari. Handleggimir
eiga sem sagt ekki síður að fá
að njóta sín en fótleggimir — ef
ekki er um Iangar ermar að
ræða.
Skartgripirnir eru úr sögunni
f bili að undanskildum eyma-
lokkum. Þeir eru ómissandi. En
þeir eiga ekki að vera úr gulli
og eðalsteinum, heldur úr ódýr
asta plasti.
Támjóir skór og mjöir hælar
eru horfnir en í stað þeirra eru
komnir svo til flatir, tábreiðir
skór. Tæmar eiga að fá að rétta
úr sér.
Fötin mega hvergi þrengja að.
Konan á að geta hreyft sig.
Svona eru línumar í stærstu
dráttunum. En svo koma tízku-
kóngamir til sögunnar og þar
kemur hver með sitt.
Að lokum Það er mikið um
krepefni. Litirnir eru ljósir og
ber þar mest á hvítum lit.
„Smástelpukjóll" ■ frá Gardin. Efnlð er köflótt ullargaberdine og
litimir eru fjólublátt brúnt og hvftt.
Tveir skemmtilegir Dior-kjólar