Vísir - 03.03.1966, Blaðsíða 6
6
V í S IR . Firiuntudagur 3. marz 1966.
Fiskiskýrsla —
Framh. aí bls. X
gær. Veröur hér sagt frá
, nokkrum helztu atriðunum úr
grein hans 'er fjalla um þetta:
Það kemur í ljós að af heild-
arafla Islendinga voru aðeins
19.2% undir 70 cm., en hjá
Bretum nam þessi tala 74.4%
og 70.3% af heildarafla útlend-
inga. Ef við lítum á hver sé
hundraðshluti hinna einstöku
þjóða í heildarveiði þorsks und
ir 70 cm., þá kemur í ljós, að
þar eru Bretar langhæstir með
69.9%, en útlendingar alls eru
með 81.6%. AÖ því er okkur
sjálfa snertir, þá eru lina og
net utan vertíðar stórtækust
með 9.4% og jafnvel fengust
3.3% á línu, net og nót á vetr-
arvertíð, en einungis 2.4% í
dragnótina Heildarafli okkar
af þorski undir 70 cm. nam á
tímabilinu 50 milljón fiskum, en
þar af fengust í dragnót ein-
ungis 6.4 milljónir. Það er at-
hyglisvert, að á vetrarvertíð
öfluðust á línu, net og nót tæp-
ar 9 milljónir þorska af þessari
stærð ,eða fleiri fiskar en feng-
ust í dragnótina.
STÓRAUKIN SÓKN
Sóknin í íslenzka þorskstofn-
inn hefur farið ört vaxandi frá
lokum síðari heimsstyrjaldar.
Það er venja að mæla sóknina,
sem þann fjölda klukkutíma,
er varpan hefur verið í botni,
margfaldað meö stærð skipsins
og er sú eining, sem hér er not
uð kölluð tonnatímar og er
mæld í milljónum.
Árið 1946 var sóknin aðeins
116 einingar, en var komin upp
í 824 einingar árið 1964 og
hefur sóknaraukningin verið til
tölulega jöfn allan tímann. Ef
við lítum á árin fyrir stríö má
sjá, að sókn og heildarþorsk-
afli hafi haldizt í hendur og
sama gildir um árin eftir stríð
allt til ársins 1958, en þá verða
greinileg þáttaskil, því eftir það
ár eykst sóknin óðfluga, en afl-
inn minnkar að sama skapi.
Nokkur aflaaukning varð þó á
árunum 1963 og 1964, en hana
má að einhverju leyti rekja til
aukinna fiskigangna frá Græn-
landi, eins og átt hefur sér
stað oft áður, t.d. árin 1930-33
og árið 1955. Á tímabilinu 1954
-1964 jókst sóknin um 87%
en heildaraflinn minnkaði um
tæp 22%.
Það er ekki ósennilegt, að
hin raunverulega sóknaraukn-
ing sé jafnvel enn meiri en töl
urnar sýna. Tilkoma nylonneta
þorskanótar og aukin notkun
dýptarmæla og asdic eru atriöi
sem erfitt er aö mæla, en jafn
framt hafa aukið mjög veiði-
hæfni bátanna.
SAMBAND SÓKNAR OG
DÁNARTÖLU.
' Mjög yfirgripsmiklar rann-
sóknir I'slendinga hafa sýnt, að
náið samhengi er á milli sókn-
ar og dánartölu hins kyn-
þroska hluta þorskstofnsins
sést þetta, ef borin er saman
meðalsókn og meðaldánartala
á 5 ára tímabilum 1930-1964.
Er hér um að ræöa mjög athygl
isvert samræmi, þegar sóknin
er 0 þá er dánartalan ca. 17%,
þ.e. þetta er það sem deyr' af
völdum náttúrunnar, en hinu
eigum við sök á.
Það hefur löngum verið
skoðun mín, að ekki væri æski
legt, að dánartalan færi yfir
65% á ári, rauða strikið, sem ég
hef svo nefnt. Eins og áöur er
getiö virðast eiga sér stað nokk
ur þáttaskil árið 1958, en áriö
1959 kemst heildarsóknin upp
í 550 einingar og er meöaltalan
við þá sókn nákvæmlega 65%.
Meðaldánartala hins kyn-
þro§ka hluta stofnsins á árun-
um 1960-64 var hins vegar kom
in upp í tæp 70%. Þetta er einn
ig staðfest af þýzkum rannsókn
um.
Að því er snertir hinn ó-
þroska hluta stofnsins, þá á-
ætla enskir fiskifræðingar að
dánartalan sé þar komin upp i
60% á ári og að % hlutar
þeirrar tölu séu af völdum
veiöanna.
SKÝRSLUR BRETA.
Öruggustu heimildir um
þorskafla á sóknareiningu eru
skýrslur Breta um afla á milljón
tonntíma. Árið 1946 var afli
brezkra togara 2310 tonn á
umrædda einingu, en var hins
vegar komin niður í 546 tonn
árið 1964. Við eigum ágætar
skýrslur um okkar eigin tog-
ara síöan 1960. Það ár var
afli íslenzkra togara 1185 tonn
á milljón tonntíma, en hann var
kominn niður í 411 tonn árið
1964. Aflaskýrslur þýzkra tog-
ara sýna einnig slíka þróun.
Við okkur blasir því sú kalda
staðreynd, að meira er tekið úr
íslenzka þorskstofninum, en
hann virðist þola. Við getum þvi
ekki gert ráð fyrir að auka
heildarþorskveiðina frá því sem
nú er, það geta þó komið ný-
ir og sterkir árgangar eöa
sterkar göngur frá Grænlandi,
sem geta aukið veiðina eitt-
hvað í bili, en sé litið á þetta
til langs tíma, virðist útilokaö
að stofninn geti skilað af sér
meira aflamagni, og verði sókn
in enn aukin, má búast við
minnkandi afla á bát og síöan
minnkandi heildarafla.
Rúmenar —
Framh. af ols. 16.
sjá hvernig handknattleiksmenn
okkar standa sig í keppninni
voð heimsmeistarana, en 1958
sigraði íslenzka handknattleiks-
liðið Rúmena í heimsmeistara-
keppninni, sem þá fór fram í
Austur-Þýzkalandi. Eftir heims-
meistarakeppnina þá hófst mik-
ill uppgangur hjá rúmneska lið-
inu og urðu þeir tvivegis heims-
meistarar árin 1961 og 1964.
Búa þeir sig nú af kappi
undir næstu heimsmeistara-
keppni, sem verður haldin í
Svíþjóð í janúar næsta ár og
hafa leikið marga landsleiki í
þeim tilgangi. Seint á s.l. ári
barst Handknattleikssambandi
Islands bréf þar sem heims-
meistaramir óskuðu eftir því
að fá að leika hér á landi tvo
landsleiki í sambandi við þessa
ferð til Norðurlanda, og eins og
fyrr segir er rúmneska liðið
komið hingað til lands til
keppni, sem margir hafa beðið
eftir með eftirvæntingu.
Orðið — ...
Framh : ois. 8
Ritstjóri þessa myndarlega
tímarits Félags guðfræðinema er
stud. theol Sigurður Örn Stein-
grímsson, en ritnefnd skipa auk
hans guðfræöinemamir Guðjón
Guðjónsson og Einar Sigur-
bjömsson.
Verzlanir —
Framhald af bl.s. 1.
undir dreifingarkostnaði.
Blaöið átti í morgun tal af
framkvæmdastjórum , samtaka
þessara stétta. Magnús Sveins-
son, framkvæmdastjóri VR
sagöi, að þetta væri ekki í
fyrsta sinn sem félagið færi í
verkfall, þar sem það hefði tek
ið þátt í allsherjarverkfallinu
í des. 1963. Þetta væri hins
vegar í fyrsta sinn sem félagið
færi f verkfall upp á eigin
spýtur. Hann sagöi að þetta
verkfall tæki aðeins til félags-
svæöisins í Reykjavík og ná-
grenni, en félög alls staðar úti
um land hefðu aflað sér verk-
fallsheimildar og gætu boðaö
það með viku fyrirvara. Á-
kvöröun kaupmanna að loka
búðum kæmi Verzlunarmanna-
félaginu ekki viö og beindist
ekki gegn því sem neins konar
hefndarráðstöfun. Sennilega
gætu sumir kaupmenn, er reka
litlar verzlanir haldið sjálfir
búðum opnum, en eðlilegt væri
að þau samtök eins og önnur
reyndu að skapa samstöðu hjá
sér.
Knútur Bruun, framkvæmda-
stjóri Kaupmannasamtakanna
sagði að nú væri komin alger
samstaða um lokun á verzlun-
um, síðast í gær hefði verið eft-
ir að fá samþykki tveggja eða
þriggja kaupmanna, en nú væru
þeir einnig komnir með í lokun-
ina. Við höfum brugðið á þenn
an leik sagði hann, til að efla
samstarfiö og allir í samtökum
okkar sitji við sama borð, jafnt
kaupmenn sem reka verzlanir
með miklu starfsliöi, svo sem
Sláturfélagið, Silli og Valdi og
Rmm slosast —
Framhald af bls. 1.
slysið á Grettisgötu í námunda við
Vitastíg. Það varð kl. 6 síðdegis.
Chevrlolet-station bíl var ekið
austur Grettisgötu, og þegar hann
var kominn á móts við Grettisgötu
48, kom þriggja ára drengur hlaup-
andi af syðri gangstétt og þvert
í veg fyrir bifreiðina. Ökumaður-
inn snarhemlaði, en hemlarnir fóru
þá skyndilega úr sambandi, svo
bifreiðin rann áfram, yfir drenginn
og dró hann eitthvað með sér. Þeg
ar bifreiðin nam staðar, dröst
drengurinn undan bifreiðinni og
upp að gangstéttarbrúninni en
missti þar meðvitund og lá í blóði
sínu þar þegar lögregluna bar að.
Sagði lögreglan að aðkoman hefði
verið Ijót og óttaðist stórslys, en
læknar í slysavarðstofunni töldu
drenginn ekki hættulega slasaðan
og það hefur viljað honum til
happs að hjólin fóru ekki yfir
hann.
TIL LEIGU
6 herb. nýleg íbúð á 1. hæð í sambýlishúsi. íbúðin er
vönduð í mjög góðu ástandi, með teppi á gólfum. Fram-
leiga á hluta íbúðarinnar kæmi til greina. íbúðin er
laus nú þegar. Uppl. gefur.
GUNNAR M. GUÐMUNDSSON
hæstaréttarlögmaður — Austurstræti 9 . Sími 16766
AFGREIÐSLUMAÐUR
Óskum að ráða vanan og ábyggilegan afgreiðslumann.
Uppl á skrifstofunni (ekki í síma). '
GEYSIR H.F. teppadeildin
KRON og ýmsir aörir og svo I Drengurinn heitir Björn Sigurðs-
hinir sem reka litlar verzlanir. | son og á heima á Vitastíg 11.
LAUST STARF
Síldarútvegsnefnd hefir ákveðið að ráða full-
trúa til skrifstofustarfa með aðsetri á Austur-
landi. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist skrifstofu Síld-
arútvegsnefndar á Siglufirði eða Reykjavík
fyrir 10. marz 1966.
Síldarútvegsnefnd.
Stúlka — París
Siðprúð og áreiðanleg stúlka 17-19 ára, óskast til
heimilisstarfa á íslenzku heimili í París frá 15. marz
eða síðasta lagi 1. apríl til ágústloka. Fríar ferðir. Upp-
lýsingar gefur Ingibjörg Pálsdóttir, sími 15827.
Vefnaðarvöruverzlanir eru opnar
Utsolan heldur áfram
Stórlækkað verð á
LÍFSTYKKJAVÖRUM og
UNDIRFATNAÐI.
Amerískir brjóstahaldarar og lífstykki fyrir
eldri konur.
Fylgizt með fjöldanum. — Gerið góð kaup.
Laugavegi 26.
í Austurbæjarbíói í kvöld 3. marz kl. 11.15.
Aðgöngumiðasala í Austurbæjarbíói frá kl. 4 í dag.
Skrifstofa skemmtikrafta