Vísir - 15.09.1966, Page 3

Vísir - 15.09.1966, Page 3
# VÍSIR . Fimmtudagur 15. september 1966. 3 ÍVIenn stóön í hópum og sumir skriöu í skjól undir væng svifflugna nna, meðan Ilulka sýndi listir sínar. — Fremst á myndinni er flagg- flnga- Svifflugfélagsins, sú tékkneska. LEIKUR í LOFTI Menn sáu bara einhverjar vélar koma og fara. Þar fóru reynd- ar keppendur í Shellbikarkeppn inni ,sem er kölluð eftir forláta bikar, sem sigurvegarinn hrepp- ir, en til þess verður flugmað- urinn að sýna góða og alhliða loftferðakunnáttu og flughæfi- leika. — Þannig urðu keppendur að þessu sinni að fljúga í á- kveðna stefnu og taka beygju á einhverjum stað, sem þeir vissu ekkert um, utan hnattstöðu hans. Við höfum það fyrir satt, að þessi staður hafi verið í jaöri Hrútsvatns í Þykkvabænum. Ef að menn tóku réttan ,kós‘ þaðan áttu þeir að beygja aftur yfir stað, sem reyndist vera viö Þrasaborgir á Lyngdalsheiði — hjá þeim, sem reiknuðu rétt út eftir kortinu, hinir hafa máske , lent norður í landi. — Þriðji punkturinn var svo Lundey og sá síðasti Sandskeið. Á þessu ferðalagi urðu þeir einnig aö þekkja staði, sem voru á flug- leiðinni, eftir ljósmyndum, og að fleiru áttu þeir að gefa gaum, mcðal annars gizka sem gleggst á hvað Iangt væri milli tveggja strika sem gerð höfðu veriö á Mosfellssveitarveginn, en fluglin an var á þeim kafla yfir vegin- um. Þá leystu keppendur fleiri þrautir, lentu ímyndaðri neyð- arlendingu, rétt upp við ímynd- aða girðingu og fleira. Þetta varð ýkja flókin keppni áður lauk, sem bezt sést á því, að ennþá er veriö að reikna út sig- urvegarann. Fólk þusti þangað upp eftir á bílum sinum (og fóru raunar margir aldrei út úr þeim fyrir kulda). Flugmenn og flugáhuga- menn stefndu rellum sínum þangað upp eftir, svifflugmenn höfðu óvenjumikinn viðbúnað á staönum, og síðast en ekki sízt: tékkneski listflugsnillingurinn Hulka gerði sig líklegan til þess að fljúga nýju listflugvélinni þcirra í félagi einkaflugmanna. Þeir, sem sáu Hulka Ieika list- ir sínar yfir Hljómskálagarðin- um á dögunum, hafa eflaust haldið, að þar sýndi hann allt hvað hægt væri að sýna á rell- unni. — Það kom hins vegar í ljós yfir Sandskeiði, að sýning- in yfir Reykjavík var bamaleik- ur einn móts við það, sem gerð- ist þar efra. Viröast engin tak- mörk fyrir þeim kúnstum, sem hægt er að leika í loftinu á þessari vél og Tékkinn lék þær líka óspart til hins ýtrasta. Hulka í einu hvolfflugi sínu. Frá flugdeginum á Sandskeiði Það lá ýmislegt í loftinu yf- ir Sandskeiði um síðustu helgi. Sú litla varð iíka að fá að skoöa þetta furðuverk, sem svífur meö menn um loftin án nokkurs vélarafls. Svifflugmenn drógu flugur sín ar út á völlinn og buðu hverjum sem var far upp í loftið með þeim. Gerðust þá margir úr hópi áhorfenda hugaðir fremur venju og fúsir til Ioftferðaævintýra. Allir komust aftur niður á jörð- ina, en trúlega hafa margir losn- að örlítið við hana aftur, þegar þeir fóm að segja flugófróöum vinum sínum frá háloftaævin- týrum sínum. — Svifflugfélagið sýndi einnig forláta flugu, sem félagið festi nýlega kaup á hjá Tékkum. Myndsjáin hafði spurmr af því að þetta væri „Tiger Mouth“ elzta kennsluflugvél Islendinga. ......... •> >>v.»v.v.-.w.- Minna bar á góðflugkeppn- Inni, sem háð var sama daginn.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.