Vísir - 08.10.1966, Page 16
Aðdlfundi
Verzlunarráðs
lauk í gær
Aðalfundi Verzlunarráðs Islands
lauk í gær. Hafði fundurinn þá stað
ið frá því um morguninn. Nokkrar
ályktanir voru gerðar á fundinum,
svo sem um viðskipta- og verðlags
mál, skattamál og fleira. i stjórn
Verzlunarráösins fyrir næsta kjör
tímabil voru kosnir eftirtaldir
rnerrn: Magnús J. Brynjólfsson, Eg-
ill Guttormsson, Bjöm Hallgríms-
son, Pétur Pétursson, Ólafur Ó.
Johnson, Othar Ellingsen, Stefán
G. Bjömsson, Pétur Sigurðsson,
Sigurður Ó. Ólafsson og Jónatan
Einarsson. Þá vom eftirtaldir til-
nefndir af félagasamtökum: Hilmar
Fenger og Kristján G. Gíslason frá
Félagi isl. stórkaupmanna, Gunnar
J. Friðriksson og Sveinn Valfells
frá Félagi ísl. iðnrekenda, Gunnar
Ásgeirsson frá Félagi ísl. bifreiða
innflytjenda, Haraldur Sveinsson
frá Félagi byggingarefniskaup-
manna. Endurskoðendur vom kosn
ir: Magnús Helgason og Otto A.
Michelsen. í kjÖmefnd voru kosn-
ir: Ámi Ámason, Páil Jóhannesson
og Guido Bemhöft.
Veturinn heilsaði mánuði fyrr en í fyrra j
Aðfaranótt suijnudagsins var,
kvaddi dyra í norðlenzkum
byggðum Vetur konungur. Var
hann rúmum mánuði fyrr á ferö
inni en í fyrra. Snjó dreif niður
í logni, en það fyrirbæri kalla
menn ýmist skæöadrífu eða
lappadrífu. Stóð svo allan
sunnudaginn, en snjóinn festi
ekki á láglendi, þar sem hiti'
var 2-3 stig. Enn snjóaði að-
faranótt mánudags og á mánu
dagsmorgun var komið minnst
5 sentimetra jafnfalliö snjólag á
jörðu, enda hafCi þá fryst.
Það var því kalt í kroppinn
og bax við bílinn" á mánu-
dagsmorguninn, eins og einn
komst að orði. En allt fór samt
vel eftir ástæðunj, enda ekkert
óveður á ferðinni. Á þriðjudag
var bjart og enn stillt veður og
þannig er það enn, þegar þetta
er skrifað á fimmtudag.
Ekki er hægt að segja, að
Norðlendingar séu almennt yfir
sig hrifnir af þessum fyrsta vetr
•
arsnjó, eftir að hafa búiö við •
mesta fannfergi framan af árinu *
og kalt sumar með hreti í ágúst •
byrjun. En menn taka þessu •
með jafnaðargeði og vona i *
lengstu lög, að þetta hríöarskot •
hafi aðeins verið áminning í •
tíma, en ýmsum framkvæmd- J
um er ólokið fyrir veturinn, eins •
og eðlilegt er. — herb. •
VISIR
Laugardagur 8. október 1966
• ;
ÍLoftleiðir auglýsa tværj
I DC6B vélar til sölu i
• Það er kunnara en frá þurfi
I að segja, að Loftleiðir hafa á
J síðustu.jrum staðið í endurnýj-
• un flugfiota síns. Hafa þeir í
1 því sambandi keypt 4 stórar far-
2 þegaflugvélar af gerðinni Can
• adair RR400 og eftir að þeir
• keyptu þær vélar hafa þeir látið
2 lengja þær með þeim árangri, að
• þessar vélar munu nú vera
2 stærstu farþegavélar, sem eru
2 í feröum yfir N-Atlantshafið.
/ •
Vélar þessar taka um 190 far- 2
þega eftir lengingu. •
Að vísu hafa ekki allar hinar •
nýju vélar Loftleiða verið lengd 2
ar, en sú fjórða og síðasta verð- •
ur lengd nú í vetur á tímabil- •
inu frá nóvember til febrúar. 2
Flugfloti Loftleiða byggöist áð •
ur fyrr á flugvélum af geröinni •
Douglas DC6b, en nú hefur fé- 2
•
Framh. á bis. 5. 2
Max Adenauer.
Verðlagsmálin efst á baugi í V-Þýzkal.
_• _ I u mj_. x_■, ' "/■ M i* «. 1U. m V -
segir dr. Max Adenauer, sem staddur er í Reykjavik
í hópi Þjóðverjanna,
er komu í gær á vegum
Germaniu var dr. Max
Adenauer fyrrum yfir-
borgarstjóri Kölnar og
formaður íslandsvina-
félagsins þar í borg.
Fréttamaður Vísis átti
stutt samtal við hann á
Lofteiðahótelinu rétt eft
ir komu hópsins til
Reykjavíkur.
— Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem þér heimsækið ísland?
— Nei, fjórða sinnið, ég kom
hingað 1930, 1956, fyrir þremur
árum og svo nú í þetta skipti.
— Hvaö hafiö þér nú með
höndum eftir að hafa yfirgefið
borgarstjórastarfið?
— Ég er aðalbankastjóri
Rheinboden-Bank í Köln.
Vörubifreiðarstjórar reisa stórhýsi
Vörubilstjórafélagið Þróttur er
að reisa stórhýsi við Borgartún
og er byggingin nær fokheld.
Verður síðan unnið innan húss
í vetur og byggingin tekin í
notkun einhvem tíma á næsta
ári.
Samkvæmt upplýsingum Pét-
urs Guðfinnssonar, sem annast
byggingarframkvæmdir af hálfu
félagsins, var byrjað á fram-
kvæmdum árið 1964. Þetta er
þriggja hæða bygging með kjall-
ara, gólfflötur 600 ferm, en alls
er hún yfir 8000 rúmmetrar.
Afgreiðsla Þróttar og sam-
komusalur verða í byggingunni,
en ekki er ákveðið að öðru ieyti
hve mikinn hluta félagið not-
ar sjálft. Hitt verður ýmist leigt
eða selt. Þá er eftir að byggja
á lóð félagsins smurstöð, pakk-
hús og ef til vill fleiri bygging-
ar, en ætlunin er að skapa þama
.niðstöð fyrir vöruflutninga.
Félagsm. Þróttar sem standa að
þessari starfsemi eru rúmlega
220 talsins. Hafa þeir lagt fram
fé til byggingarinnar svo og við
skiptabanki félagsins og nokkrir
— Hafið þér hætt þátttöku
í stjómmálum?
— Nei, jafnaðarmennirnir
sáu til þess að ég missti sætið,
sagði hann og hló, en ég verð
í framboði aftur.
— Hver eru helztu vandamál
Vestur Þjóðverja um þessar
mundir?
— Sameining Þýzkalands er
auðvitað stærsta vandamálið, en
verðlagsmálin eru að öðru leyti
efst á baugi eins og hjá ykkur.
Ríkisstjórnin gekk nýlega frá
frumvarpi sem miðar að því að
koma á jafnvægi í efnahagsmál
unum. Mankmiðið er að verð-
hækkanir verði ekki meiri en
1-2% á ári, og það er óhætt að
segja að stjóminni hefur gengið
vel í viðleitni sinni við að halda
verölaginu niðri. Það var farið
að hækka ískyggilega, en ráð-
stafanir, sem voru gerðar fyrir
fáeinum mánuðum ieiddu til
þess að jafnvægi er aftur að
komast á.
— Hvað veröið þér lengi hér
í þefcta sinn?
— Ég verð aðeins í fimm
Framh. á bls. 5.
Hið nýja hús Þróttar