Vísir - 05.08.1967, Side 1
VÍSIR
u/. arg. — Laugaraagur o. agusr lyo/. — 1/7.101. '
LÉTTSKÝJAÐ
v'iðast hvar um verzlunarmannahelgina ?
Það má líklega segja að verzl
unarmannahelgin sé hjá veður-
fræðingum eins og jólin hjá
kaupmönnum, að minnsta kosti
hafa þeir haft mikið að gera
síðustu daga við að reikna út
alls kyns lægðir og strauma, og
endanlegar niðurstöður gefa til
k>mna að líklega verði hiö bezta
veður víðast hvar á landinu.
Að vísu má gera ráð fyrir að
austan til og við suðurströnd-
ina verði skýjað, en þó vonandi
úrkomulaust. Hér við Faxaflóa,
á Vesturlandi og viðast hvar
norðanlands er allt útlit fyrir
hið bliðasta veður, léttskýjað
og sólskin.
Meðfylgjandi mynd var tekin
af tveim hafnfirzkum börnum,
Ragnhildi og Jóni austur í Fljóts
hlíð, — þau nutu blíðviðrisins
og við á Visi vonu'm að um
þessa miklu ferðahelgi verði ís-
lendingar eins heppnir með veð
ur og mögulegt er.
GÓÐA FERÐ !!
Metdagur i innanlandsflugi —17 rútur frá BSI i Húsafellsskóg
Mikið fjölmenni i Eyjum — Annir hjá lögreglu. og bifreibaeftirliti
0 Seinustu dagana hef-
ur ferðastemmningin
gengið eins og faraldur
um þéttbýlið. Hver sem
vettlingi gat valdið lagði
föggur sínar á fararskjót
ann, sinn eigin eða ann-
arra. Hversdagsleikinn
er fokinn út í veður og
vind og fólk tjaldar til
fárra nátta einhvers stað
ar úti í náttúrunni. —
Ferðafólk verður ekki
talið í fáum hundruðum
heldur þúsundum og tug
þúsundum.
► Líklega hafa aldrei jafn
margir ísrendingar lagt upp í
ferðalög og í gær, en seinnipart
dagsins var straumurinn hvað
mestur úr þéttbýlinu. Gærdagur
inn var metdagur í innanlands-
flugi Flugfélagsins, en búizt var
við að 1500 farþegar flygju með
vélum innaniands þcnnan dag
og er það miklu fleira en sama
dag í fyrra, en föstudagurinn fyr
ir verzlunarmannahelgi er jafn-
an einn mesti annadagur á árinu
í innanlandsflugi.
Metdagur í innan-
landsflugi
Straumurinn virðist helzt hafa
legið á tvo staði, í Húsafells-
skóg og til Vestmannaeyja. —
Flugfélagiö fiutti um þúsund
farþega að og frá Eyjum í gær
og alls var búizt við að far-
þegar féiagsins á þessari leið
yrðu upp undir tvö þúsund þrjá
síðustu dagana fyrir helgina. —
Þegar Vísir hringdi á afgreiðsiu
Flugfélagsins í gær voru af-
greiðslumenn í botniausum önn
um og sömu sögu var að segja
víðast annars staðar á farþega
afgreiðslum.
Ferðaskrifstofan Landsýn
sem hafði flugvélar Flugsýnar
i leiguflugi til Eyja hafði skráð
hátt á annað hundrað farþega
í feröir sínar þangað. — Auk
þess voru leiguflugvélar á sí-
felldum þönum til hinna ýmsu
staða.
^ Fjölmenni í Húsa-
fellsskóg —
rólegt í Þórsmörk
Frá Bifreiöastöö íslands áttu
Hluti af unglingafjöidanum við Umferðarmiðstöðina í gær.
Ein færeysk spurði lögregluþjón til vegar, — til Húsafellsskógar.
að fara 16 eða 17 rútur í Húsa
fellsskóg í gærkvöidi og auk
þess voru þaðan farnar hóp-
ferðir í Galtalækjarskóg og Þórs
mörk.
Ferðaskrifstofan Lönd og leið
ir skipulagði ferðir með Guð-
mundi Jónassyni í Þórsmörk og
Landmannalaugar um helgina
og var vitað' um 80 farþega í
Mörkina í gærkvöldi og annaö
eins átti aö fara í dag. Og inn
í Landmannalaunar fór 30
manna hópur frá ferðaskrifstof
unni til þess að njóta helgar-
innar í ró og næöi. Einnig flutti
Úlfar Jacobsen fjölda manns í
Þórsmörk í gær og i dag.
Fyrir utan þessar hópfcrðir
fór að sjáifsögðu ógrynni af
einkabílum um landið og hefur
umferðin sjálfsagt aldrei verið
meiri á þjóðvegunum en þessa
dagana. Þeir fáu sem eftir eru
í bæjunum eiga hins vegar ró-
lega daga og ördeyða þar í öllu
skemmtanalífi.
Tjaldborgir sem stór-
borgir yfir að líta
Sem fyrr segir virðist fólks-
straumurinn vera mestur til
Vestmannaeyja og í Húsafells
skóg, en ekki er gott að*gera
sér grein fyrir hversu margir
dveljast á þessum stöðum um
helgina. Gera má þó ráð fyrir
að á þjóðhátíðlnni í Eyjum séu
ekki færri en sex.þúsund manns
og líklega öllu fleira í Húsafells
skógi. — Nærri má geta að á
þessum stöðum er glatt á hjalla
og tjaldborgirnar eru þar eins
og stórbæir yfir að líta. Þó að
þúsundir manna leiti mannfagn
aða víða um landlð eru þó marg
ir, sem fara einförum og slá
upp tjaldi einhvers staðar þar,
sem skarkali fjöldans nær ekki
til, hvarvetna getur að líta tjöld
ein saman eða í þyrpingum við
alfaravegi og uppi í afdöium og
óbyggðum. — Vonandi koma
allir hcilir til baka, endurnærö
ir og betri menn.
Framhald á bis. 10.