Vísir - 05.08.1967, Side 2
VISIR . Laugardagur 5. ágúst 1967,
TÁNINGA-
SÍÐAN
Helgar skemmti staður
Saltvík fyrir æskuna
Fyrstu skemmtanirnar eru á þessu sumri
^kveðið héfur verið að Reykja-
víkurborg komi á fót helgar
skemmtistað fyrir ungt fólk 1
Saltvík á Kjalarnesi, en þá jörð
keypti Reykjavíkurborg fyrir
tveimur árum. Hefur borgin fal
ið Æskulýðsráði framkvæmdir
við staðinn og mun stefnt að því
að taka hann í notkun að ein-
hverju leyti á þessu sumri.
Vinsælda-
listinn
25 vinsaelustu 2ja laga plöt-
umar í Bretlandi eru nú þess
ar:
1 All You Need Is Love
Beatles
2 It Must Be Him
Vlkki Carr
3 San Francisco
Flowers In Your Hair)
Scott McKenzie
4 Alternate Title
Monkees
5 She’d Rather Be With Me
Turtles
6 See Emily Play
Pink Floyd
7 A Whiter Shade Of Pale
Procol Harum
8 There Goes My Every-
thing
Engelbert Humperdinck
9 Up, Up, And Away
Johnnie Mann Singers
10 Death Of A Clown
Dave Davies
11 Let’S Pretend
Lulu
12 Respect
Aretha Franklin
13 Take Me In Your Arms
And Love Me
Gladys Knight and the
Pips
14 007
Desmond Dekker
15 Groovin’
Young Rascais
16 Carrie Anne
The Hollies
17 You Only Live Twice
Nancy Sinatra
18 'tere Comes The Nice
Small Faces
19 Seven Rooms Of Gloom
Four Tops
20 Just Loving You
Anita Harris
2. I’ll Never Fall In Love
Agaln
Tom Jones
22 Tonight In Tokyo
Sandie Shaw
23 I Was Made To Love Her
Stevie Wonder
24 When You're Young And
In Love
Marvelettes
25 Annabella
John Walker
Baldvin Jónsson hefur verið
ráðinn af Æskulýðsráði Reykja-
víkur til að sjá um framkvæmd-
ir og skipulag í Saltvík.
I Saltvik er hlaða — stór og
góð, sem breyta á í danshús,
þannig verður unnt að halda
vikuleg hlööuböll I orðsins
fyllstu merkingu. Þá er á staðn
um gamall sumarbústaður, þar
sem veitingar verða seldar og
birgðageymsla, sem notuö verð
ur fyrir knattborðsleiki. Einn-
ig verður komið upp útileik-
völlum svo sem knattspymu-
velli, handknattleiksvelli o.fl.
Á staðnum er mjög. góð að-
staða til sóldýrkunar við sjáv-
arströndina og í vetur er ráð-
gert að lagfæra ströndina, svo
að unnt vérði að baða sig í
sjónum næsta sumar.
Hugmyndin er, að ungt fólk
leggi af mörkum vinnu við stað
inn, að einhverju leyti — vinni
að gróðursetningu og ýmsu, sem
viðkemur staðnum. Miðað er við
að fvrsta skemmtunin verði 12.
ágúst og sfðan tvær aðrar helg
ar í sumar. Fæst þá reynsla um
rekstur staðarins, og verður hún
lögð til grundvallar starfinu
naésta sumar, samkvæmt vilja
unga fólksins.
Tilhögun skemmtananna vérö-
ur, að ungt fólk getur komið
í Saltvík á laugardögum, haft
méð sér tjöld og dvalizt þar yf-
ir helgina. Unnt verður að fá
tjöld geymd á staðnum, og dans
að verður i hlöðunni hvert laug
ardagskvöld, frá kl 21 til 02.
Aögangseyrir að staðnum verð-
ur kr .100 — 150, en innan stað-
arins verða öll skemmtiatriði ó-
keypis. Aðgöngumiðinn verður
merki, sem menn bera utan á
sér, meðan þeir eru innan
skemmtisvæðisins, og það að
týna merkinu, er sama sem að
týna andvirði aðgangseyrisins.
Áfengisneyzla á svæðinu er
stranglega bönnuð, og sé það
bann brotið, er viðkomandi hik
laust gerður brottrækur. Sæta-
ferðir verða úr Reykjavík á
klukkustundar fresti, laugar-
daga frá hádegi og til kl 19
sunnudaga. Útvarpað verður tón
list við hæfi unga fólksins með-
an staðurinn er opinn.
Að lokum væntum viö þess,
að ungt fólk meti þá fram
kvæmd sem Æskulýðsráð og
Reykjavikurborg leggur nú f,
Hljómsveit unga
fólksins „Mods"
Um þessar mundir hefur
skotið upp kollinum ný
hljómsveit, sem kallast
„MODS“. Þessi nýja hljóm-
sveit, sem óðum eykur vin-
sældir sínar hér í höfuðborg-
inni og nágrenni hennar, var
stofnsett um áramótin 1966
—67.
Hljómsveitin hefur leikið
víða hér f Réykjavík, og þá
einkum f Iðnó og Breiðfirð-
ingabúð, og skapað sér gíf-
urlegar vinsældir meðal unga
fólksins.
Allir hafa þessir ungu hljóð
færaleikarar helgag frístund-
ir sinar tónlistinni, og ár-
angurinn af iðni þeirra og
hæfni er þegar farinn að gera
vart við sig.
Þarna virðast á ferðinni
samvaldir piltar, sem þegar
eru farnir að setja svip sinn
á tónlistarlífið.
Hljómsveitina skipa þeir
Kári Jónsson, sem leikur á
sólógítar og orgel, Kolbeinn
Kristinsson, er leikur á
rithmagítar, Sigurjón Sig-
hvatsson, er spilar á bassa,
og Sveinn Larsson, sem lem-
ur trommurnar.
og treystum þvi að unga fólkið
gangi vel um staðinn, og sýni
með því þökk fyrrgreindum að
ilum fyrir framgöngu þeirra, og
stuðli með því að gera staðinn
sem ánægjulegastan.
Nýjar hljómplötur
TVTú á næstunni kemur á mark-
1 ’ að f Bandaríkjunum hljóm-
plata með The Rolling Stones,
sem ber nafnið „Flowers". Er
hér um að ræða gömul og ný
lög, sem gefin eru út á hæg-
gengri plötu og eru á henni
eftirtalin lög: Ruby Thuesday —
Have you seen your mother
baby, standing in the shadow?
— Let’s spend the night toget-
her —• Lady Jane •— Out of
time — My girl — Please go
home — Mother’s little helper
— Take it or leave it — Ride
on, baby — Sittin’on a fencé.
Albúm plötunnar er fagur-
lega skreytt og á áreiðanlega eft
ir að seljast vel, því aðeins ein
„LP“ hljómplata með vinsælustu
lögum hljómsveitarinnar hefur
verið gefin út áður, svo síðustu
metsölulög þeirra félaga hafa
ekki komizt á „Hits-plötu“, þar
eð fyrri platan var gefin út ár-
ið 1964.
Small Faces gáfu nýléga út
tvær „LP“ plötur, og heitir
önnur þeirra „From the Begin-
ing“, og er þar um að ræða
beztu lög hljómsveitarinnar frá
byrjun, eins og nafn plötunnar
segir til um.
Hljómplata þessi hefur að
geyma 14 lög, sem eru mjög
góð, enda engin furða, þvi lög
þessi hafa skapað hljómsveit-
inni vinsældir.
Platan er gefin út á vegum
Decca, einungis í mono.
Ný síða í blaðinu
- TÁNINGASÍÐAN - er
ný síða í blaðinu, sem er ætl-
uð hinum yngri lesendum
blaðsins, Verður hún væntan-
lega í blaðinu á hverjum laug
ardegi.
Væntum við þess, að þið,
æskufólk, skrifið Táningasíð-
unni bréf um áhugamál ykk-
ar, op munum við reyna að
gefa þeim pláss hér á sfð-
unni. Utanáskriftin er Tán-
ingasiðan, Dagblaðið Vfsir,
Laugavegi 178, Reykjavík.
Vonum við svo, að þið
skemmtið ykkur vel við Tán-
ingasíðuna.
Hina plötuna kalla þeir „Small
Faces". Á þeirri plötu eru allt
ný lög, einkar falleg og einnig
14 að tölu.
Plata þessi er gefin út hjá
Immediate, bæði í mono og
stereo.
Shadows sendu nýlega plötu
undir nafninu „Jigsaw". Á hljóm
plötu þessari eru 14 lög, hvert
öðru betra. Lögin Detacaed,
Suburban, Mr. James, sem Mann
fred Mann og félagar gerðu vin
sælt á sínum tíma, og Friday on
my mind, sem Easybeats gerðu
vinsælt, túlka þeir mjög
skemmtilega og í nýrri útsetn
ingu. Titillag plötunnar, Jigsaw,
sem þeir hafa sjálfir samið, til-
heyrir hinum svokallaða Beat-
stíl, og er einkum vel leikið,
eins og við má búast.
Brezka útgáfufyrirtækiö Col-
umbia gefur út plötu hljóm-
sveitarinnar, eins og endra nær,
bæði í mono og stereo.
Bítlarnir
7. júlí gáfu Bítlarnir út tveggja
laga plötu með lögunum „All
You Need Is Love“ og „Baby,
you’re a rich man“ og eru þau
bæði prýðisgóð. Lennon-Mc-
Cartney sömdu bæði lögin aö
vanda, og keimir þar margra
grasa, hvað hljóöfæraskipun við
kemur, því bar úir og grúir af
alls konar hljómmyndunum. —
Titillag plötunnar AIl You Need
Is Love var tekið upp fyrir
fyrsta þáttinn, sem sýndur var
á vegum heimssjónvarpsins,
þátturinn er kallaður var ,Lífið*.