Vísir - 05.08.1967, Blaðsíða 7
V1SIR . Laugardagur 5. ágúst 1967.
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
Borgarastyrjöídin í Kína breiðist út
Óeirðirnar breiðast stöðugt
út í Kína og má með nokkr-
um rétti segja, að þar ríki
fullkomin borgarastyrjöld. —
Nýjasta miðstöðin er Khung-
king, milljónaborg í „Rauðu
Iægðinni“, frjósömu iandbún-
aðarhéraði inni á milli fjalla
Suður-Kína. Þessi borg var
um tíma höfuðborg Shang
Kai Sjeks, þegar hann varð-
ist gegn Japönum í heims-
styrjöldinni. "
I Khungking hafa andstæðingar
Maos gripið til vopna. Þeir hafa
fengið vopn upp eftir Yangste-
fljóti, 1200 kílómetra leið upp eftir
ánni frá óeirðamiðstööinni Wuhan.
Það er tékkóslavneska fréttastofan,
sem skýrir frá þessu.
f Wuhan hafa verið harðir bar-
dagar milli Mao-sinna og andstæð-
inga hans. Wuhan er mikil iðnaðar-
borg og samgöngumiðstöð neöar-
lega við ána Yangste. Útvarpið í
Kanton hefur skýrt svo frá, að
sjúkrahúsin í Wuhan séu full af
særðum hermönnum. í leiðara f
Alþýöudagblaðinu í Peking í gær
var sagt, að andspyrnan gegn Mao
haldi áfram.
í Peking er talið, að barizt hafi
verið í Khungking í marga daga, en
annars er lítið vitað um, hvers
eðlis átökin eru þar.
Útvarpið í Hupeh lét í gær frá
sér fara örvæntingarfullt hervæð-
Mál höfðað gegn 9 embættis-
mönnum vegna Aberfanslyss?
í gær var það mjög til umræðu
meðal ibúa námabæjarins Aberfan
í Bretlandi, hvort höfða skyldi mál
gegn þeim aðilum, sem taldir eru
bera ábyrgð á hinu hörmulega slysi
þar í fyrra, er 144 manns, mest
böm, fórust undir skriðu. Umræð-
urnar koma i kjðlfar þess að I fyrra
dag birti stjómamefnd niðurstöður
rannsóknar sinnar á orsökum slyss-
ins, en þar var embættismönnum
námufélags brezka ríkisins kennt
um slysið.
f skýrslunni eru taldir upp níu
ábyrgir embættismenn og einnig
sagt, að jafnvel aðalstjórn félags-
ins f Londón sé ekki 'nus vig á-
byrgð. Saksóknari ríkis.ns gaf þá
út yfirlýsingu í tilefni skýrslunnar
og sagöi, aö mál yrði ekki höfðað
af hálfu hins opinbera gegn þess-
um aöilum.
En þessi yfirlýsing saksóknar-
ans hindrar ekki, að íbúar Aberfan
geti ekki höfðað einkamál og kraf-
izt skaðabóta. En lögfróðir menn
segja, að erfitt verði að fá neinn
dæmdan f þessu máli sem refsi-
máli, þar sem ekki hafi verið um
glæpsamlega vanrækslu að ræða
af hálfu embættismannanna.
Mögulegt er talið, að hjálparsjöö-
ur Aberfan greiði skaðabætur. Sjöð
ur þessi er myndaður af gjöfum
þeim, sem streymdu til námabæj-
arins eftir slysið, og hefur ekki
verið úthlutað úr honum enn. Nem-
ur sjóðurinn um 220 milljónum fs-
'enzkra króna.
Á miðvikudaginn heldur nefndin
fund með íbúum Aberfan til að
skýra fyrir þeim niðurstöður rann-
sóknarinnar.
ingarákall. Voru allir byltingarsinn
ar f Wuhan hvattir til þess að sam-
einast í baráttunni við óvini Maos.
Var sagt, að nokkrir borgaralegir
valdhafar í hemum og flokknum
og foringjar í „Milljónahernum"
hefðu ekki enn fengið fyrir ferðina
og gerðir áhrifalausir. „Milljóna-
herinn“ svonefndi er frekar íhalds-
samur hópur á Wuhan-svæðinu og
andstæður Mao formanni.
Andstæðingar Maos eru sagöir
hafa farið um göturnar í hafnar-
borginni Shanghai, gert aðsúg að
rauöum varðliðum og rænt ríkis-
eignir. Einnig eru óljósar fréttir um
bardaga í Hwainan í Anhwei-hér-
aði, þar sem mikill órói hefur veriö
undanfarið meöal verkamanna. An-
hwei er beint sunnan við Shantung-
hérað, þar sem nýlega hafa hvað
eftir annað brotizt út óeirðir af
völdum andstæðinga Maos.
ísrael viöurkennt?
Forsætisráðherra Jórdaníu hefur
lýst því yfir, að Jórdanía muni ekki
upp á sitt eindæmi hefja aðgerðir
til að hrekja ísraelsmepn af hinum
herteknu svæðum á vesturbakka ár
innar Jórdan. Einnig hefur þaö
frétzt frá utanríkisráðherrafundi
Arabaríkjanna í Khartoum, að sum
ArabaríkL séu ekki fráhverf þeirri
lausn, að ísrael verði viðurkennt
um leið og þag dragi heri sína til
baka af hinum herteknu svæðum.
Japanskir blaðamenn halda því
fram, aö næstum þriðjungur stjórn-
málaleiötoga Kínahers hafi verið
rekinn úr starfi án nokkurra út-
skýringa. Þetta hefur verið sér- | Utanríkisráðherrar fimm Suð-
staklega áberandi í Szechwan-hér- , austur-Asíuríkja komu saman í
aði og Kansu-héraði. Á báðum þess
um stöðum hefur verið barizt.
Nýtt Suðaustur-
Asíubandalag
Utanríkisráðherrar fimm
Tékkneska fréttastofan segir, að
rauðir varðliðar hafi heimtaö að
fá Liu forseta í yfirheyrslu en ör-
yggismálaráðherra hafi sagt þeim,
að óvíst væri hvort Liu yrði „sýnd-
ur fjö.ldanum“.
Thailandi í gær til að ræða stofnun
efnahagsbandalags, sem verði
traustara en núverandi bandalag
Thailands, Malaysíu og Filipseyja.
Verði þá Indónesía og Singapore
tekin með. Indónesía er nú miklu
samvinnuþýðari við nágrannalönd
sín en tíökaðist á valdadögum Sú-
karnós. Öll þessi fimm ríki eru
sögð fylgjandi hinu nýja bandalagi.
'TVZ.T.
Áströlsk hj úkrunarkona
týnir fjármunum
Týndi 180 sterlingspundum, islenzkum
peningum og skilrikjum sinum
Til rannsóknarlögreglunnar sneri
sér áströlsk hjúkrunarkona, sem
hér hefur verið á ferð, og sagði
henni sínar farir ekki sléttar. Hafði
hún í fyrradag, fimmtudaginn, lagt
í ferð austur í Fljótshlíð og ferð-
azt á puttanum, eins og þaö er
gjarna nefnt.
Um morguninn kl 10 laeði hún
af staö og gekk henni ferðin vel,
enda var hún komin austur kl hálf
fimm um kvöldið. Höfðu margir
orðið til þess að leyfa henni að
sitja í hjá sér snölkorn, leiðina
austur. En begar Anne Graham
King ’en svo heitir stúlkan, kom
austur uppgötvaði hún að hún hafði
á lelðinni týnt veskinu sínu. Var
þetta litið veski sem hún geymdi
fast við belti sitt. í veskinu hafði
hún skilríki sín og peninga: vega-
bréf, farmiða með Gullfossi, ferða-
tékka upp á 150 pund, 30 pund í
seðlum, og auk bess 1600 krónur í
íslenzkum gjaldmiðli.
Veskistapið var ungfrú King afar
bagalegt og biður hún bann sem
orðið hefur bess var vinsamlegast
að koma því til rannsóknarlögregl-
unnar.
Finnar bjóða 4
íslendingum utan
Æskulýðsráð Norræna *-élagsins j
finnska býöur 4 íslendingum á aldr
im 16—30 ára til móts í Finn- j
landi 9.—13. ágúst. Greiðir Æsku-
Jvössambandið fargjaldið aðra leið
ina frá íslandi til Finnlands. og
allt uppihald í Finnlandi. Þeir sem
óska að fara þessa ferð hringi
á skrifstofu Norræna félagsins fs-
lenzka í Hagaskóla í dag laugar-
dag kl. 9—16 eða á mánudag 7.
ágúst kl. 9—18 í síma 17995, þar
sem þeir munu fá nánari upplýs ■
ingar. Flogið verður til Helsingfors
8. ágúst kl. 23,45 frá Keflavík.
Efni mótsins er: Finnland í dag.
ítalskir
ferðalangar
ó íslandi
í gær kom hingað til Iands 92
manna hópur fljúgandi beint frá
Italíu. Fólk þetta er allt íbúar lítils
þorps rétt hjá Flórens og vinnur
flest hjá sama fyrirtækinu, en hing
að kemur þaö á leið sinni um Norð
urlönd og hyggst dveljast hér í
þvjá til fjóra daga, skoða Revkja-
vfk og forðast lítilsháttar um landið
að G"" : og Geysi og til Þigg-
valla, en petta er ,,rúta“ flestra hóp
ferða, sem hingað koma.
Einn dag hyggst hópurinn fljúga
til Kulusuk á Grænlandi meö Flug
félaginu Það er ferðaskrifstofan
Lönd og leiðir, sem skipuleggur
dvöl þeirra hér en að henni lok-
inni heimsækir hópurinn Skandin-
avíu.
RÍKISSTJÓRNIN
ÁFRÝJAR VSÐ-
EYJARMATI
Ríkisstjórnin mun hafa ákveö Yfirmatsmenn verða þrír til-
ið að áfrýja til lækkunar til yfir nefndir af sýslumanninum í Gull
mats matsgerð þeirri á Viöeyj bringu- og Kjósarsýslu.
arstofu og landi umhverfis hana, Matið á eynni var 9.7 millj- ®
sem greint hefur verið frá í ónir samkvæmt mati matsnefnd o
blaðinu. ar. *
Allt situr við
sama í Straumsvík
Ekkert hefur enn gerzt í Straums
víkurdeilunni og verður vart neins
að vænta fyrr en í næstu viku í
fyrsta lagi. Verkbannið, sem sett
var á vörur til hafnargerðarinnar
hefur nú breiðzt út og gildir hjá
verkalýðsfélögum í Reykjavík,
Hafnarfirði, Keflavík, Akranesi og
í Þorlákshöfn.
Einhver skip munu vera á leið
til landsins með vörur til Véltækni
Hochtief, en verkbannið skellur á
7. ágúst þ.e. mánudaginn. Her-
mann Guðmundsson formaður
verkamannafélagsins Hlífar í Hafn
arfiröi, sagði í gærkvöldi að vörur
þessar yrðu ekki snertar af fé-
lögum í ofangreindum verkalýðs-
félögum og kann þetta því að valda
talsverðum truflunum hjá skipafé-
lögum, því erfitt kann að veröa
að komast að öðrum vörum fyrir
bragðiö.
Deila þessi stendur sem kunnugt
er vegna þess að Hlíf krefst þess
að samningar séu gerðir við verka-
menn við hafnargerðina á grund-
velli þeirra samninga sem gerðir
voru í marz sl. við Strabach-Hocli
tief.