Vísir - 05.08.1967, Page 8
8
VÍSIR
(Jtgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR
Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoðarritstjóri: Axel Tborsteinsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson
Auglýsingan Þingboltsstræti 1, slmar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Hverfisgötu 55.
Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Askriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands
! lausasölu Kr. 7.00 eintakið
Prentsiaiðjt Visis — Edda h.f.
Verzlunarmannahelgin
gamkvæmt margra ára reynslu má búast við að um
þessa helgi verði umferð á vegum landsins meiri en
nokkru sinni endranær. Þrátt fyrir veðurspána, sem
bendir til að eitthvað kunni að rigna sums staðar á
sunnudag og mánudag, munu mjög margir nota þessa
daga til að ferðast um landið. Samkomur verða víða,
sem fjöldi fólks sækir, og líklega verður Reykjavík
einhver kyrrlátasti staður landsins um þessa helgi,
aldrei þessu vant.
Aldrei er of oft brýnt fyrir vegfarendum, að fara
gætilega i þessari miklu umferð. Það er hörmulegt
að verða fyrir slysum eða valda öðrum meiðslum, eða
jafnvel dauða, fyrir gáleysi. Sem betur fer virðist um-
ferðarmenning okkar íslendinga fara stórum vax-
andi, en alltaf er þó einn og einn maður, sem ekur
þannig, að slys geta hlotizt af. Við slíku þurfa aðrir
ávallt að gæta sín, hversu varlega sem þeir fara
sjálfir.
Þá er rétt að minnast á umgengni ferðafólksins,
þar sem það áir á ferðum sínum eða fer um. Það er
því miður of algengt, að fólk skilur eftir alls konar
rusl þar sem það stanzar til að borða. Oft lítur þannig
út á stöðum, sem að öðru leyti leyti eru sérstaklega
vel fallnir til áningar, að ógerlegt er að setjast þar
niður fyrir óþrifnaði, sem þeir er á undan komu, hafa
skilið þar eftir. Þetta er ómenning, sem allir íslend-
ingar ættu fyrir löngu að hafa lagt niður. Það er
skylda að urða allt rusl og matarleifar, sem fólk vill
losa sig við á slíkum stöðum. Raunar ætti að vera
óþarft að minna á þetta, en reynslan sannar samt,
að það er nauðsynlegt.
Sama er að segja um þann ósið margra, að fleygja
út um bílgluggann ýmiss konar drasli, á veginn eða
við vegarbrúnina. Þetta er óafsakanlegur sóðaskap-
ur, en því miður nokkuð almennur. Að sönnu þarf
ekki marga til að „setja svip sinn“ á umhverfið með
þessum hætti, en eftir þessu er heildin dæmd, t. d.
af útlendingum, sem hér koma og eru sumir undrun
slegnir yfir þessum óþrifnaði, þvi að slíkt þekkist
varla með öðrum siðmenntuðum þjóðum.
Þá eru og nokkur brögð að því, að óhlutvandir ferða
garpar vinni bein náttúruspjöll þar sem þeir koma.
Sú hætta er að sönnu minni þegar umferð er mikil.
Slíkir náungar verða þá að sitja á strák sínum, af
ótta við að til þeirra sjáist. En nauðsynlegt er að allir
ábyrgir menn reyni að hafa auga með þeim, þar sem
líkur geta verið til að þeir séu á ferð. — Verum öll sam-
taka um það á ferðum okkar, að saurga ekki fóstur-
jörðina.
V 1S IR . Laugardagur 5, ágúst 1967.
T? annsóknamefndin, sem John-
*■ son forseti sklpaði til þess
að rannsaka orsakir kynþátta-
óeirðanna, er byrjuð að starfa,
og hermdu fregnir, að fyrstu at-
huganir hefðu ekki leitt neitt í
ljós um samræmd samtök til
þess að koma af stað óeirðum,
heldur benti allt til, að fremur
smávægiieg atvik hefðu leitt til
þess, að upp úr sauð. En í fram-
haldsfregnum var sagt, að lög-
reglustjórarnir í Cincinnati og
Cambridge i Maryland hefðu bor
ið, að áróðursmanna hefði orðið
þar vart rétt áður en tii upp-
þota kom.
Vafalaust leiða „yfirheyrslur"
á fundum nefndarinnar til þess
að sitthvað komi í ljós um or-
sakimar, en fleira mun koma
fram annars staðar, sem bendir
til, að það kunni ag vera mjög
hæpið að álykta neitt um, að
„fremur smávægileg atvik" hafi
orsakað uppþotin. Rætumar
liggja djúpt eins og áður hefur
verið vikið að í fréttum og grein
um, og það er að minnsta kosti
sannað mál ag blökkumannaleið
togar eins og Rap Brown og
Stokely Carmichael hafa flutt
æsnigaræður, — ekki kveikt í
húsum sjálfir, en vafalaust
tendrað bál hefndarlöngunar í
hugum ungra blökkumanna.
55
Máttur gegn ofbeldi44
,Úf á götuna til Jbess að drepa hvita menn
Það er mikiö djúp staðfest
milli manna eins og dr. Martins
Luthers Kings og Carmichaels
til dæmis að taka. Dr. King vill
friðsamlega, menningarlega þró-
un, og er afstaða hans kunn af
ýmsum fréttum og greinum hér
í blaðinu fyrr og síðar, en hvem
ig náungi er þessi Carmichael?
ÞaÖ ætti að nægja til vitnis
um hugarfar hans, að hann sagði
í ræðu á ráðstefnu byltingar-
manna í Havana nú í vikunni:
„Blökkumenn í her Banda-
ríkjamanna í Vietnam koma
heim með reynslu og vel þjálfað
ir og mun það koma að góðum
notum, þegar farið verður út á
götur bandarískra borga til þess
að drepa hvíta menn“.
Eins og kunnugt er var Car-
michael á Bretlandi nýlega —
en hann fær ekki leyfi til þess
að koma þangað aftur. Til Kúbu
fór hann án vegabréfsáritunar í
Bandaríkjunum og verður vega-
bréfið tekið af honum, er hann
kemur heim.
Margir velta fyrir sér, hvort
fyrirskipanirnar um uppþotin
hafi verið sendar út frá ein-
hverri leynilegri miðstöð sam-
taka — og þá hvort aöalstjóm-
andinn sé enginn annar en Car-
michael, en hann er, eins og
segir í grein í Aftenposten í
Osló, formaður í „Studenf non-
violating coordination commit-
tee“, þ. e. formaður stúdentasam
taka til samræmdra aðgerða án
ofbeldis. Rap Brown er annar
forsprakki þesara samtaka, en
það eru þessi samtök sem flagga
meg það í heiti sínu, að þau
vinni áð markinu „án ofbeldis“,
og prédika um hiö „svarta
veldi“ í Bandaríkjunum.
„Enn virðast bandarísk stjóm
arvöld ekki gera ráð fyrir, aö
um miðstöð samtaka sé að ræða
í áðurnefndum tilgangi, en þau
gera sér ljóst hverjar afleiöing-
ar þaö hefur er áróðursmenn
þessara samtaka koma í heim-
sóknir í blökkumannahverfi
borganna, en enn sem komiö er
eru þessir menn talsmenn lítils
minnihluta, en hættulegs minni-
hluta, sem vill á einu bretti ná
fullum rétti blökkumönnum til
handa — með byltingu. í tyrstu
umferð er af hálfu bandarískra
stjórnarvalda og annarra yfir-
valda, ekki nema um eitt svar
að ræða, að beita mætti gegn
ofbeldi, — beita mættinum til
að bæla niöur uppþot og halda
öfgamönnum f skefjum, hvítum
ekki síður en blökkum, eða hvít-
um mönnum, sem kynnu að
vopnast til sjálfsvarnar gegn
mönnum hins „svarta veldis“.
Allra hluta vegna er nauðsyn-
legt fyrir stjómina, að hafa á-
fram gott samstarf við hægfara
blökkumenn í The National
Association for the Advance-
ment of the colourd People“,
þ. e. landssamtökin til aukins
þroska og velferðar hörunds-
dökkra manna. (Einkennisstafir
þessara samtaka eru NAACP)“.
Stjómmáladeilur hafa bland-
azt inn í umræður um þessi mál.
Romney ríkisstjóri í Michigan
hefur ásakað Johnson forseta
og stjórn hans fyrir að hafa
dregið óhæfilega að senda alrík-
ishermenn á vettvang. Þvi er
neitað í Washington. Þykja á-
sakanir og gagnásakanir minna
á, ag kosningar eru framundan
í Bandaríkjunum. Romney er
republikani og er oft nefndur
sem líklegur til þess að veröa
forsetaefni.
En það er þungur róöurinn
fyrir Johnson forseta, er hann
reynir að hindra að jafnréttis-
kæran fari fram af fossbrúninni
og niður í straumiðu borgara-
styrjaldar.
(Teikningin er eftir Mauldin
í Chicago Sun-Times, og undir
henni stendur: Gamli Johnson
(„Old man Johnson, sbr. Old
Man River) rær og rær ...).
A. Th.
Aðeins útvaldir komust að
Félag íslenzkra ieikritahöfunda
sendi nýlega frá sér mótmælaorð-
sendingu þar sem þeir töidu sig
hafa verið snigengna á norræna
leikstjómarnámskeiðinu, sem hald-
ið var hér i Reykjavík í maímánuði
s.l., en sem kunnugt er fluttu ýms-
ir heimsfrægir leikhúsmenn. leik-
stjórar, og leikritahöfundar fyrir
lestra á námskeiði þessu og um-
ræöur fóru fram.
Nú hefur blaðinu borizt athuga-
semd frá formanni og ritara undir-
búningsnefnda: norræna leikstjóm
arnámskeiðsins þeim Guðlaugi Rós
inkranz og Sveini Einarssyni, þar
sem segir:
Vegna mótmæla Félags islenzkra
leitritahöfunda út af norrænu leik-
stjórnarnámskeiði, sem haldið var
hér í vor og kennt er við bæinn
Vasa í Finnlandi, þykir rétt að taka
fram eftirfarandi:
í mótmælum félagsins gætir
grundvallar misskilnings á eðli
þessa námskeiðs. Hér var ekki um
að ræöa opinbert leikhúsþing, held
ur námskeið fyrir unga norræna
leikstjóra. Fjöldi þátttakenda var
mjög takmarkaður og þeir valdir úr
stórum hópi umsækjenda.
Undirbúningsnefnd námskeiðsins
hér fvlgdi öllum þeim reglum sem
gilt hafa á hinum Norðurlöndunum
um skipulaghinau þes'. Þó var
gerð sú undantekning, aö því leik-
húsfólki, sem þess óskaði var gel'-
inn kostur á að hlýöa á fyrirlestra
sem haldnir voru á námskeiöinu
Allmargir notfærðu sér þetta, þar á
meðal nokkrir leikritahöfundar.
Guðlaugur Rósinkranz formaður
undirbúningsnefndar.
Sveinn Einarsson ritari nefndar-
innar.