Vísir - 05.08.1967, Blaðsíða 10
10
VISIR . Laugardagur 5, ágúst 1967.
Tugþúsundir —
Pramti. a: 1 bls.
Anilir í bifreiða-
eftirliti
„Þetta hefur veriö með mestu
annadögum hjá eftirlitinu", sagði
forstöðumaður Bifreiðaeftirlits rík-
isins Gestur Ölafsson, við tíðinda-
mann Vísis í gær. „Við skoðuöum
í dag hátt á fjóröa hundraö bíla og
á tímabili var ösin svo mikil, að
við uröum að fá lögregluna til aö-
stoðar, til þess að greiöa fyrir um-
ferðinni hér í Borgartúninu, því að
öll umferö hafði nær stöðvazt
vegna þeirra, sem vildu komast
að meö bíla sína til skoðunar".
Þegar afgreiðslunni var lokað i
gærkvöldi kl. 5, var fjöldi bifreiða
sem beið afgreiðslu. Var ekki bú-
izt við aö lokiö yrði við afgreiðslu
þeirra, sem náð höfðu í númer fyr
ir lokun, fyrr en upp úr kl. 8 í
gærkvöldi. Sumir höfðu orðiö aö
bíða á annan klukkutíma eftir af-
greiðslu í gærdag.
Það unnu ýmist 5 eða 6 menn
við sjálfa skoðunina og 3 unnu í
afgreiðslunni. Ýmist voru þetta bíl
ar, sem komu í sína árlegu skoöun,
eða bílar, sem snúið hafði verið
við fyrir utan bæ. Auk þeirra var
fjöidinn allur, sem kom til þess
að láta skrá nýja bíla, eða um-
skrá gamla. Þrengslin í gærdag hjá
eftirlitinu í Borgartúni sýndu ljós
lega, hve þörfin fyrir rúmbetra
svæöi er orðin mikil fyrir starf-
semi eftirlitsins. Bílafjöldinn í bórg
inn hefur aukizt mikið síðustu árin
en afgreiðslan hjá eftirlitinu hefur
ekkert stækkað á þeim tíma.
Tjaldsamkomur við
Álftamýrarskóla
Lögregluþjónn þuklar utan poka
en skoðun var gerð á farangri
unglinganna áður en lagt var
upp, og bílar stöðvaðir t'yrir ut-
an borgina, flöskur gerðar upp-
tækar hjá unglingum. Mcnn frá
bifreiðaeftirliti voru og til stað-
ar og kom í ljós, að tvær rútur
voru án skoðunar.
Samband islenzkra kristniboös-
félaga — eða Kristrtiboðssamband
ið, eins og þaö er kallað í daglegu
tali — efnir til samkomuhalda í
tjaldinu, sem reist hefur verið við
Álftamýrarskóla, dagana 4.—12. ág.
Undanfarin fimm ár hefur Kristni
boðssambandiö haldið tjaldsamkom
ur í Reykjavík, á nokkrum stöðum
í bænum, fyrstu tvö árin við Holta
veg, næstu tvö árin við Breiðagerö
isskóla og síðast liðið ár við Álfta
mýrarskólann, og veröur tjaldið þar
einnig nú að þessu sinni. Samkom
ur verða á hverju kvöldi kl. 8,30.
Ræðumenn verða margir, bæði
prestar, kristniboðar og leikmenn.
Einnig verður mikill söngur og
hljóöfærasláttur. — Allir eru vel
komnir á samkomur þessar. — Sér
stakar barnasamkomur veröa í tjald
inu þriðjudaginn 8. ágúst og föstu
daginn 11. ágúst kl. 6 e.h.
Tónlistardcsgar —
Framh af bls. 16.
ólfsson, „Adagio“ eftir Jón Nordal,
„Þrír Davíðssálmar“ eftir Herbert
H. Ágústsson, sem Guðmundur
Jónsson syngur, „Sönglög" eftir
Fjölni Stefánsson, sem Hanna
Bjarnadóttir syngur, ,,Hlýmí“ eftir
Atla Heimi Sveinsson og „Rap-
sódía“ eftir Jón Ásgeirsson.
Þorvnldur Ari —
Framh ai bls. 16
sókn á dauða konu hans stóð yfir.
En fl st gögn bentu til þess, að
hann hefði banað konu sinni með
hnxfi. Var gerð á honum geðrann-
sókn, en niðurstaða hennar var á
þá leið, að lxann var talinn sak-
hæfur. Þorvaldur situr enn í gæzlu
varðl aldi.
í dómnum, sem fjalla mun um
mál Þorvalds Ara, eiga sæti þrír
menn, Þóröur Björnsson, yfirsaka-
dómari, sem verður dómsformaður,
Halldór Þorbjörnsson, saksóknari,
og Gunnlaugur Briem, sakadómari.
1000 krónur á lofti í Flugfélaginu, — ákafinn mikill eins og sjá
má ar> komast á pjóðhátíð.
Gera Bslendingar
Framh al ols. 9
nokkur fjöldi Gyðinga, og kom
þeim mjög vel saman við Arab-
ana, og ég held, að þeim hafi
hvergi liðið eins vel og einmitt ]
þar. F.f viturlegar heföi veriö j
haldið á málefnum Gyðinga eft j
ir lok síöari heimsstyrjaldarinn
ar heföi ef til vill verið unnt að
koma málum þannig fyrir, aö
unnt hefði verið að fjölga Gyð-
ingum í Palestínu án þess að
koma þyrfti til stofnunar sér-
staks ríkis, en um þetta er of
seint aö ræða nú og veröur ekki
aftur tekið.
En þú sagöir áöan, að Nass-
er sé friðarsinni. Kemur það j
ekki iila heim við það, að Nass-
er lét loka Akaba-flóanum fyr-
ir siglingum ísraelskra skipa og
það mætti ef til vill líta á það
bann sem stríðsyfirlýsingu?
Hefði Nasser ekki átt að beita
kænsku sinni og Iíta á.stofnun
Israelsríkis sem staðreynd (sem
það er) og láta ekki jafn ófrið-
lega og hann gerði síðustu daga
fyrir stríðið?
— Ég held, að meö því að
loka Akaba-flóanum hafi Nass
er ætlaö að neyða stórveldin
út í samninga um framtíöar
skipan mála við botn Miðjarðar-
hafsins. Ég hef heyrt hjá hátt-
settum embættismanni í utan-
ríkisráðuneytinu í Cairó, en viö
hann átti' ég tal í vetur, að Ar- j
abar gætu hugsað sér framtíð:
Ísraelsríkis áfram sem hluta
ríkjasamsteypu fyrir botni Mið- i
jarðarhafsins. Þingmannafjöldi
Araba og ísraelsmanna yröi í
samræmi við íbúafjölda Palest-
ínx og sama gilti um ráðherra
í ríkisstjórn Palestínu ,þeir vildu
sem sé stjórna meö ísraelsmönn
um. En til aö árangur næðist
í samningaviðræöum yrðu bæði
ríkin að setja sig í spor hvers
annars. Það held ég aö sé al-
gerlega nauðsynlegt.
Nú hafa ísraelsmenn lengi
hvatt til samningaviðræðna við
Egypta, en Egyptar og reyndar
aiiar Arabaþjóðirnar ekki sinnt
því. Hvað veldur?
— Ég mundi telja þaö óraun
hæft, að þjóðirnar settust að
samningaborðinu nú milliliða
laust. Aö ísraelsmenn vilji nú
beinar samningaumræður við
Araba, byggist á því, að ísraels
menn eru nú hernaöarlega sterk
ari aðilinn, náöu yfirtökunum í
styrjöldinni.
Hvaða þjóðir kæmu helzt til
greina sem milliíiðir i slíkum
samningaviðræðum?
— Ég held, aö þar veröi aö
vera um að ræða smáþjóöir,
eins og til dæmis íslendinga. Viö
höfum góð sambönd við ísraels
menn og lýst hefur verið yfir,
að íslendingar vilji koma á góð
um samböndum við Arabaríkin.
Það gæti því verið hugsanlegt,
að við gætum þreifað fyrir okk-
ur um þá möguleika, sem eru
fyrir hendi. Öll stórveldin og
flestar stórþjóðirnar hafa of mik
illa hagsmuna aö gæta, að ég tel
óhugsanlegt, að báðir aðilarnir
í deilunni gætu sætt sig við eitt
hvert þessara ríkja sem milli-
liði í væntanlegum samningavið
ræðum. Ef til vill er það lausn-
in, að viö íslendingar gerumst
sjálfboðaliðar í verki þessu, en
við sannreynum ekkert, nema
reynt sé, og viðbrögð deiluaö-
ila athuguð.
af.
Eldhúsið, sem allar
husmœður dreymir um
Hagkvœmni, stílfegurð
og vönduð vinna á öllu
Skipuleggjum og
gerum yður fast
verðtilboð.
iM m i rr Q T j
u m Q tj
3 m E snm
LAUGAVEQ 1 133 alml 117BS
ÞVOTTÁSIÖDIN
SUDURLANDSBRAUT
SIMI 381,23 QP.IÐ 8-22.30
SUNNUD -9 - ??
rissai
BORGIN
BELLA
Einu sinni var þaö lika mín
heitasta ósk að gerast bókavörö-
ur, þaö var bara þessi óskapa
þögn...
nureykjavík
1.-8.AG0ST1967
Laugardagur 5. ágúst.
10.00 Sameiginlegur fundur: ís-
lenzk menning, list og
menntarnál. Erindi flytur
Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra. Umræður og
fyrirspurnir að þv£ loknu.
12.00 Hádegisverður
14.00 Sameiginlegur fundur: Þátt-
takendum er gefinn kostur á
að leggja fvrirspurnir fyrir
leiðtoga stjórnmálaflokk-
anna og aðra forystumenn
í þjóðmálum, og munu þeir
flytja stutt ávörp.
19.00 Kvöldverður.
20.30 Dansleikur til kl. 02.00 í
Lídó. Skemmtiatriði.
Sunnudagur 6. ágúst
09.00 Farið í Borgarfjörð. í Reyk-
holti flytur prófessor Þórir
Kr. Þórðarson erindi um ís-
land og Norðurlönd fyrr og
nú.
22.00 Komið til Reykjavíkur.
Mánudagur 7. ágúst.
10.00 Sameiginlegur fundur: Agn-
ar Kl. Jónsson, ráðuneytis
stjóri flytur erindi um:
Utanríkisstefnu íslands og
afstöðu okkar til alþjóða-
mála. Fyrirspurnir. Þar
mæla einnig fulltrúar stjórn
málaflokkanna, og svara fyr
irspurnum auk fyrirlesara.
12.00 Hádegisverður.
14.00 Sameiginlegur fundur: Móts
slit: Ræða: Norræn sam-
vinna í framtíðinni. Þekktur
danskur stjórnmálamaðux
mun að líkindum flytjs
þá ræðu. Kveðjuræður.
20.00 Kveðjuhóf: Skemmtiatrif
og dans til kl 02.00.
I