Vísir - 05.08.1967, Page 13
13
V í SIR . Laugardagur 5. ágúst 1967.
..~.^a?a^aiag«»^upili*aaMEiwcg»8a .• wt-i
Rannsóknir í veiði-
-. Oll farartæki þurfa viðhalds meg og reiðhjól eru þar engin undantekning. Það er betra að hafa þau
>J í góðu lagi, áður en lagt er í langferð. Slöngur og dekk þurfa að vera þétt — ekki er gott að hjóla "I
Ij á vindlausu —• og allt, sem snýst, þarf að vera hjólliðugt. Smyrja allt, sem smurningar barf við, »JJ
1» herða skrúfur til þess að losna við skrölt og þá er allt klappað og klárt. Þetta getur hver strákur !■
jl gert sjálfur, eins og þeir Jónas Þorgeirsson, 10 ára (t. v.), og Rafn Hafsteinsson, 12 ára (t. h.), en J»
■I Rafn er hjóleigandinn. jl
Haidin verði ráðste'na um
skipulag heilbrigðismála
\ ðalfundur Læknafélags íslands
var haldinn í Reykjavík 27.—
29. júlí s.l., en samtímis var háð
læknaþing, eins og þegar hefur ver
ið getið um í fréttum.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
og ákvarðana um innanfélagsmál
bar hátt á aðalfundi þessum umræö
ur um stjórnun og skipan heilbrigð
ismála í landinu.
Það var almenn og ákveöin skoö
un fundarins, að mikil hætta væri
á ferðum, ef framþróun og skipu-
lagning heilbrigðismála drægist
meira afturúr, en orðið er, og kom
fram ákveðinn vilji aðalfundarins
í þá átt, að félagssamtök lækna i
landinu geri allt sem í þeirra valdi
stendur til þess að stuðla að eðli-
legri framþróun.
Fundurinn taldi einnig, að mikla i
áherzlu bæri að leggja á fræðslu al- |
mennings um þessi málefni, sem að :
óveröskulduðu hafa fallið í skugg- |
ann fyrir ýmsum öðrum málum, er j
læknastéttin telur, að heföu þolaö I
bið.
Á fundinum var lögð fram grein
argerð frá stjórn Læknafélags ís- :
lands um nauðsynlegar grundvallar j
rannsóknir vegna heildarskipulags ;
heilbrigðismála og mun hún verða j
lögð fyrir heilbrigðisyfirvöld sem |
viðræöugrundvöllur um nauðsyn- i
’egan undirbúning að þessu mikla 1
og óumflýjanlega þjóðfélagsmáli. 1
Auk ábendinga um undirstöðu
rannsóknir er þar lögð áherzla
á nauðsyn endurskoðunar á yfir-
stjórn heilbrigðismála, menntun-
ar og nýliðunar starfsliðs til heil-
brigðisþjónustu og samhæfingar í
stjórn og rekstri allra þátta heil-
brigðismála.
Fundurinn fól stjórn L.í. að vinna
að því að heilbrigðisstjórn landsins
hefji sem fyrst framkvæmdir þeirra
grundvallarrannsókna, sem lagt
var til að gerðar yrðu.
1 framhaldi umræðna um þessi
mál samþykkti fundurinn tillögu
þess efnis, að Læknafélag íslands
beiti sér fyrir því, að hið fyrsta
verði haldin ráðstefna um skipu-
lag heilbrigðismála, og mun félagið
leita samvinnu um framkvæmdir
slíkrar ráðstefnu við heilbrigðis-
málaráðherra, landlækni .Alþingi,
sýslu- og sveitafélög .Samband
sjúkrahúsaeigenda og fleiri sam-
bærilega aöila.
Nýkjörna stjórn Læknafélags Is-
lands skipa læknarnir:
Arinbjörn Kolbeinsson, form.,
Friðrik Sveinsson, ritari,
Ásmundur Brekkan, gjaldkeri.
og i varasjórn:
Helgi Valdimarsson,
Stefán Bogason,
Örn Bjarnason.
Á læknaþingi var, eins og getið
hefur yerið, haldin ráðstefna um
hagnýta greiningu, meðferð og vís
indarannnsóknir á sjúkdómum í
<■’ ialdkirtli.
Voru þar flutt mörg og merk
erindi erlendra og innlendra vís-
indamanna, í tvo daga, og telur
stjórn L.I., að árangur af ráðstefnu
þessari hafi verið mikill og þýð-
; ingarmiklar niðurstöður þar birtar
j islenzkum læknum, en meðal merk
ustu erinda má telja erindi Þor-
valds Veigars Guðmundssonar, um
rannsóknir hans á eðli og eigindum
: kalkvaka í skjaldkirtli og kölkun-
j um, ennfremur rannsóknir Dr.
Crooks frá Aberdeen á notkun
: tölvutækni við upplýsingasöfnun,
greiningu og meðferðarákvarðanir,
| sem beitt hefur verið með góðum
; árangri við skjaldkirtilssjúkdóma.
j Tækni þessi á eflaust eftir að gjör-
i breyta öllum starfsaðferðum við
j sjúkdómsgreiningu og meðferðará-
kvarðanir.
Þá fluttu þeir prófessor I. Doni-
i ach og Dr. El. Williams frá Lond-
' on gagnmerk erindi um krabba-
; mein í skjaldkirtli og áhrif géisl-
i unar á skjaldkirtil, með tilliti til
myndunar krabbameins í því líf-
! færi.
Loks-fóru fram umræður um rann-
sóknir, sem gerðar hafa verið og
eru í framkvæmd hérlendis með
samvinnu innlendra og útlendra
vísindamanna.
Meðal annars var þá birtur hluti
niðurstaðna á hóprannsóknum þeim
á skjaldkirtilsstarfsemi vanfærra
kvenna, sem gerð var i Reykjavík
fyrir rúmu ári síðan. Hafa þessar
niðurstöður vakið mikla athygli er-
lendra fræðimanna, en þessi rann
sókn sýnir m.a. hve mikið íslend-
ingar geta lagt af mörkum til vís-
indaiðkana, í mörgum greinum í
góðri samvinnu við erlenda aðila.
Jónsmessu kom grein í heiðr-
uðu blaði yðar, með þessari
fyrirsögn. Þar kom fram, að í ráði
sé að Hafrannsöknarstofnunin á
þessu sumri, sjái um rannsókn á
hinu mjög svo aðkallandi vanda-
máli með sökkhraða hringnóta og
hvernig þær komist á sem dýpst
vatn. Geri línurit, sem sýni dýpi i
hlutfalli við tímann og komast að
niðurstöðu um hvenær á að snurpa.
Um þetta er ekki nema gott að
segja. Viljinn er fyrir hendi og lít-
ill vafi á því að menn geta fengið
nokkurn veginn rétta útkomu með
þessum mælingum. En svona uppá-
stungur eða hugdettur virðast mér
einnig sýna hið algjöra þekkingar-
Ieysi í neti.
Ég hefi í nokkur ár við og við
verið að senda bréf í Sjómanna-
blaðið Víkinginn og reynt aö sann-
færa einhvern eða einhverja um að
fagleg netagerð er ekki til, vegna
þess að enginn reikningur hefur
verið til, sem getur reiknað netflöt
af fullri nákvæmni.
Þar hef ég einnig talað lítils hátt-
ar um snurpunótagerð og 1964 kom
ég með dæmi um, hvemig reiknuð
er ein feralin í neti og valdi möskva
stærðina 40 leggir á alin, svo neta-
gerðarmenn gætu athugað hver
munurinn er á gildandi innsetningu
á neti í snurpunætur og svo það
sem ég segi rétt.
Ég fékk eftirþanka af þvf, að eig-
inlega er þetta tilvalið tækifæri til
þess að sanna þessa vöntun í neta-
gerð.
Fyrir 6 árum fékk ég upp gefið
hjá netagerðarmeistara hvernig net
er sett í snurpunætur og sagði
hann'að net með möskvastærð 44
leggir á alin væru 36 möskvar á
alin í miðnótinni 31 möskvi á alin
báðum megin miðju og svo 28
möskvar á alin til endanna.
Þetta er svo nærri réttu lagi, að
31 möskvi á alin er rétt. Nú langar
mig til þess að biðja yður að koma
á framfæri hvernig rétt gerð snurpu
nöt hagar sér eftir köstun.
Við segjum nótina 100 faðma
djúp eftir gildandi uppgjöf á dýpt
nóta. Netið í nótinni hefur litla
sem enga þyngd í sjó og sumt efni
flýtur, þar af leiðandi liggja flár
nótanna eins og lausar og boppa á
yfirborði sjávar eftir köstun, með-
an blýteinninn sekkur og dregur
netið með sér og greiðir úr því. Ef
nótin fer greið út og snurpulínan
vel slök, þá sekkur blýteinninn
hindrunarlaust niður á 70 fðm.
dýpi rúml.
Á því dýpi eru allir möskvar
fullopnir milli teina og netflötur-
inn það mestur sem hann getur orð-
ið og um leið á 71 fðm. dýpi fell-
ur blýteinninn af fullum þunga í
láatein.
Þetta kalla ég að nót sé fullsokk-
in eftir köstun.
Þess gætir strax á fláateini þeg-
ar virkt samband verður milli teina
að flámar eru ekki eins léttar á
hafinu og þær voru.
Ef ekkert er að gert, heldur blý-
teinninn áfram að sökkva og dreg-
ur möskvana saman og þess gætir
strax á fláateini því hann slaknar
og þegar blýteinninn er kominn á
75 til 80 fðm. dýpi er fláateinninn
farinn að liggja í fellingum.
Þetta er augljóst og þarf ekki
annað en smáþekkingu á neti og
réttan reikning til þess að fá þessa
útkomu og svona upplýsingar koma
til með að fylgja öllum nótum út
af verkstæði, þegar netagerð verð-
ur fagvinna. Þar eð skip eru með
mismunandi djúpar nætur, geta
menn hæglega reiknað út dýpi þess
hluta nótanna sem hafa 31 möskva
á alin, með því að 7/10 af uppgef-
inni dýpt nótanna er það sem blý-
teinninn getur sokkið áður en virkt
samband kemur á milli teina.
Skipstjórar geta hver hjá sér at-
hugað þetta og eftir lítinn tíma geta
þeir lesið á fláateininn eins og opna
bók stöðu nótarinnar í hafinu eftir
köstun.
En það er annað, sem er óljóst
og aðkallandi að kanna, og það er
hvað blýteinninn er kominn hátt
upp í sjó þegar nótin lokast í botn-
inn með mismunandi hraðri snurp-
un.
Með þökk fyrir birtinguna.
Rvík, 22/7 1967
Sigfús Magnússon.
A MYfSiDUNUM:
m riansandi
SPRENGINGAR GRÖFTUR
I
ÁMOKSTUR JÖFNUN LÓÐA
VANIR MENN
NÝTÆKl
TRAKTORSGROFUR
TRAKTORSPRESSUR
LOFTPRESSUR