Vísir - 05.08.1967, Blaðsíða 16
Sjáðu! Svona :■
í hoppa ég upp ;!
og niður"
■■ :■
J. I>aö er létt yfir honum Haf-.J
■Jsteini litla, þar sem hann hoppV
!■ ar um á kengúruprikinu, sem\
J. pabbi hans, Haukur R. Hauks-íj
■JJson hjú „Fáfni“ gaf honum. JJ.
I“Upp og niður hoppaði hann.JJ
J. fram og aftur hjá Tjörninni..1
•JJPabbi hans hafði kennt honum, J.
I* hvernig krakkarnir í Ameríku%
■.leika sér á svona prikum. Þauí"
•■hafa í fjöldamörg ár verið vin J.
J. sælt leikfaiig þar, en einhverra^JJ
*í hluta vegna aldrei borizt liingaö !■
!j fyrr. ’I
m
FINNARNIR SÝNDU MESTAN
ÁHUGA Á FISKINUM!
Fulltrúar norræna* æskulýðsmótsins heimsóttu fiskiðju-
ver, bóndabæ, banka, skóla og sjúkrahús i gær
□ í gærdag fóru fulltrúar á
norræna æskulýðsmótinu í
heimsóknir á ýmsa staði í
Reykjavík, skóla, sjúkrahús,
banka, fiskiðjuver og einnig
heimsóttu þeir Blikastaði í
Mosfellssveit. Fór einn hópur
á hvern stað, og völdu full-
trúarnir-sér þann stað, sem
þeir höfðu mestan áhuga á.
□ Fiskiðjuverið, sem var
heimsótt, var „ísbjörninn“ á
Seltjarnarnesi og var ekið
þangað í stórri áætlunarbif-
reið, Ekki gátum við betur
séð en að Finnar væru í mikl-
um meirihluta í þessum hópi,
en nokkuð bar þó á Svíum
og Dönum.
Þótti okkur kynlegt, að af
fiskiþjóðunum Norðmönnum og
Færeyingum virtist enginn vera,
Var fiskiðjuverið skoðað hátt og
lágt, og báru margir úr hópnum
myndavélar og mynduðu óspart.
Kvenfólkið öslaði ósmeykt inn-
an um fiskbala og trog og sá
um við meira að segja á eftir
nokkrum inn í frystiklefann.
Eina stúlku hittum við þarna í
portinu og tókum hana tali. Hún
kvaðst vera kennari í Turku í
Finnlandi, og heita Ritva Suom
inen og rómaði hún mjög hina
íslenzku náttúrufegurð og sagð
ist hlakka ákaflega til að fara
upp í Borgarfjörð, en þangað fer
hópurinn á sunnudag. Ritva býr
í Hagaskóla og harmaði hún
mjög að hafa ekki getað búið
með íslendingum, en kvaðst von
ast til aö hún ætti eftir aö kynn
ast fleiri íslendingum fyrir
þriðjudaginn, en þá flýgur hún
til Finnlands.
Norrænir fulltrúar æskulýðsins skoða ísbjörninn í gær.
Mdl Þorvulds
Aru tekið fyrir
25. ágúst
Ákveðið hefur verið, að mál það,
sem ákæruvaldið hefur höfðað gegn
Þorvaldi Ara Arasyni, verði tekið
fyrir 25. ágúst n.k., en ekki nú um
mánaðamótin, eins og ráðgert
hafði verið. Er þessi þriggja vikna
' estur veittur vegna beiðni verj-
anda Þorvalds, Gunnar A. Páls-
sonar hrl.
Málsókn var hafin gegn Þor"
valdi Ara 19. maí s.l., þegar ákæra
■.r gefin út á hendur honum. Er
hann ákærður um brot á 211. gr.
hegningarlaganna, sem hljóðar svo:
Hver, sem sviptir annan mann
’-'H. skal sæta fangelsi ekki skem-
<r en 5 ár, eða ævilangt".
Þorvaldur Ari hefur setið í gæzlu
ang,. Isi allan timann, meðan rann-
Framhald á bls. 10.
Sfðan 1947 hefur Tónlistarhátíð
Norðurlanda eða „norrænir tónlist-
ardagar” verið haldnir reglulega í
höfuðborgum Norðurlanda. Þessi
tónlistarhátíð var haldin í Reykja-
vik í júní 1954 og nú er röðin aft-
ur komin aö Reykjavík. Tónlistar-
hátíð Norðurlanda verður haldin
dagana 17. til 23. september n.k.
Dómnefnd með fulltrúum frá öll- j
um Norðurlöndúm valdi tónverk i
þau, sem flutt veröa á fjórum tón- í
leikum. Auk þess verður hátíðar-
sýning í Þjóðleikhúsinu á leikrit-
inu „Galdra Loftur“ með tónlist:
eftir Jón Leifs. Stjórnandi verður
Páll P. Pálsson.
Ríkisútvarpið og Sinfóníuhljóm-1
sveitin hafa tekið að sér fram-
kvæmd hátíöarinnar, og bjóða upp
á sérstakan íslenzkan hljómsveitar-
tónleik í hátíðarvikunni. Þar er
ætlunin að gefa yfirlit yfir íslenzkar
hljómsveitartónsmíðar eftir tón-
skáld á öllum aldri.
Svo sem áður er sagt, valdi nor-
ræn dömnefnd verkin á fjóra tón-
leika. Tveir tónleikanna veröa
hljómsveitartónleikar, sem Sinfóníu
hljómsveit íslands flytur, en tveir
verða kammertónleikar, sem Mus-
ica nova sér um. Stjórnandi hljóm-
sveitartónleikanna verður Bohdan
Wodiczko.
Dagskrá hátíöarinnar verður sem
hér segir.
Sunnudaginn 17, september há-
tíðarsýning í Þjóðleikhúsinu,
„Galdra Loftur" með tónlist eftir
Jón Leifs.
Mánudaginn 18. september kamm
ertónleikar í umsjá Musica nova.
Þar veröur flutt „Hringspil” eftir
Pál P. Pálsson, kórverk eftir Bjarne
Slögedal, Vagn Holmboe og Jón
Leifs, „Elegía“ eftir Tor Brevik,
píanótónsmíðin „Gaffkys” eftir
Gunnar Berg og blásaraoktett eftir
Rautavaara.
Þriðjudaginn 19. september verða
hljómsveitartónleikar. Flutt verða
..Serenade" eftir Björn Fongaard,
„Píanókonsert" eftir Hermann
Koppel, en þar mun höfundur sjálf-
ur leika einleik og „Sinfónía nr. 2“
eftir Osmo Lindeman.
Fimmtudaginn 21. september
verða aðrir kammertónleikar. Þar
leikur kvartett undir forustu Björns
Ólafssonar strokkvartetta eftir
Deák, Rydman, Werle. og Salmen-
haara. Önnur verk veröa „Suoni“
eftir Hermanson, „Risposte 1“ eft-
ir Naumann og „Magnificat" eftir
Hovland.
Föstúdaginn 22. september veröa
síðari hljómsveitartónleikarnir. Þar
verður flutt „Mutanza" eftir Lid-
holm, „Sinfónía” eftir Kokkonen,
„Respons” eftir Nordheim. Guðrún
Tómasdóttir mun syngja einsöng í
„A L’inconnu” eftir Rovsing-Olsen
og Ruth Little Magnússon í „Herbst
tag“ eftir Borup-Jörgensen, en tón-
leikunum lýkur með sinfóníu Leifs
Þórarinssonar.
Á tónleikunum, sem Sinfóníu-
hljómsveitin og Ríkisútvarpið halda
miðvikudaginn 20. september, verð-
ur flutt „Passacaglia” eftir Pál ís-
Framhald á bls. 10
Ritva Suominen —
kaus að skoða fiskiðnaðinn.
Norrænir ténlistardogar
í Reykjavik í september
HAFIN BYGSING RAUNVÍSINDA
DEILDAR MA
- 6500 rúmmetra hús á oð fullgera fyr-
ir 21.5 milljónir króna á tveimur árum
Fyrir skömmu voru undirrit-
aðir samningar við la> Újjóð-
endur i byggingu raunvisinda-
deildar Menntaskólans á Akur-
eyri, en beir voru Smári hf. og
Aðalgeir og -Viðar hf. sem buðu
sameiginlega í framkvæmdir.
Umsamið verð fyrir bygginguna
fullgerða er kr 21.514.000
Blaðið náði tali af fram-
kvæmdastjóra Smára h.f., Þór
Pálssyni, og skýrði hann frá þvi
að byggingin yrði á þreni hæð-
um, alls 6500 rúnimetrar, og
' ætti hún að verða fullgerð fyrir
1. ágúst 1969.
Þór kvað framkvæmdir þegar
vera hafnar og búið væri að
grafa upp byggingarstæðið. Þá
sagði hann að þarna yrði unnið
sleitulaust og yrðu 15-20 menn
að verki, auk bess, að unnið yrði
á trésmíðaverkstæðum beggja
fyrirtækjanna að ýmsu í þessu
sambandi.
í sambandi við bessa nýbygg
ingu MA má geta bess, að búið
er að skipuleggja í stórum drátt
um framtíðaruppbyggingu skól-
ans, sem gert er ráð fyrir að
stækki jafnt og bétt framvegis
eins og að undanförnu. Líklega
veröur næsta skrefið að byggja
íþróttahús, þar sem einnig á aö
vera samkomusalur skólans, en
|)ví næst er trúlegt að komi að
byggingu skólahúss í stað bess,
sem nú er og er kómið til ára
sinna.