Vísir - 07.10.1967, Síða 2
\1
V I S IR . Laugardagur 7. október 1967.
TOM JONES:
Oskin
Nú lítur Tom Jones öðrum aug-
um á lífið, en þegar hann söng
á gamalli verkamannabúllu fyrir
sultarkaup.
„Nú gerast hlutirnir svo hratt,
að ég get ekki einu sinni fylgzt
með, hvað ég græði mikið“, segir
hann skælbrosandi og ræöur varla
við sjálfan sig fyrir kæti.
„Ég veit bara, að ég græði
miklu meira en áður fyrr. Alveg
æðislegar upphæöir".
Hljómar gerðu
fróbæra upptöku
í London.
I útvarpsþættinum Á NÓTUM
Æ .KUNNAR heyrðist fyrir nokkru
síðan lag eitt af hljómplötu, sem
væntanleg er meö HLJÓMUM. —
Þetta er tólf laga hljómplata, sem
hljóðrituð var f stereo í einu full-
komnasts hlióðritunar„stúdíó“ i
London.
HLJÓMAR unnu að bessari plötu
i allt sumar og fóru svo utan í
byrjun september og tók hljóðrit-
unin brjá daga.
Platan er væntanleg i byrjun
nóvember og getum við hennar nán
ar, þegar þar aö kemur.
£n þetta skeði ekki allt á einni
nóttu. Eftir margar misheppnað-
ar tilraunir til að verða vinsæll
söngvari, fór hann til London, þar
sem hann sló I gegn með laginu
„It’s not usual".
„Mig langaði til að veröa söng-
stjarna. Ég hélt ég gæti það.
Þegar fyrsta platan mín brást,
var ég ekki viss. Hlutirnir skeðu
ekki nærri eins auðveldlega og
ég hafði óskaö mér. Samt var
þaö þess virði að gefast ekki upp“.
Og Tom Jones heldur áfram:
„Nú get ég látiö pabba hætta
að vinna í námunni — og hann
þarf aldrei framar að gera annað
en það sem hann langar mest
til í þaö og það skiptið.
Þaö er dálítið skrýtið, en nú
viröist svo margt fólk þekkja
mann. Ég var alveg undrandi á
þessu fyrst stað. vegna þess, að
ég bjóst ekki viö þessu. Ég sat
inni á bjórkrá skammt frá Covent
Garden ekki alls fyrir löngu.
Þetta var á mánudegi — og þaö
voru svo margir sem keyptu
drykk handa mér, að það var
alveg brjálæði. Ég hafði aldrei
á ævi minni séð þetta fólk áður,
en samt var það alltaf að kaupa
glas og glas handa mér — sagðist
hafa séð mig í sjónvarpinu. Ég
efast um að fólk sé svona indælt
í heimabæ mínum.
Eitt finnst mér alltaf jafn skrýt-
ið. Það er að geta heyrt sjálfan
sig syngja í útvarpinu — eða
hvar sem er. Það fylgir því mjög
góð tilfinning.
Ég ætla að halda þessu áfram
miklu lengur. Ég er ekki spennt-
ur fyrir því að vinna fyrir svo og
svo miklum stafla af peningum
og hætta svo að syngja. Ég myndi
halda þessu áfram, þó svo að allar
plöturnar mínar misheppnuð-
ust. Þetta er vinna við mitt
hæfi, en ég vil endilega að fólk
meti mig að verðleikum, sem
söngvara — og ég vil líka syngja
þau lög, sem mér finnst falleg.
Mig langar ekkert til að vera
með eilífar áhyggjur út af því,
hvort fólki líki það sem ég er
að gera eða ekki. Sumir söngv-
arar syngja lög, sem þeim lízt
ekkert á, vegna þess að þau eru
líkleg til að seljast. Þetta finnst
mér alveg út í hött“.
— Hvað með sviðsframkomuna.
— Af hverju allar þessar arm-
sveiflur?
„Maður verður að hreyfa sig
mikið á senunni. Því meira sem
maður hreyfir sig, því betur und-
irstrikar maður það, sem maður
er að syngja um. Persónulega
held ég að þetta hafi mikið að
segja“.
Tom Jones eykur nú óðum vin-
sældir sínar, bæði meðal táninga
og fullorðinna. Lögin „Green,
Green Grass óf' Home“ og „I
Will Never Fall In Love Again“
hafa skapað honum enn meiri vin-
sældir, og má eflaust með sanni
segja að hann sé vinsælasti söngv-
ari Bretlands nú í dag, og þótt
víðar væri leitað.
ðf BÍLAR
Seljum I dag og á morg-
un, laugardag, úrval af
vel með förnum notuðum
evrópskum bílum. Hag-
stæð kjör og greiöslu-
skilmálar.
Taunus ’65
Consul Cortina ’65
Opel Rekord ’64
DKW ’65 og ’63
Triumph ’64
Opel Caravan ’62
Opel Rekord ’62
Chrysler- Hringbraui 121
umboðið simi 106 00
~k Fréttir bárust um það í vikunni,
að lögreglustjórinn í Sanaa í Yemen
hefði verið dæmdur til lífláts. —
Stjómarkreppa er þar og honum
kennt um manntjón, sem varð, er
skotiö var á fólk sem var á mót-
mælafundi, en slíkir fundir hafa
nú verið bannaðir.
ic Blaðið A1 Ahram i Kairo (mál-
pípa Nassers) segir að egypzka
herliðið i Sanaa (höfuðstað lýðveld-
isstjómarinnar í Yemen) verði flutt
þaðan næstu 10—12 daga, — en
blaðið gefur í skyn, að það verði
sent þangað aftur, ef lýðveldis-
stjórnin óski þess, eins og skylt
sé, samkvæmt gildandi vamarsátt-
mála milli landanna.
★ U Thant framkvæmdastjóri S.p.
hefir fengið bréf bæði frá rflds-
stjóm Israels og ríkisstjórn Sýr-
lands. — Ríkisstjóm ísraels segir,
þjálfaða hermdarverkamenn frá
Sýrlandi hafa verið senda inn I
Israel til undirróðurs og hermdar-
verka, en stjóm Sýrlands sakar ísr-
ael um að koma upp Gyðinganý-
lendum á hertekna, sýrlenzka land-
svæðinu.
★ Samveldisnefnd, sem fylgzt hef-
ur með þjóðaratkvæðagreiðslunni í
Gíbraltar, hefir lýst yfir, að hún
hafi I öllu farið heiðarlega fram. I
nefndinni áttu sæti menn frá Pak-
istan, Nýja Sjálandi og Jamaica.
ic Sagt var í gær frá nýjum árás-
um á Norður-Vietnam, m. a. á brú
í miöri Haiphong. í fréttum frá
Saigon er ekki sagt frá flugvéla-
tjóni, en útvarpið í Hanoi segir, að
6 flugvélar hafi verig skotnar nið-
ur.
ic Brezki ambassadorinn 1 París
ræddi í gær við de Gaulle forseta.
Engin tilkynning var birt eftir fund
þeirra.
•k Lester Pearson forsætisráðherra
Kanada hefir lýst yfir, að hann sé
mótfallinn öllum ráðageröum um
aukin not kjamorkuvopna til varna
og komi tillöigur í því efni fyrir
ráðherrafund NATO, greiði Kan-
ada atkvæöi gegn þeim.
~k Nýlega var sagt i fréttum frá
viðræðum um að Tyrkland fengi
kjamorkujarðsprengjur til þess að
leggja í jörðu í fjallaskörðum, til
varna, ef til þess kæmi að innrás
yrði gerð í landið.
★ Robert McNamara hefir frá
mánudegi í næstu viku að telja,
frestað framkvænid allra hemaðar-
legra samninga, nema þeirra, sem.
varða Vietnam-styrjöldina. — Af
þessu leiðir að bygging hermanna-
skála í Bandaríkjunum stöðvast
svo og framkvæmdir við önnur
hemaðarleg mannvirki o. fl„ og er
þetta gert vegna óvissunnar um,
hvaða fé sambandsstjórnin fær
heimild til að verja til slíks.
★ Bandaríkjastjórn hefir miklar á-
hyggjur af því, að Frakkar hafa
selt til Perú herþotur, sem fljúga
með margföldum hraða hljóðsins,
hinar fyrstu, sem seldar hafa verið
til Suður-Ameríku. Óttast hún, aö
salan leiöi til vígbúnaðarkapp-
hlaups í álfunni. Hún hefir áður
lagzt gegn því, að brezkar herþot-
ur væru seldar til Suöur-Ameríku.
Einnig hefur frétzt, aö Frakkland
eigi í samningum um sölu á 50
skriðdrekum til Argentínu.