Vísir - 07.10.1967, Síða 3
V1SIR . Laugardagur 7. október 1967.
Nýútskrifaðir leiknemar
hefja sýningar í Lindarbæ
A LITLA SVIÐINU í Lindar-
bæ eru nú aö hefjast sýningar á
tveimur einþáttungum. Báðir
Yfirborðiö. Frá vinstri: Margrét Helga Jóhannesdóttir sem Hetty, Auöur Guömundsdóttir sem Harriet, Anna Guðmundsdóttir, Marg-
aret, og Guörún Guðlaugsdóttir sem Maggie.
I
s
\
I
t
I
I
I
I
eru þeir eftir bandaríska höf-
unda, en gjörólíkir aö efni:
YFIRHORÐIÐ, samiö 1913 af
skáldkonunni Alice Gerstenberg,
og sem kom fram á sjónarsvið
bandarískrar leikritunar fyrir
fyrra stríö og DAUÐI BESSIE
SMITH, eftir Edward Albee,
sem nú er eitt kunnasta leik-
skáld Bandaríkjanná. En upp-
tökin að samningu þessa þáttar
eru atvikin kringum dauöa þess-
arar frægu negrasöngkonu, áriö
1937. Leikurinn er hins vegar
saminn 1959 og hefur veriö sýnd
ur víöa.
Meö þessum verkefnum hefur
nýr leikflokkur feril sinn, „Leik-
flokkur litla sviösins“. — Þar
eru á ferðinni tíu ungir leikarar
sem útskrifuðust úr Leiklistar-
skóla Þjóðleikhússins í vor.
Þessir þættir voru prófverk-
efni nemendanna í vor og er
það nýmæli að leikskólanemar
æfi þannig heil verk til prófs.
Prófsýningin í vor þótti tak-
ast vel og hefur það nú æxlazt
svo að nemendurnir hafa stofn-
að meö sér sjálfstæðan leikflokk
og Þjóöleikhúsið lánar þeim
sviðiö i Lindarbæ til afnota.
Kevin Palmer hefur leiðbeint
lcikurunum viö uppsctninguna
og veröa þættirnir frumsýndir
á fimmtudaginn.
Margrét Jónsdóttir hefur
þýtt Dauöa Bessie Smith, en
Siguröur Skúlason annaðist þýö-
ingu á Yfirboröinu.
Búningateikningar fyrir Yfir-
boröið annaðist Una Collins, en
varðandi leikmynd segir leik-
stjórinn í efnisskrá:
„Sýningunum er meö vilja
þannig hagað aö þar sé sem
minnst af leikmunum, leiktjöld-
um og þvi um líku, meö þaö
fyrir augum aö nemendumir
Sviösmynd úr „Dauða Bessie Smith“: Jónfna Jónsdóttir, hjúkrunarkonan, Hákon Waage sem Jack,
Siguröur Skúlason sem Bemie og Jón Gunnarsson sem hjúkrunarliðinh.
og gestirnir neyti ímyndunar-
afls eftir tilfellum.“
Leikflokkurinn hefur samiö
við Þjóðleikhúsið um afnot af
Tjamarbæ fram til 1. febrúar og
hefur leikflokkurinn þegar valiö
sér annað verkefni, Billy lygari,
eftir Keat Waterhouse og Willy
Hall. Mun Eyvindur Erlendsson
setja Billy lygara upp með
flokknum einhvem tíma fyrir
jólin.
Ef vel gengur verður samn-
ingurlnn við Þjóðleikhúsiö um
afnot af litla sviðinu framlengd-
ur og ef tll vill fleirl verkefnl
tekin tU meöferðar.
Stjóm leikflokksins skipa:
Hákon Waage, Jónína Jónsdóttir
og Siguröur Skúlason, en auk
þeirra skipa flokkinn: Auður
Guömundsdóttir, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Anna Guömunds-
dóttir, Guörún Guölaugsdóttir,
Sigrún Björnsdóttir, Jón Gunn-
arsson og Ketill Larsen.
Flestir leikendanna hafa komið
fram áður í leikritum Þjóöleik-
hússins, en glíma nú í fyrsta
sinni viö meiri háttar hlutverk.
Siguröur, Jón og Hákon £ hlutverkum sínum,