Vísir - 07.10.1967, Qupperneq 16
VISTR
Laugardagur 7. október 1967.
Forsætisráðherrafund
urinn hefst í dag
Dr. Ripley
1 dag hefst fundur forsætisráö
herra Norðurlandanna að Hótel
Sögu. Búizt er við að ráðherrarnir
ræði meðal annars Loftleiðamálið,
, en önnur mál á dagskrá fundarins
eru sameiginleg efnahagsmál Norð
urlanda og aðild Færeyja að Norö
urlandaráði. Mun sérstök nefnd
ræða aðild Færeyja á meöan á for-
sætisráðherrafundinum stendur og
mun Gunnar G. Schram, ráðunaut
ur í utanríkisráðuneytinu sitja þá
nefnd af íslands hálfu.
Forsætisráðherrar Finnlands,
Danmerkur og Noregs komu til
landsins með þotu Flugfélagsins
í nótt, en búizt var við forsætis-
ráðherra Svía Tage Erlander til
landsins klukkan 2.10 e. h. í dag.
Ráðherrafundurinn heldur áfram
á morgun.
RANNSAKAR FUGLALIF í
SURTSEY OG ÁINDLANDI
Forstjóri Smitsonian-stofnunarinnar i boði Islenzk-
ameriska félagsins hér — Hann hefur veitt styrki
til Skaftafells og Surtseyjarrannsókna
Dr. Dillon Ripley, forstjóri
hinnar frægu bandarísku vís-
indastofnunar Smithsonian Inst-
tution i Washington, er stadd-
■r hér í Reykjavík, ásamt konu
sinni, í boði Islenzk-ameríska fé-
lagsins, og hélt hann ræðu í
gærkvöldi á árshátíð félagsins
að Hótel Sögu, í tilefni dags
Leifs Eiríkssonar.
»••••••••••••••••••
| „Þeir kölluðu mig
skrýtna stýrimanninn '
— stutt viðtal við Svein Björnsson, listmálara
sem opnar málverkasýningu i Bogasalnum i dag
— Hefurðu í raun og veru séö
huldufólk Sveinn?
— Já, ég er alinn upp á Langa
nesi og þar er mikið af huldu-
fólki.
— Hvernig lítur það út. Er
það eins og venjulegt fólk?
— Það er bláklætt. Svo mundi
ég segja að það væri ekki eins
efniskennt og við erum.
— Og þú málar þetta fólk?
— Ég reyni að ná þeim áhrif
um f málverkið sem þetta fólk
hefur á mig. Það hefur haft mik-
il áhrif á mig.
— Þú byrjaðir ekki þinn mál-
araferil á því að mála huldu-
fólk?
—Nei. Ég byrjaði minn mál-
araferil þegar ég var á sjónum.
Þá var ég stýrimaður á togara
frá Hafnarfirði og málaði í frí-
stundum. Þeir kölluðu mig
skrýtna stýrimanninn.
— Og síðan?
— Og síðan hef ég málað.
Reyndar hefi ég alltaf unnið ar. i
að starf jafnframt málverkinu.
en ég hef málað síðan.
— Hvað hefur þú helzt mál-
að?
— Það sem mig hefur langaö
til að mála. Um tíma málaði
ég landslag, en það átti ekki
við mig ... ég kann betur við
fantasíuna. Ég málaði talsvert
af myndum við Kleifarvatn
hérna einu sinni, en ég fór allt-
af út fyrir rammann og málaði
meira frá mínum hugmynda-
heimi, en það var gott að mála
við Kleifarvatn. Það er mikið af
huldufólki við Kleifarvatn.
—Þú hefur þá séð huldu-
fólk?
— Þó ég sæi það ekki, fann
ég til návistar þess.
Við erum stödd í Bogasal Þjóð
minjasafnsins, en þar er Sveinn
Björnsson listmálari að hengja
upp myndir sínar. Litlar og
stórar myndir, sem sýna okkur
ljóslega inn í hugarheim lista-
mannsins. Sveinn hefur haldið
margar sýningar áður, bæði hér
i Reykjavík og úti á landi. Ekki
má heldur gleyma að minnast
þess, að Sveinn hefur um
margra ára skeið sýnt meö list
málurum í Danmörku og í fyrra
prh á b) 10
Á fundi með blaðamönnum
sagði dr. Ripley lauslega frá
Smithsonian Institutution, sem
starfrækir fjölþætta rannsóknar
starfsemi, og gefur út fjölda vís
indarita. Allflest söfn Banda-
ríkjastjórnar í Washington
heyra undir stofnunina, og voru
gestir á hinum ýmsu deildum
safnanna í Washington á s.l.
ári um 15 milljónir. Dr. Ripley
er einn af stofnendum World
Wildlife Fund, sem nýlega veitti
ríflegan styrk til kaupa á
Skaftafelli í Öræfum, en þar
sem hann mun aðeins dveljast
hér í nokkra daga getur hann
ekki heimsótt Skaftafell að
þessu sinni. Hins vegar mun
dr. Ripley væntanlega fljúga til
Surtseyjar, en hann er mikill
áhugamaður um Surtseyjarrann
sóknir og sagðist hann telja
nauösynlegt að alþjóðleg rann-
sóknarstofnun undir íslenzkri
forustu héldi uppi rannsóknum
á Surtsey og þróun dýra og
gróðurlífs þar. Kvaðst hann
hafa mikinn áhuga á rannsókn
um á afskekktum eyjum og eyja
klösum, en hann hefur unnið
mjög mikið að rannsóknum á
fuglalífi í Suöurhafseyjum og
á Indlandi og mun bráðlega
gefa út bók um indverska fugla,
sem fyllir 12 bindi.
Dr. Ripley hefur starfað
lengst af sem prófessor og safn-
stjóri við Yale háskólann síðan
hann lauk doktorsprófi frá Har-
vard árið 1953. Dr. Riplev og
kona hans munu fara héðan
9. okt.
v.v.w.v.v.v.v.w.w/,
VÍSIR
í vikulokin jj
fylgir blaöinu I dag. :■
v.v.v.v.v.v.v.w.v.v.v
Jens Otto Krag
Per Borten
Rússnesk hamars-
högg á Seyðisfírði
Rússnesk hamarshögg heyrast
nú aftur á Seyöisfirði. Þangað kom
stórt rússneskt viðgerðaskip í gær
með reknetaskip í eftirdragi og er
unnið að viðgerð á því á Seyðis-
firði.
Rússar fylgja síldargöngunni á
mjög stórum síldarflota, bæði rek-
netaskip og hringnótaskip. I fyrra
samdist svo með yfirmönnum
rússneska sfldveiðiflotans og bæjar
stjórn Seyðisfjaröar aö síldveiði-
skipin rússnesku fengju að koma
inn til Seyðisfjarðar eftir drykkj-
arvatni og eins mættu þeir ann
ast ýmsar viögerðir á skipum sín-
um í lygnunni á firðinum.
Voru oft á tíöum allnokkur skip
á firðinum í fyrra. Rússarnir hafa
jafnan verið mjög hógværir, þegar
þeir stíga á land þar eystra og
fara aldrei langt frá bryggjunni.
Nú er einnig von Norðmanna og
Færeyingar í ríkari mæli en veriö
hefur í sumar á Seyðisfirði, en ó-
venjulítið hefur þar veriö um er-
lenda sjómenn eins og gefur að
skilja, sem og á öðrum Austfjarða
höfnum, vegna fjarlægðar sfldar-
miðanna, en þar eru jafnan sjó-
menn af ýmsu þjóðerni á sumrin
þegar síldin er annars vegar.
Brotizt inn í
bílnleigu og
bifreið stolið
Brotizt var inn í Bílaleiguna Fal
við Rauðarárstíg í fyrrinótt og það-
an stolið lyklum að sjö bifreiðum
og einni bifreiðinni, sem stóð fyr-
ir framan fyrirtækið. Hafði þjófur-
inn brotið rúðu í dyrum og síðan
teygt sig í lásinn og þannig kom-
izt inn. Öðru verðmæti hafði hann
ekki stolið og auðséð, að það hafa
eingöngu verið bílarnir ,sem þjóf-
urinn hefur haft augastað á. Bill-
inn, sem hann stal, var af Volks-
wagen-gerð, hvítur að lit, með skrá
setningamúmerið R-16605.
Bileigandi finnur „stolinn
bil sinn hjá lögreglunni
Bíleiganda einum brá illilega
í brún, þegar hann ætlaði að
ganga að bíl sínum, þar sem
hann hafði Iagt honum ólög-
lega við gatnamót Laugavegar
og Barónstígs, Bíllinn var horf
inn þaðan, sem eigandinn hafði
lagt honum.
Þegar hann sneri sér til lög-
reglunnar til þess að kæra bíl-
stuldinn, sem hann þóttist hafa
orðið fvrir, komst hann að raun
um það, að það var lögreglan
sjálf, sem haföi fjarlægt bílinn.
Hún hafði komið að bílnum,
þar sem honum hafði verið
lagt með lyklum í, þannig að
öðrum ökumönnum stafaði
nokkur hætta af, auk þess, sem
hvaða óvita var gert auðvelt að
fikta í bílnum, meðan lyklarnir
voru í honum.
Hafði lögreglan farið með bíl
inn af staðnum og ætlaði 1
fyrstu með hann inn á stöð,
þangað sem eigandinn gæti svo
sótt hann, þegar hann saknaði
bílsins, en þá kom í Ijós, að
bíllinn var í slíku ásigkomulagi,
að ekki þótti fært aö hafa hann
í umferð. Þegar skoðun hafði
fariö fram á honum, voru skrá-
setningamúmerin klippt af.