Vísir - 10.06.1968, Blaðsíða 2
/
illlllSÉll
Stofnfélagar G.R. gerðir
heiðu rsf élagar
■ Fjórir stofnfélagar Golf-
klúbbs Reykjavikur voru
boðnir til fundar með stjórn
klúbbsins í golfskála félags-
ins í Grafarholti s.I. föstudag.
Þar skýrði formaðurinn, Ól-
afur Bjarki Ragnarsson frá
þeirri ákvörðun félaga G.R.
að gera þesa stofnféiaga að
heiðursfélögum. Þeir eru
Anna Kristjánsdóttir, Óiafur
Gíslason. Hallgrímur Fr.
HaHgrímsson og Gunnar
Kvaran, en öil hafa þau unn-
ið ötullega að því að útbreiða
goifíþróttina. Frú Anna er
ekkja Gunnlaugs heitins Ein-
arssonar fyrsta formanns
G. R. og hefur sjálf mikið
unnið að golfmálum, en hin-
ir þrír hafa allir setið f stjóm
G.R. um lengri eða skemmri
tíma, og öll hafa þau ein-
hver afskipti af golfi enn
þann dag í dag, enda er sagt
að margt sé auðveldara en að
hætta með öllu að spila golf.
Golfklúbbur Reykjavíkur var
stofnaður fyrir rúmum 33 ár-
um, eða í desember 1934. Upp-
hafið var viö gömlu sundl'aug-
amar í þeim mikla iþróttadal.
Laugardal — siðan fluttist
starfsemin á Öskjuhlíð og
nú hefui^ risið upp átján
holu golfvöllur í Grafarholti,
glæsilegt mannvirki, miklu
meira mannvirki en þau sem
félög á stærð við G.R. eru vön
að glíma við. Ólafur Bjarki
sagði m.a. þetta um framkvæmd
irnar í Grafarholti:
„Öll áherzla verður i ár lögð
á vallarframkvæmdir og eru flat
imar efstar á lista. Stefnt er að
því að gera tvo til fjóra teiga á
hverja holu, þannig að hver
leiki völl við sitt hæfi og til að
fá meiri fjölbreytni. Á 17 hol-
um eru nú upphækkaðir teigar 6
holur hafa tvo upphækkaða
teiga, en auk þess eru pallar á
níu holum. Með því að velja sér
teiga finnur hver sinn völl og
svo er ekki ónýtt að geta bætt
við sig, þegar vel gengur eða
slegið af þegar illa gengur. Þá
eru menn mis upplagðir og þrek
ið er ekki sama hjá öllum. Golf
klúbbur Reykjavíkur býður því
ekki aðeins upp á 18 holur, held-
ur 18 holur eftir vali. Auðvitað
höfum við ekki lokið við vail-
argerð, en það er eins með völl-
in, húsið, golfið og féiagana.“
Áður hafa fjórir menn verið
kjörnir heiðursfélagar G.R., en
þeir eru Sveinn Björnsson, for-
seti íslands, dr. Halldór Hans-
en, dr. Valtýr Albertsson og
Helgi Hermann Eiríksson.
Skúli stekkur upp meö Pétri markverði KR — Þórður Jónsson
horfir á.
Heiöursfélagarnir, Gunnar Kvaran, Anna Kristjánsdóttir og Ólafur Gíslason. Hiallgr. Fr. Hall-
^grímsson vantar á myndina.
bobd KR-Akureyri 0:3 (0:1)
KR-ingar plataðir upp úr skónum!
i
Kári skoraði 'óll mörkin
© Um daginn var Akureyrardagur á sýningunni í
Laugardalshöllinni, — í gær færðist þessi Akureyrar-
dagur niður á völlinn norðan við höllina. Akureyring-
ar áttu leikinn og KR réði ekki neitt við neitt. Sjaldan
hefur innlent lið farið eins illa með KR, stundum hafði
maður það á tilfinningunni að norðanmenn væru hrein-
lega að gera grín að Vesturbæingunum.
KR-ingar í áhorfendahópi voru furðu lostnir, ekki
sízt vegna þess að mikið hefur verið reynt til að blása
lífi í glæðumar, erlendur þjálfari m. a. fenginn og liðs-
menn sagðir sýna mikinn áhuga. En hvemig sem á
því stendur er árangurinn í byrjun 1. deildarkeppninn-
ar ekki mikill. Jafntefli náðu KR-ingar gegn Fram,
sem lék einn sinn lakasta leik. Þá „átti“ KR leikinn,
en gat ekki unnið hann. Nú vom það Akureyringar
sem sýndu KR í tvo heimana og „áttu“ leikinn.
Það var einkum seinni hálfleik-
urinn sem var hrein „flugelda-
sýning" af hálfu Akureyringa. Þá
höfðu þeir eitt mark meö sér, Kári
hafði fengið góðan bolta upp miðj
una, og hann kunni lagið á því að
komast framhjá miðverðinum, leika
á markvörðinn og skora í tómt
markið. Mjög laglega unnið. Áður
hafði KR sótt talsvert lengi, mörg
skot að marki. flest afar fjarri
lagi.
í seinni hálfleik var KR vart
betra en það lakasta í 2. deild, og
öllu verra þó þegar líða tök á, því
að þá hreyfðu liðsmenn sig vart.
Strax f byrjun hálfleiksins skall
hurð nærri hælum. Kári komst 1
gegn og átti aðeins markvörðinn eft
ir, en hann mun hafa danglað hend
inni i Kára þannig að hann datt
og náði ekki til boltans til að
skora.
Hins vegar skoraði Kári 2:0 á 8.
rúnútu. Og það majk verður lík-
lega í minnum haft, því að svo
glæsilegt var það. Steingrímur fór
í gegnum vörn KR að endamörkum
og þaðan gaf hann stórfallegan
bolta, sem Kári kastaði sér eftir,
skallaði flatur í loftinu framhjá
markverði KR, sem var á leið í
öfugt horn.
Nú var svo komið að Akureýring
ar voru farnir að „plata upp úr
skónum", og það í bókstaflegri
merkingu því að einn KRinga missti
af sér skóinn í viðureign við Akur-
eyring, og er það næsta fágætur
atburður á knattspyrnuvelli.
kominn i ,,reisu“ í átt til hans,
Kári skoraði í markið sem var
markvarðarlaust, en boltinn þurfti
þó að komast framhjá tveim varn
armönnum KR og tókst það í alla
staði, skot Kára var hnitmiðað og
öruggt.
Þar með var þessi leikur til lykta
leiddur. Akuréyringar sóttu tals-
vert grimmt, en KR-ingar áttu
engin veruleg tækifæri. 1 eitt skipti
gaf Halldór góðan bolta i átt að
marki, en tveir KR-ingar fengu
tækifæri til að skjóta, báðum mis
tókst að hitta boltann, sem var
líkari blautu sápustykki í meðför
um þeirra.
Þannig lauk þessum leik með 3:0
stórum sigri Akureyringa, og eru
þeir nú efstir í 1. deild eftir 2
Ieiki með 4 stig, eru ósigraðir og
hafa þó leikið tvo útileiki. Næst
leika Akureyringar við Fram hér
í Laugardal á iaugardagmn. Lið
Akureyrar í gær var ágætt og
reyndar það sterkasta, sem ég hef
séð í sumar. Vömin örugg með góð
an markvörð að baki sér, tengi-
liðimir í ágætu standi, og Magnús
Jónatansson greinilega að komast
í betri æfingu. Framlínan meö
Kára sem beittasta mann stóö sig
mjög vel, en Steingrímur og Val
steinn brugðust heldur ekki. Skúli
virðist enn ekki búinn að ná sér eft
ir meiðsli sem hann hlaut fyrir
: skömmu.
!l KR-lifeið náði aldrei saman í
þessum leik og það var undarlegt
að sjá menn eins og Eyleif, Ell-
ert, sem kom inn á í fyrri hálfleik
og raunar fieiri, að þeir sáust varla
í þessum leik.
Dómari var Valur Benediktsson.
Hann dæmdi vel það sem hann sá,
en var yfirleitt ekki á staðnum
Einkennilegt er það að dómarar
og þá ekki sízt Valur, virðast
veigra sér við að dæma innan
vitateigs, sem aftur leiðir til þess
aö allt er vaðandi í hrindingum
innan teigsins. Fyrir brot innan
teigs ber oftast að dæma víta-
spyrnu og ættu dómarar ekki að
vera með neina linkind. — jbp —
Kári Árnason — skoraöi þrjú!
Á 16. mínútu kórónar Kári allt
með að skora sitt 3. mark í leikn
um og 3:0 fyrir Akureyri. Það var
Valsteinn sem' dugði vel í þetta
sinn komst upp að endamörkum
vinstra megin, gaf fyrir markið,
til Kára, þegar markvörðurinn var