Vísir - 10.06.1968, Page 3
VÍSIR . Mánudagur 10. júní 1968.
3
Framarar mættu ekki i Eyjum:
Reiði í Eyjum vegna frestunar
talab um „falsað" skeyti mótanefndar
B Mikil gremja var rikjandi
í gær meðal knattspyrnufor-
ustunnar í Vestmannaeyjum
og áhugamanna þar vegna
þess að Framarar ásamt dóm-
ara og línuvörðum mættu
ekki til leiksins, sem þar átti
að fara fram kl. 16 í gær.
Benda Eyjamenn á að tvíveg
is hafi verið flogið í gær til
Eyja og ekkert hafi átt að
vera í veginum. Þá undruð-
ust menn þar að sögn frétta-
manns blaðsins, Alexanders
Guðmundssonar, að skeyti
barst um frestun um óákveð-
inn tíma, undircjtað móta-
nefnd, sem enginn úr móta-
nefnd sendi þó.
Framarar mættu á flugvelli
laust eftir hádegi í gær, en þá
var „ófært til Eyja“, slagorð
í innanlandsfluginu „en athugað
næst kl. 4“.
Það næsta sem gerðist er það
að . Vestmannaeyjaflugvöllur
opnast skyndilega og var þá
flogið þangað kl. 14.30, en
reynt áður að ná I Framarana
og mættu þeir á flugvelli i tíma
nema 3 menn sem komu öf
seint. Að því er einn af tals-
mönnum Fram tjáði blaðinu í
gær þótti ekki gerlegt að fara
án þessara manna og flugfélag-
ið ekki möguleika á að bíða
nokkrar mínútur í þeirri von
að í mennina næðist. Var flug-
vélin því iátin fara án Framara,
sem að auki töldu sig illa út-
búna til leiks gegn Eyjamönn-
um, þar eð ákveðið hafði þá
verið að láta leikinn fara fram
á malarvellinum, þvf að gras-
völlurinn var allur á floti.
I Eyjum biðu áhorfendur eftir
leikmönnum, sem ekki birtust.
Mættu þeir á báðum völlunum,
enda hafði breytingin verið gerð
snögglega. Það mun hafa verið
framkvæmdastjóri KSÍ, Árni
Njálsson, sem tók ákvörðun um
að fresta leiknum og hefur lík-
lega sent skeytið í nafni möta-
nefndar til formanns iBV, Stef
áns Runólfssonar. Tveir móta-
nefndarmanna munu vera utan
lands, en í þann þriðja, Jón
Magnússon náðist ekki í vegna
málsins í gær. Töluðu menn f
EVjum því í gær um „falsað"
skeyti og voru menn bæði sár-
ir og reiöir vegna þessa, vildu
jafnvel fá Vestmannaeyingum
dæmJ stigin fyrir þennan leik.
Leikurinn mun hins vegar
fara fram i Eyjum í kvöld kl.
20.30, — þ.e. svo framarlega
sem ekki verði þá „ófært til
Eyja”, hvort sém það verður
vindáttin eða mistur eins og var
í gaer.
Puskus dæmdur í
sekf í Banda-
ríkjunum
Púskas, hinn heimsfrægi ung-
verski knattspyrnumaður var
dæmdur fyrir ósæmiiega hegðun
á knattspymuleik í Bandarfkjun-
um til að borga 300 dali í sekt
auk þess að fá ekki að skipta sér
af liöi sínu The Royals frá Van-
couver.
Þetta gerðist í leik gegn Dana-lið
10. sfða
í kvöld koma íslandsmeistarar
Vals aftur fram í 1. deildinni,
annar leikurinn í mótinu, einn-
ig á útivelli í þetta skiptið. Nú
keppa Valsmenn í Keflavík á
grasvellinum þar. Leikurinn
hefst kl. 20.30.
Þrem deildaleikjum
var frestað í gær
Leik Akurnesinga við ísafjörð/
Siglufjörö var frestaö í gær, þar
eð úrslitin um það hvort liðanna,
Sigiufjörður eða Isafjörður verður
áfram í 2. deild hafa enn ekki feng
izt.
Leik í 3. deild var einnig frestað
í gær, Ieik Völsunga við Sandgerði
þar syðra. Völsungar töldu sig
hafa fengið mótsskrána of seint
f hendur til að geta komið suður.
Var fallizt á beiðni þeirra um
frestun.
Var því þrem deildarleikjum
af 6 frestað í gær. Heldur slök
byrjun á deildakeppninni. en von-
andi verður minna um slíkt fram
vegis.
Pólland-Noregur
6:1
Norðmenn byrjuðu ekki sér-
lega glæsilega í gær f lands-
leikjum sumarsins. Þeir léku við
Pólverja í Oslo og töpufíu með
6:1, en i hálfleik var staðan 3:1.
Bæjarstjórarnir keppa!
B Það þykir góð upplyfting
að bregða sér á golfvöll, ekki
sízt ef menn eru komnir á þann
aldurinn að nenna ekki lengur
að eltast við fótbolta eða því
um líkt. Golfklúbbamir, sem nú
rísa sem óðast upp hafa allir
sín föstu mót, sum mjög nýstár-
leg, t. d. hefst keppnistímabilið
hjá klúbbnum á Hvaleyri. Golf-
klúbbnum Keili, með bæjar-
stiórakeppni.
Bæjarstjórarnir kepptu nýlega á
vellinum, en boðið er bæjdTstjór-
um Hafnarfjarðar og Kópavogs
sveitarstjóra Garðahrepps og odd-
vita Bessastaðahrepps, en félags-
svæði klúbbsins nær til þessara
fjögurra sveitarfélaga. Sem gestur
keppti Hjálmar Vilhjálmsson ráðu-
neytisstjóri í félagsmálaráðuneyt-
Eftir harða og tvfsýna baráttu
lauk keppninni svo, að Eyþór Stef
ánsson, oddviti Bessastaðahrepps
sigraði á 48 höggum, enda var að
stoðarmaður hans enginn annar en
Jóhann Níelsson framkvæmdastj
Hjartavemdar. Hjálmar bæjarstjóri
í Kópavogi þurfti einu höggi meira
49 högg, en aðstoðarmaður hans
var Þorvarður Árnason, þá kom
Kristinn bæjarstjóri I Hafnarfirði
með 56 högg og naut hann aðstoðar
Stefáns Reumerts (Páls Reumerts),
Clafur Einarson sveitarstjóri í
Garðahreppi notaði 59 högg með
aðstoðarmanni sínum Jóhanni Ey-
jólfssyni. Hjálmar, ráðuneytisstjóri
notaði 51 högg, en hann keppti sem
i g. ;tur og fékk aðstoð Sveins
Snorrasonar hrl.
ELLEN SETTI
Ekki stingandi strá
ISLANDSMET 1 knattspyrnuvelli Akureyrar
— Leiknir jafnaöi met Harðar B. Finnssonar
i 100 metra bringusundi
Ellen Ingvarsdóttir úr Ár-
mannl bætti met sitt í 200
metra bringusundinu í gærdag
í Laugardalslauginni á innan-
félagsmóti, sem þar fór fram.
Hún synti á 3.01.4 mín., bætti
met sitt um 4/10 úr sekúndu.
Er ekki vafi á að hún á eftir
að stórbæta þetta met sitt á
næstu mótum og fara langt und
ir 3 mínútna-markið.
Leiknir Jónsson, Ármanni jafn-
aði á þessu móti 5 ára gamalt met
Harðar B. Finnssonar i 100 m
bringusundi, sem sett var í Svíþjóð
meðan Hörður dvaldi þar og er
met þeirra 1.14.9. Einnig þetta
met mun á efa fjúka á næstunni.
Athygli vakti sund Finns Guð-
mundssonar. Hann æfir daglega í
litlu lauginni á Akranesi, sem er
tólf og hálfur metri á lengd, en hér
synnti hann 100 metra skriðsundið
! í 50 métra laúg á 1.00.6 og var
j greinilegt að hann á er'tir að aðlaga
j sig þessari brautarlengd.
Þess vegna er spurningin sú
hvort Guðmundur Gíslason eign-
ast ekki þarna skæðan keppinaut
. á næstunni?
Æfa á túnbletti v/ð flugvöllinn — rætt
við Einar Helgason bjdlfara
„Það getur varla heitið að
stingar.di strá sé á vellinum
okkar“, sagði Einar Helgason
bjálfari Akureyringa.ona að
leik loknum í gær, en þá
hreinlega léku þessir vallar-
iausu menn sér að KR-ingum,
sem reyndar ráða vfir 2 fal-
legum grasvöllum og einum
malarvelli á félagssvæði sínu
i Kaplaskjóli, og hafa dýran
og góðan, erlendan þjálfara.
— Og hvar -hefur verið æft?
„Við höfum verið svo heppn-
ir að forstjóri Flugfélags íslands
á Akureyri Kristinn Jónsson, út
vegaði ckkur grasflöt úti við
fiugvöll, en þar var sáð í flöt
og er grasið ágætt. Hins vegar
íel ég litlar líkur til að grasið
á fþróttavellinum verði orðið
gott fyrr en undir mánaðamót"
sagði Einar.
Einar sagðist hafa borið tals
verðan kvíðboga fyrir þessum
leik við KR, sérstaklega var
hann hræddur við tvo leikmenn,
sem hann hafði heyrt látið mikið
látið af, Eyleif og Halldór
Björnsson, en ekki hefði sér
virzt stafa stórkostleg hætta af
þessum tveim f leiknum.
— Bjartsýnir?
„Já, við erum bjartsýnir, höf
um ekki byrjað svo vel fyrr í 1.
deild, og auðvitað reynum viö
að halda áfram á sömu braut í
mótinu". sagði Einar að lokum,
en hann var fyrir nokkrum ár-
um markvörður Akureyringa og
einn sá bezti hér á landi sem
slíkur. — jbp —
QGREIDDIfí i
REIKNINGAR ’
LATIÐ OKXUR INNHEIMTA...
Þad sparar yður tima og óbægmdi
INNHEIMT USKRIFST OFAN
Tjarnargötu 10 — 111 hæð — Vonarstrætismegin — Simi 13175 (3linur)