Vísir - 10.06.1968, Síða 12
V1S IR . Mánudagur 10. júní 1968.
Ég fleygði mér á rúmið og grét
stjórnlaust og barði hnefunum í
koddann í örvæntingu. Einhvers
staðar í húsinu heyrði ég klukku
slá. Ég hélt niöri í mér andanum
og taldi slögin sjö .. átta ... Ég
dró úrið mitt og stillti þaö.
Ef Peter hafði afráðið að koma
var hann lágður af stað núna, með
Rocha prófessor.
Klukkan langt gengin níu fór ég
út á svalimar. Það var orðið dimmt
en glórautt tunglið varpaði birtu
yfir garðinn. Ef ekki hefði staðið
svona á fyrir mér mundi ég hafa
orðið hrifin af þessu landslagi, með
gnæfandi fjöllum við stjömublik-
andi himin.
Loks heyrði ég til bfls í fjar-
lægð. Hljóðið heyrðist nær og nær.
Hjartað í mér hamaðíst. Þessi bíll
gat þýtt, aö ég yrði látin laus. Ef
prófessorinn var í ferðinni, mundi
Peter bíöa við vegamótin og ég
send þangað til hans.
Þegar ég i ljósin varö ég
hissa, því að þarna voru tveir bílar
að koma, annar stór og svo minni
bíll á eftir.
Ég tók viðbragð. Litli bíllinn var
bíll Peters.
HEFUR PETER BRUGÐIZT?
Ég æddi út úr herberginu og
niður stigann og var komin niður
í anddyrið þegar bílarnir námu
staðar fyrir utan, þar sem Rod-
eriquez stóð og beið. Ég hélt mig
í skugganum og velti fyrir mér
hvað hefði gerzt. Vonandi að ekki
væri hætta á ferð.
Þegar bíllinn opnaðist sá ég að
það var ekki Peter, sem í bílnum
sat. Ég starði skelfd á mennina
tvo, sem komu út úr bílnum með
þriðja manninn á eftir sér. Hann
virtist vera illa leikinn.
Ég greip öndina á lofti þegar ég
sá að þetta var John. Hann dró
fæturna eftir sér og höfuðið hékk
niður á bringu. Mennirnir tveir
drösluðu honum inn í húsið.
Roderiquez kom auga á mig
þegar ég kom nær þeim.
— Nú. Þarna eruð þér þá! sagði
han kuldalega. — Þér sjáið hvað
gerzt hefur. Senor Cobbold hefur
ekki haldið orð sín. Þess vegna .. .
John stundi þegar mennirnir
fleygðu honum endilöngum í sóf-
ann. Ég hélt til hans, lagðist á
hnén fyrir framan hann og strauk
hárið frá fölu andlitihu. Hann opn-
aði augun. Fyrst í stað virtist hann
ekki þekkja mig, en svo stundi
ÝMISLEGT ÝMISLEGT
Tökum að okkur hvers konai múrbroi
og sprengivinnu i húsgrunnuro og raes
qm Leigjum út ioftpressur og vfbtfa
sleða. Vélaletga Steindórs Sighvats-
sonai Álfabrekkv við Suðurlands
braut, slmi 10435
GlSIJ
JÖNSSON
Akurgerði 31
Sfrni 35199
Fjölhæf jarðvinnsluvél, annast
tóðastandsetningar, gref hús-
grunna. holræsi o. fl.
n
t
i
i
i
i
hann allt í einu: — Joyce ...
elsku. ..
Ég heyrði spottandi hlátur bak
við mig og sneri mér fokreið að
Roderiquez.
— Getur hann fengið ofurlítið
af konfaki? hreytti ég út úr mér.
Roderiquez opnaði skáp, tók
fram flösku og hellti í glas. Ég
tók undir hnakkann á John og
hélt glasinu upp að munninum á
honum
Hann styrktist við þetta, því að
nú reis hann upp við dogg og
horfði á okkur. Þegar hann sá
Roderiquez kom reiði- og angistar-
svipur á hann.
— Hvers vegna kom ekki sen-
or Cobbold meö Rocha prófessor?
spurði Roderiquez. — Það var svo
um talað í simanum milli okkar í
dag.
Ég beið eftir svari Johns með
öndina f hálsinum og óskaði af
öllu hjarta, að ég hefði ekki ver-
ið svo vitlaus að biðja Peter að
koma ekki. Ef hann gerði ekk-
ert til að leysa mig úr prísund-
inni, þá varð það ekki skilið öðru
vísi en sem svo, að hann elskaöi
mig ekki nógu heitt.
— Hann ætlaði aldrei að halda
það Ioforð, sagði John. — Hann
sagði það undireins og hann hafði
slitið sambandinu.
John horfði á mig og greip í
höndina á mér. — Mig tekur sárt
að verða að segja þér þetta, Joyce
Ég veit að það særir þig að hlus* i
á það, sagði hann lágt.
Ég tók höndunum fyrir andlitið
meðan ég hlustaði á þessi orða-
skipti milli Johns og Roderiquez,
Jú, Peter var í gistihúsinu f Torr-
emolinos. En John var handviss um,
að þaö yrði árangurslaust að reyna
að fá Peter til að framselja próf-
essorinn. Og nú bað hann Rod-
eriquez að gera svo vel að sjá
um, að John og ég kæmust til
Torremolinos þegar í stað!
— Hvorugt ykkar kemst aftur
til Torremolinos, sagði senor Rod-
eriquez. — Senor Cobbold fékk
tækifæri til að fá senorítu Meadows
til baka, en úr þvf að hann notaði
það ekki.. .
Hann hvessti augun á John. —
Það var flónska af yður að fara að
sletta vður fram í þetta senor!
John beygði sig fram og augun
skutu gneistum. — Þér hljótið að
vera brjálaður, að láta yður detta
í hug að þér getið haldið okkur
héma, von úr viti.
Spánverjinn pirði augun. — Ég
hef heldur ekki ætlað mér það.
EINTÓM BLEKKING?
— Senor!
með John f bílnum, stöð f dyrun-
um. Þegar birtan féll á andlitið á
honum, sá ég að þetta var sami
maðuTinn, sem hafði reynt að
þvinga mig inn í bílinn sinn forð-
um, þegar ég fór f pósthúsið með
bréfið.
Hann talaði við Roderiquez á
spönsku og þeir fóru saman út
og lokuðu dyrunum eftir sér.
Ég horfði skelkuð á John. —
Hvernig fer þetta? spurði ég. —
Hvemig komumst við héðan aft-
ur?
— Ég veit ekki. En við verðum
að finna einhver ráð til þes.. Þú
mátt ekki verða uppvæg og sleppa
þér.
Mér lá við að reka upp hlátur.
Það var hægara ort en gjört, að
vera róleg undir þessum kringum-
stæðum.
— Þessum manni er trúandi til
alls ... byrjaði ég.
— Nei hann er bara að reyna
að blekkja okkur.
— Nei, þetta er ekki blekking,
John! hrópaði ég. — Æ, hvers
vegna komst þú hingað? Hvers
vegna hélt Peter ekki orð sfn?
— Ég hef sagt þér það, Joyce.
Hann ætlaði sér ekki að framselja
prófessorinn. Ég var hjá honum
þegar hann var að tala í sfmann.
Þegar þeir óku burt með þig f
morgun, hélt ég áleiðis til baka.
Eftir nokkra klukkutíma fór bíll
hjá, og ég gat fengið hann til að
flytja mig til ,,Loretta“. Ég kom
fáeinum mínútum fyrir símtalið.
— Og Peter var heima þá?
— Já, hann var farinn að undr-
ast um þig. Og Marcia og Carlos
voru líka kviðin.
— Hvað sagðirðu við þau?
— Ég sagði þeim nákvæmlega
hvað gerzt hefði. Carlos vildi ná
í lögregluna þegar f stað.
— En það vildi Peter ekki?
— Nei — bölvaður bjáninn! hróp-
aði John.
— Og ekki Marcia heldur?
— Hún sagði nú ekki mikið, en
mér skildist að hún vildi ekki
heldur hleypa lögreglunni f málið.
Mér fannst eitthvert leynipukur
milli hennar og Peters, heldurðu
það ekki?
Ég haföi haldið það einu sinni,
en upp á síðkastið var ég farin
að halda annaö. Nú vissi ég ekki
hverju ég átti að trúa.
BIFREIÐAEIGENDUR ATHUGIÐ!
Bónstöð, bifreiðaþjonusta
LAUGAVEGI118 (ekið inn frá Rauðarárstíg).
Veitir yður aöstöðu til að þvo og bóna bif-
reið yðar, einnig tökum við að okkur þvott,
hreinsun á sætum, toppum, hurðarspjöldum
(leðurlíki). Bónum og ryksugum.
SÍMI 21145.
i
t
„Við getum ekki látið þessa mállausu „Tarzan, á hvað starirðu? Ö — “ „Ó, Tarzan“.
skepnu giftast La drottningu, þú verður
að snúa við og sækja La“. i
UTIHURÐIR
SVALAHURÐIR
BÍLSKÚRSHURÐIR
HURDAIOJAN SF.
AUÐBREKKU 32 KÓPAV.
SÍMI 41425
*u!WlGSN'”}oRODDSEt'i
G^NÆSh3*5® ’3
ER 1
SÍMI
II
RAtíOARARSTfG 31 SiMl
wmmmmmmmm
Srcö
BELTI og
BELTAHLUTIR
á BELTAVÉLAR
Keðjur Spyrnur Framhjól
Boinrúílur Topprúlíur
Drifhjói Boltar og Rær
jafnan fyrirliggjandi
BERCO
er úrvais gæðavara
ó hagstæðu verði
EINKAUMBOÐ
ALMENNA
YERZLUNARFÉLAGIÐf
SKIPHOLT 15 — SlMI 10199