Vísir - 31.08.1968, Blaðsíða 10
10
V1S IR . Laugardagur 31. ágúst 1968.
■llirilllHIHIIIIII ..illiTlíli i II IIIMII i| III1I1IHIIIIMWIIIIBIII —1||||IIIH
KANNA FÓÐUR-
SKORT BÆNDA
• Harðærisnefnd sú, er skipuð
var í fyrra vegna ástands í land-
búnaðinum, mun halda áfram
störfum og gera ýtarlega könnun á
fóðurskorti og fjarhagslegri af-
komu bænda á þeim svæðum, er
verst hafa orðið úti. Nefndin hefur
ráðið starfsmann, Árna Jónasson,
fyrrum bústjóra. Könnunin er i
deiglunni, og mun standa fram eft
ir hausti. Væntanlega mun nefnd-
inrri fsliö að gera tillögur til úr-
bóta að athugun lokinni, eins og
hún gerði í fyrra.
Harðærisnefnd hefur nýlokiö ferð
um nokkrar sýslur á Vesturlandi og
Vestfjörðum og rætt við forsvars
menn bænda. Hefur víöa rætzt bet-
ur úr en á horfðist meö heyöflun. í
nokkrum sveitum er þó augljóst að
um tilfinnanlegan heyskort verð-
ur að ræða vegna nýrra og gamalla
kalskemmda í túnum. Flestir bænd
ur reyna að bæta úr heyskortinum
með heyskap á eyðibýlum og engja
slætti. Sumir hafa þegar keypt
nokkurt heymagn úr fjarlægum hér.
uðum, og aðrir óska eftir að fá
hey keypt.
f nefndinni eiga sæti þeir Jón L.
Arnalds, deildarstjóri, formaður,
Einar Ólafsson, Lækjarhvammi, og
Halldór Pálsson, búnaðarmála-
, stjóri.
Lækkun kostnaðar
\ itmnm
m->- 9. siðu.
verið sakaðir um aðgerðarleysi,
hvað lækkun byggingarkostnað-
inum áhrærir og það er búið
að taka af þeim frumkvæðiö
við stórframkvæmdir eins og
í Breiðholti, enda skortir þá
bæði frjárhagsaðstöðu og sam
tök til slíks. — Samt sem áður
hafa einstakir iönaðarmenn náð
furðugóðum árangri meö
reynslu sinni, hagsýni pg dugn-
aði. Vissulega hafa þeir margir,
ekki sízt nú upp á síðkastiö
eftir að harðna tók í ári á fast
eignamarkaðinum, þvegiö af
sér húsabraskarastimþilinn. —
Meistari, sem hefur eitt til tvö
stigahús af fjölbýlishúsi J tak-
inu, eða jafnvel heilt hús getur
ef vel er á haldið byggt æði ó-
dýrt. Hann hefur góða yfirsýn
yfir verkið og fylgist með því
öllu sjálfur. Bókhaldið hefur
hann ,,í vasanum", ef honum lík
ar svo, þannig að skrifstofu-
kostnaður verður enginn.
Sjálfsagt væri hægt að sam-
ræma slík vinnubrögð betur með
góðum samstarfsvilja, gera hag-
kvæmari innkaup og nýta betur
efni ag tæki en gert er. Á þetta
reynir nú þegar iðnaðarmenn
hafa sameinazt um stórverkefni
í íbúðarbyggingum og verður
fróðlegt aö fylgjast með árangri
af þeirri tilraun.
Þó að einstök samtöik al-
mennra húsbyggjenda hafi náð
góðum árangri svo sem frægt
var af „Reynimelsblokk" Bygg-
ingafélags sjómanna og verka-
manna, getur slíkt ekki talizt
neinn sérstakur áfangi til lækk-
unar byggingarkostnaðinum. —
Árangurinn fer eftir því, hversu
góð forystan er og hún hættir að
skipta sér af byggingamálum í
flestum tilfellum um leið og
hún er komin í sína íbúð og lok-
ar þar inni hjá sér þá reynslu,
sem hún kann aö hafa aflað sér.
Undirbúningurinn
Það eru mörg heilræöi, sem
húsbyggjandi þyrfti að kunna til
þess að koma húsi sínu heilu í
höfn. En fæstir vita neitt í sinn
haus, þegar þeir byrja, annað en
það að íbúðin á að verða ódýr.
Hvernig hún á að verða það vita
þeir ekki. Hins vegar má hvergi
slaka á þeim háu kröfum, sem
við íslendingar gerum tii híbýla
okkar.
En menn gera ekki alltaf rétt,
þegar þeir byrja á því að spara.
Og eitt spara menn oftast hvaö
tilfinnanlegast í byrjun, og þaö
er sjálfur undirbúningurinn. —
Það er mikils virði að hafa hvern
hlut skipulagðan fyrirfram, og
nauösyniegt að hafa næg ráð í
upphafi til þess að sigrast á þeim
þúsund ljónum, sem verða á vegi
húsbyggjandans.
Eitt af því sem menn vilja
gjarnan spara eru undirbúnings-
teikningar eins og til dæmis
teikningar á steypustyrktarjárni,
leiðslum og slíku. Þær eru fengn-
ar svo ódýrar sem kostur er og
svo þarf kannski að brjósta gat
á marga tommu múr í hverju
horni hússins eftir á. Þar með er
teiknispamaðurinn kominn marg
faldur á kostnaöarhliðina. Menn
skyldu vera búnir að gera sér
grein fyrir öllu skipulagi hússins
eöa íbúðarinnar, áöur en bygg-
ingin hefst, svo að ekki þurfi að
gera ráðstafanir þegar þar að
kemur til þess að hægt sé að
hafa hlutina eftir sínu höföi...
Og hugsa svo, þetta hefði ég
getað séð fyrir og sparað mér
stórfelldan aukakostnað.
Þannig má spara við húsbygg
ingar með hagkvæmni og skipu-
lagi, án þess til greina komi alls-
herjar ráðstafanir til þess að
halda niöri byggingarkostnaðin-
um. Þannig getur hvert bygging-
arfélag sparaö og þannig getur
hver einstaklingur sparað. Vissu
lega hafa tæknimenn og
arkitektar, sem eiga að vera ráð-
gefendur fólks í þessum efnum
ekki hreinan skjöld f þessum
efnum.
Veigaminnsta atriöið við bygg-
ingarsparnað er auðvitað ekki
fjármagniö, þó að þaö sé hér að
síðustu nefnt. Fyrirfram tryggt
fjármagn er að sjálfsögðu eitt
af undirstöðuatriðum lágs bygg-
ingarkostnaðar. Meö trýggu fjár-
magni er hægt að ráða hraða
byggingarinnar og hafa hann
sem heppilegastan og ennfrem-,
ur er með tryggu fjármagni kom
ið í veg fyrir óþarfar tafir, sem
oft verða vegna fjárhagsörðug-
leika og kosta menn offjár.
Hér á landi veröa vonandi I
framtíöinni geröar tilraunir meö
nýjar byggingaraðferðir. sem
eiga eftir að gefa mönnum kost
á ódýrari íbúöum. — Slíkar til-
raunir eru raunar á döfinni og
má til dæmis benda á athyglis-
verða tilraun með mátsteinshús,
sem fyrirtækið Jón Loftsson er
nú aö kynna.
Það væri vel ef fleira slíkt
kæmi til. Menn bíða til dæmis
eftir því I ofvæni að íslenzkur
iönaður verði fær um að verk-
smiðjuframleiða hús, svipuð og
gerð eru á Norðurlöndum og
flutt voru inn til Framkvæmda-
nefndar byggingaáætlunar fyrir
offjár í erlendum gjaldeyri.
J. H.
III 1« II I ■ I —IIIIIMI I I ' t:
Aukin sala á
heimilis-
tækjum
Otti v/'ð efnahags-
aðgerðir veldur
Uggur fólks vegna hugsan-
legra aðgerða í efnahagsmálum
í byrjun vetrar, og þá einkum
gengislækkun, mun hafa valdið
því, að þaö flýtir kaupum á ýms
um dýrari vörum. Hefur þetta
komið fram í sölu á heimilis-
tækjum ýmiss konar, að því er
verzlunarmenn segja. Blaðið
ræddi við verzlunarstjóra í fjór-
um fyrirtækjum, er verzla með
slík tæki.
Friðrik Stefánsson hjá Sambandi
íslenzkra samvinnufélaga kvað tölu
vert meira hafa selzt af heimilis-
tækjum í seinni tíð en venjulega.
Væri eftirspurn geysileg, einkum
eftir frystikistum og þess háttar.
Taldi hann vafalaust, aö ótti við
gengislækkun ylli þessari aukningu.
Hjá Heklu — véla- og raftækjaverzl
un — varð Stefanía Davíösdóttir
fyrir svörum. Hún sagöi söluna
meiri en venjulega og þakkaði það
Landbúnaðarsýningunni. Verzlunar-
stjóri Heimilistækia h.f. í Hafnar
stræti, Valur Jóhannsson, taldi eft-
irspurn hafa aukizt mjög, einkum
eftir ísskápum, frystikistum og
þvottavélum. Loks kvað Valur Páls
son hjá Luktinni h.f. fyrirspurnum
og pöntunum „rigna“ yfir fyrir-
tækiö. Töldu verzlunarstjórarnir
engan vafa leika á, að fólk byggi
sig undir harðar aögerðir í efnahags
málum meö vetrinum, með þess-
um hætti.
••
OrBagaríkur —
m-> i. síöu
Lionel Walsh fréttamaður Reut-
er-fréttastofunnar, segir í NTB-
frétt, að miðstjórnarmenn hafi set
ið fundi fyrir luktum dyrum að
undanförnu.
Dubcek heldur því fram, að með
því eina móti að láta undan fyrir
Rússum verði mikilli hættu af-
stýrt — þeir muni æfir af reiði yf-
ir aö Tékkar hafni samstarfi viö
þá, missi alla þolinmæði og taki
sjálfir stjóm landsins í sínar hend
ur (Sjá og fréttir frá Tékkóslóvak-
íu á síðu erlendra frétta inni í
blaðinu).
Rúmenar —
-®—> I Síðll
stefnu í Rúmeníu hefir aðalleiötogi j
hennar, Ceauscescu, miðstjóm j
kommúnistaflokksins og verkalýðs j
félög landsins lýst yfir eindregnum ,
stuðningi við frjálsræðisstefnu'
Tékkóslóvaka. Og þeir Títo forseti I
Júgóslóvaíu, og Ceauscescu, heim- j
sóttu báðir Prag, og var fagnaö sem
beztu vinum Tékkóslóvakíu meðal
leiðtoga heimsins.
Bæði í Rúmeníu og Júgóslavíu
hefir verið viðbúnaður mikiil til
varnar. Varalið hefir verið kvatt
til vopna í Jógóslavíu, og sérstak
ar varnarsveitir stofnaðar I Rúm-
•eníu.
Jón Vesfdal
. 'v-'.—> i 'ílöu
launauppgjöf, sem send var
skattyfirvöldum, var ckki í sarri
ræmi við þær launagreiðslur,
sem bókhald sýndi, að inntar
höfðu verið af hendi til all-
margra starfsmanna. Hins vegar
kom fram, að bókhald og árs-
reikningar Sementsverksmiöj-
unnar, sem endurskoðaðir
höföu verið af endurskoðendum
verksmiðjunnar og undirritaðir
af verksmiðjustjóminni, vom
réttir, og gáfu skýrar upplýs-
ingar um heildarlaunagreiðsl-
ur viö fyrirtækiö.
Að þessum upplýsingum
fengnum vom þegar í stað gerð
ar sérstakar ráöstafanir til þess
aö frávik frá lögboðinni fram
talsskyldu endurtækju sig ekki
og að þess yrði gætt, að launa
uppgjöf til skattyfirvalda, væri
í samræmi við launabókhald og
reikninga verksmiöjunnar.
Er embætti rfkisskattstjóra
hafði lokið athugun sinni, geröi
skattrannsóknarstjóri skýrslu
um rannsóknina og fékk stjórn
Sementsverksmiðjunnar þá
skýrslu til athugunar. Að henni
lokinni tjáöi verksmiðjustjórnin
rfkisskattstjóra, að hún óskaði
fyrir sitt leyti, að hann sendi
máliö til meðferðar dómstóla.
r
Iþróttamenn —
m-> i. siöu
Olympíunefnd íslands ákvað í
gær að eftirfarandi íþróttamenn
færu til leikanna: Leiknir Jóns-
son keppir í 100 og 200 mí
bringusundi. Guðm. Gíslas. f 200
m. fjórsundi, 400 metra fjór-
sundi og 100 metra skriðsundi.
Ellen Ingvadóttir, aðeins 15 ára
gömul, í 100 m. og 200 m.
bringusundi og 200 m. fjórsundi.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir í
200 m. fjórsundi, 100 m. og 200
m. skriðsundi. Guðmundur Her
mannsson í kúluvarpi, Valbjörn
Þorláksson í tugþraut. Jón Þ.
Ólafsson í hástökki. Óskar Sigur
pálsson í milliþungavigt f lyfting
um.
Fararstjórar verða Birgir Kjar
an, form. olympíunefndar, Björn
Vilmundarson, flokksstjóri og
Siggeir Siggeirsson, þjálfari.
BORGIN
BELLA
„Ég fór í berjamó um siðustu
helgi. — Segðu mér, hvernig
þér finnst saftin, sem ég bió tll!“
íþróttakennarar -
m-> i6. siðu.
í boltaleik, sem er með öllu ó-
þekktur hér á landi og eiginlega
ekki á færi neinna að leika
hann nema kvenna, því í leikn-
um þarf örugglega mikla ákveðni
og hörku. Við komum að máli
við Árna Gunnarsson, skóla-
stjóra íþróttakennaraskóla ís-
lands, en hann hefur ásamt Þor-
steini Einarssyni, íþróttafulltrúa
haft veg og vanda af öllum und-
irbúningi námskeiðsins.
— Hvernig hefur þetta nám-
skeið tekizt?
— Alveg ljómandi vel. Allir
eru mjög ánægðir og hér gefst
íþróttakennurum tækifæri til að
koma saman og ræða allar þær
nýjungar sem koma fram. Við
höfum reynt að fá hingað er-
lenda íþróttakennara til að leið-
beina og er reynt að fá þá
annað hvert ár ef möguleikar
eru fyrir hendi.
— Hvernig er tilhögun nám-
skeiðsins varið?
— Námskeiðið hófst á mánu-
daginn og er kennt alla daga
frá níu á morgnana tH 11.45.
Síðan hefst kennslan aftur klukk
an tvö og stendur til fjögur.
Og. að lokum er kennt frá hálf
fimm til hálf sjö. Þá eru og
haldnir fyrirlestrar og hafa þeir
Stefán Hermannsson, Vignir
Andrésson, Hermann Sigtryggs-
son og Þorsteinn Einarsson séð
um þá hlið.
Ennfremur kvaðst Ámi vera
mjög ánægður með kennarana
sænsku og álítur þá vera i úr-
valsflokki. Þaö sem Svíarnir
leggja mikið upp úr, er að þátt-
taka almennings verði meiri i
íþróttunum og að sænskir vís-
indamenn hafa sannað að öllum
er nauðsynlegt að stunda íþróttir
að einhverju leyti.
Landbúnaður —
m-> 16. siðu
in, Eftir forsetakosningar, eftir Sig
urð A. Magnússon, þýdd grein, Upp
reisn æskunnar, og önnur „Hinn
frjálsi heimur“,Njörður P. Njarð-
vík skrifar Kosningu óvissunn-
ar í Sviþjóð, greinin, Kristin trú
frá sjónarmiði guðleysingja er eftir
Gísla Gunnarsson og loks er í
heftinu, Séra Camilo Torres og þjóð
frelsisbaráttan í Colombíu eftir
Halldór Sigurðsson.
Bílaskipti
Opel Caravan 1962, góður
bíll, í skiptum fyrir evrópsk-
an bíl ’66 —’68 með milligjöf.
Staðgreiðsla.
Uppl. gefur
BÍLASALA MATTHÍASAR
Höfðatúni 2. - Sími 24540.
Kengúruboltinn —
V- •> ló slóu
hluta af því hvaða skemmtun
krakkarnir hafa haft af boltan-
j um.
Boltann er hægt að blása upp
i a-llt aö 155 cm. ummál, sem
nægir fyrir unglinga og lítill
vandi er að nota hann. Ef keng
úran er tekin sem fyrirmynd
ætti árangurinn að nást fljótt.
Erlendis er boltinn notaður í
íþróttasölum og þar sem hús-
rými er sæmilegt er hægt að
nota boltann inni við — ekkí
sízt á rigningardögum, kostir
hans eru líka þeir aö hann er
úr efni, sem ekki rispar eöa
skemmdir neitt það sem kann að
verða I vegi fyrir honum.
* TSlffiJCfflBtttGBMWBMI