Vísir - 23.10.1968, Blaðsíða 1
:
jlslenzkir kaþólikkar verða sjálfirj
I að taka afstöðu til pillunnar j
• 9
— Hirðisbréf frá hinum kabólsku biskupum Norðurlanda l
fSLAND SKAUZT
UPP í 2. SÆTI
lslending^r stóðu sig mjög , Tékkóslóvakia og Búlgaría eða is-
vel f fimmtu umferð Ólympíu- land.
skákmótsins, sem fram fer um _,
þéssar mundir í Lugano f Sviss.
Hinir kaþólsku biskupar í
Danmörku, Finnlandi, Nor-
egi, Svfþjóð og íslandi hafa
með hirðisbréfi vakið athygli
rétttrúaðra kaþólikka á tveim
ur atriðum.
í fyrsta lagi inniheldur bréf
páfa um getnaöarvarnir ekki
ekki neinar óskeikular skilgrein
ingar, og í öðru lagi er bent á,
að kaþólskir menn geta haft
aðrar skoðanir heldur en þær,
sem koma fram í slíku skjali —
og fyrir þá sök eina sé ekki
hægt að líta á menn sem íélega
kaþólikka.
í hirðisbrefinu er því lýst yfir
að menn hafi aldréi leyfi til að
breyta gegn sannfæringu sinni.
Enginn, ekki einu sinni kirkjan
getur losað menn við þá skyldu
að fylgja samvizku sinni og
bera ábyrgðina.
Vísir hafði samband við séra
Hákon Loftson á skrifstofu
hins kaþólska biskups á íslandi
til að spyrjast nánar fyrir um
þetta hirðisbréf. Hann sagði,
að ennþá hefði það ekki verið
lesið upp af stóli f Landakots-
kirkju, né heldur hefði það ver
ið lagt fram fyrir hinn kaþólska
söfnuð hér. Ennfremur lagði
séra Hákon áherzlu á, að fólk
eigi að breyta samkvæmt sam-
vizku sinni eftir nákvæma í-
hugun, en engu að síður sé það
ábyrgt gagnvart guði.
Hirðisbréf það, sem hér er
fjallað um, mun hafa verið lesið
upp á hinum Norðurlöndunum,
en ekki hér á fslandi, hvort sem
það þýðir að bréfið verði lagt
fram hér með einhverjum breyt
ingum eða ekki.
Þeir mættu þá Andorra. Urslit
urðu sem hér segir: Ingi R.vann
Giminez, Bragi vann biðskák við
de la Casa, Björn vann Soler og
Ingvar vann Pantebre. Fá þvi
Islendingarnir sennilega fjóra
vinninga út úr þeirri viðureign.
Biðskákir úr fjórðu umferð voru
tefldar í gær og tapaði þá Ingi
fyrir Búlgaranum Tringov, en
Bjöm gerði jafntefli við Peev.
Sigruðu því Búlgarar okkur með
þremur vinningum gegn einum.
Staðan í riðli íslendinganna er
þessi eftir fimmtu umferð:
1. BUIgaría 14V£ 2 biðsk.
2. fsland 14 —
3. Tékkóslóvakía 13 2 —
4. Kúba 10i/2 3 —
5. Túnis 8/4 2 —
6. Tyrkland 6i/2 2 —
7. Singapore 5/2 3 —
8. Andorra 0
Tvö efstu lönd úr hverjum riðli
öðlast réttindi til að keppa í A-
riðli, tvö næstu í B-riðli og má
segja, að likumar til j>ess að ís-
lendingar lendi í A-riöIi séu fremur
litlar. En þó er það möguleiki.
í>au lönd sem telja má að tryggt
hafi sér réttindi til að tefla í A-
riðlinum séu þessi: England, Rúss-
.land, Júgóslavía, Spánn, Kanada,
Ungverjaland, V-Þýzkaland, Rúm-
enía, Argentína, A-Þýzkaland.
GJALDEYRISSJOÐURINN ÞROTINN
Rýrnaði um 270 milljónir / siðasta mánuði
■ Nú mun svo komið,
að gjaldeyrisvarasjóður-
inn er þrotinn. Um síð-
ustu mánaðamót nam
hann 84,2 milljónum, en
352,4 milljónum mánuði
fyrr. Reikna má með, að
þessar 84 milljónir hafi
eyðzt í októbermánuði,
og gjaldeyrisstaðan sé
nálægt núlli. Ekki er
kunnugt um nein ný
lán síðustu vikurnar,
sem gætu lyft stöðunni.
Um áramót var gjaldeyris-
sjóðurinn 1041 milljón og fyrir
einu ári 1048 milljónir á þá-
verandi gengi. Svo sem kunnugt
er, voru eitt sinn nær tveir
milljarðar króna i varasjóðnum.
Verölækkanir á útflutningsaf-
urðum okkar og aflabrestur
hafa valdið gífurlegum halla á
viöskiptum við útlönd síðasta
ár, þar sem innflutningur hef-
ur lítið minnkað.
Viðbúið er, að ráðstafanir til
lausnar efnahagsvandans geti
ekki dregizt mikið á langinn úr
þessu. Þótt erlend lán kynnu að
fást á næstunni.yrði það skamm
góður vermir. Viðræðum stjórn
málaflokkanna um úrræði í efna
hagsmálum er stöðugt haldið
áfram. Þær munu hafa farið frið
samlega fram, en það er alls
óvíst að nokkurt samkomulag
takist.
Hinn mikli gjaldeyrissjóður,
er safnazt hafði í góðærinu, var
ein meginorsök, þess að þjóðin
hefur ekki fundið fyrir lélegri
afkomu í ríkara mæli, en raun
ber vitni og nú 'er sjóðurinn
þrotinn.
□ í morgun tók Ijósmyndari Vísis þessa mynd af tveim síldarbátum, Ásbirni RE og Sigurvon, á leið til Reykjavíkur meö afla sinn í fegursta
morgunveðri, sólskini og logni.
Fundu sprengju í
gömlu drosli
• Það eru oft hinir ótrúleg-
ustu hlutir, sem menn sanka að
sér og geyma innan um hitt
drasiið uppi á háalofti hjá sér,
eða niðri í kjallara. Hefur þá
margt skrítið komiS í ljós, þeg-
ar menn eftir mörg ár taka til
í siíkum rusiakompum.
Eitt það skrítnasta kom þó í ljós
í gær, þegar tveir amerískir menn
tóku til í slíkum ruslakjallara í
húsi einu í Mjóstræti. Þeir rákust
þar í gamla draslinu á rakettu-
sprengju, sem þeim sýndist vera
virk og gæti sprungið hvenær sem
væri.
Gerðu þeir lögreglunni viðvart og
sprengjusérfræðingur var sendur á
vettvang til þess að gera sprengj-
una óvirka. Reyndist þetta vera
rakettusprengja frá því 1952 af
þeirri gerðinni, sem notuð er til
þess að skjóta úr 80 mm fallbyss-
um.
Kveikjan í sprengjunni var övirk
orðin, en aðalsprengihleðslnn var í
fullkomnu lagi.
íslenzkar flugvélar setja fund
Evrópuráðsins úr skorðum
Útlit fyrir að aflýsa þurfi dagskráratriðum
fundarins jbor sem fundarmenn eru ekki
komnir til landsins
• Allt var í óvissu um það í
morgun hvort unnt vröi að hefja
dagskrá nefndarfundar Evrópuráös
ins, sem hefiast átti hér í Reykja-
vík kI. 13.30, á réttum tíma. Það
er flugiö, sem setur barna strik
í reikninginn, en að því er bezt
var vitað í morgun voru um %
hlutar nefndarmanna ókomnir til
landsins i morgun og var ekki búizt
viö að þcir kæmust til landsins
fyrr en undir kvöldið.
Það er fundur nefndar, sem
starfar að þvf að hafa samband
viö þjóðþing og almenning í að-
ildarríkjum ráðsins, sem átti að
hefjast í morgun, Búizt var við 34
fundarmönnum erlendis frá, en
aðeins þriðjungur þeirra komst með
herkjum til landsins I morgun.
Ráðgert var, að þeir gætu valið
á milli þriggja flugferða til lands-
ins í gær, en þær brugðust allar
að einhverju leyti. Flugvél Loft-
leiða átti að koma frá Luxemborg
og London í gær. Vélin gat ekki
lent í Luxemborg vegna þoku, en
lenti í þess stað í Bruxelles í
Belgíu., Farþegarnir í Luxemborg
voru fluttir landleiðina til Bruxell-
es, en þaðan var flogið með þá
til Prestwick þar sem farþegar frá
London voru teknir um borð. í
stað þess að koma í gær, komu
því nefndarmennirnir örþrevttir til
Keflavíkur kl. 9 í morgun.
Öllu verra var þó með þá nefnd-
armenn, sem ætluðu að taka þotu
Flugfélags Islands í gær. Þotan
bilaði og var DC vél send út
í þess stað. Hún bilaði einnig' og
komast farþegamir, sem ætluðu
með þotunni í gær ekki til lands-
ins fyr. en undir kvöld í dag.
Þessi töf mun þó ekki koma veru
lega að sök, þar sem aðalstarfs-
fundir nefndarinnar eiga ekki að
10. síöa.