Vísir - 05.11.1968, Side 1
4
58. árg. - Þriðjudagur 5. nðvember 1968. - 250. tbl.
Byggingarkosfnaðurinn:
AÆTLA 932 ÞUS. FYRIR
4RA HERBERGJA IBUÐ
□ Byggingarsamvinnufélag
atvinnubílstjóra hefur nýlega
gert áætlun um byggingu
fjölbýlishúsa við Breiðholt 1
—15. Er þar gert ráð fyrir
nokkurri aukningu kostnaðar
'Sfrá þvi sem verið hefur. —
Hmphrey skauzt fram úr Nixon
jKostnaður við fjögurra her-
• bergja íbúð. 105 fermetra. er
! bð ekki áætlaður meiri en 932
Jþúsund krónur fyrir það bygg
• ingarstig sem íbúðirnar eru á.
J íbúðirnar eru ömálaðar og
— samkvæmt skobanak'ónnun i morgun
B Forsetakjör fer fram í
Bandaríkjunum í dag. Bú-
izt er við metkjörsókn eða
að yfir 80 af hundraði kjósi
— en það hefur hingað til
þótt góð kjörsókn í for-
setakosningum, ef yfir 60
----------------7-------
af hundraði neyta atkvæð-
isréttar síns.
Mesta athygli vakti snemma í
morgun, er það fréttist að sein-
asta skoðanakönnun leiði í ljós, að
Humphrey sé kominn fram úr
Nixon og hafi 3% meira kjósenda
fylgi en hann.
Það er stöðvunin á árásunum á
Norður-Víetnam og hvatning John
Skortur á hveiti, sykri og kaffi í verzlunum er nú yfirvofandi,
ef ríkisstjórnin gengur ekki frá efnahagsráðstöfunum sínum
á næstu dögum eða grípum til annarra ráðstafana.
sons forseta til fólksins að styðja I lega. Menn ættu að hafa i huga, Jduk!ausa>' °S lóð ekki fullfrá-
Humphrey og Muskie, sem veldur að i forsetakosningum vestra gild-»SenS>n' A*lt annað er fullgert,
þessari seinustu fyigisaukningu ir að, að sá frambjóðandi semjsv° sem tréverk og eldhúsinn-
þeirra félaga, sem undangengna fær flest atkvæði í sambandsriki, jréttingar, hreinlætistæki og
daga hafði aukizt hægt og örugg-1 10. sfða •hun5ir- Kostnaðaraukmn við að
* '/8/—7" 10. S1Ö3-
• •
TVOFALT STRÆT0GJALD
VARÐ TILEFNI ARASAR
• Einn strætómiði varð manni
einum tilefni til árásar á strætis-
vagnsstjóra aðfaranótt laugar-
dagsins. Maðurinn hafði gengið
inn í strætisvagn, sem beið við
Kalkofnsveg og var í þann veg-
inn að leggja í eina síðustu ferð-
ina þann dag.
Var kominn sá tími, sem menn
iþurfa að greiða tvöfalt gjald í
strætó, en maðurinn lagði aðeins
einn I baukinn hjá vagnstjóranum.
Þegar vagnstjórinn benti mannin-
um á allra vinsamlegast, að farþeg-
um bæri að greiða tvöfalt gjald,
brást hinn við á versta veg,
Vagnstjórinn lét sig þó ekki, en
tilkynnti manninui að þeir, sem
neituðu að greiða tilskilið gjald,
yrðu að gjöra svo vel að fara út
aftur úr vagninum og fengju þeir
ekki far. Gerði maðurinn sér lítið
fvrir, þegar hann sá vagnstjórann
ætla að rísa úr sæti sínu, og réðist
Togbátar með allt
’á hann. Átti vagnstjórinn erfitt um
vik til varnar í þrengslunum undir
stýrinu.
Stympingar þeirra stóðu þó ekki
lengi, því að maðurinn snaraði sér
út úr bilnum, en þá losnaði vagn-
stjórinn úr þrengslunum og vatt
sér á eftir hinum. Náði hann tökum
á honum og urðu nú hlutverka-
skipti, því vagnstjórinn hafði mann
inn undir og fékk haldið honum,
þar tii hjálp barst.
Var lögreglunni afhentur maður-
inn of hann færður í fangageymsl-
umar -í Siðumúla, þar sem hann
mátti dúsa um nóttina.
upp í 13 tonn í róðri
\
— Tregt hjá linubátum og smærri togbátum
Togbátar hafa fengið dágóðan
karfaafla á djúpmiðum hér vestan
lands að undanförnu, allt upp f 13
tonn. Þrir Reykjavíkurbátar lönd-
uðu afla sínum hér í gær, Drífa 7
tonnum, Lundéy 8 og Geir 13 tonn-
um. — Suðurnesjabátar hafa einn-
ið landað sæmilegum afla siðustu
dagana, e' allt upp f tíu tonnum
eftir túrinn.
Aflann fá þeir út af Jökli á
foráttudýpi og er hann sem fyrr
segir mest megnis karfi. Minna
hefur hins vegar verið hjá smærri
togbátum og sáralítili afli hiá línu-
bátum. Fimm stórir bátar stunda
veiðar með Iínu frá Grindavik og
tveir smærri bátar, hafa þeir feng-
ið frá iy2 tonni upp f 4 tonn f
róðri síðustu dagana. — Engir bát-
ar eru nú á sjó vegna veðurs og
voru þeir að tínast inn til hafna
fram eftir degi í gær, flestir með
lítinn sem engan afla.
Allmargir bátar hafa verið á linu
veiðum viö suö-vesturlandiö f
haust og gengið hálftreglega. —
Virðist hafa gengiö heldur skár að
manna þessa báta en oft áður, en
landmenn eru ýmist ráðnir upp á
hlut ellegar beir beita línuna i
akkorði og fá þá 155 krónur á
bjóð með þvf aö siá einnig um
löndun.
Innflytjendur óttast gengislækkun
Hafa stöðvað afgreiðslu á hveiti, sykri og
kaffi — Útlit fyrir skort á næsfunni
S Fullt útlit er nú fyrir, að hveiti-, sykur- og
kaffiskortur verði í landinu hráðlega, þó að
nægjanlegt magn af þessum vörutegundum sé til í
landinu. Skýringin á þessari mótsögn er sú, að inn-
flytjendur þessara vörutegunda treysta sér ekki til
þess að leysa vörumar úr tolli, fyrr en í ljós kemur,
hvaða efnahagsráðstafana ríkisstjómin mun grípa
til nú á næstunni. MikiII meirihluti magns af þess-
um vörutegundum er flutt inn á 90 daga erlendum
víxlum.
Gunnar Kvaran, forstjóri Inn
flytjendasambandsins sagði í
viðtali við Vísi í morgun:
Við höfum ekkj bolmagn til
þess að greiða með þessum vör-
um, ef gripið skyldi til gengis-
lækkunar. \
Samkvæmt upplýsingum Stef
áns Thordersens í Björnsbak-
aríi, hafa allir innflytjendur
hveitis og sykurs stöðvað af-
greiðslu. Smávægilegt magn
hefði þó verið hægt að skrapa
saman, þannig að mörg bakaríin
munu hafa eitthvað til að móða
úr. Þeir sjálfir hafa birgðir eitt
hvað fram í næstu viku, en
hann taldi trúlegt að fyrstu bak
aríin færu að stöðvast næstu
daga vegna hráefnisskorts. Stef
án sagði, að bakarar áfelldust
ekki innflytjendur fyrir þessa
stöðvun. Þeir myndu stórtapa,
ef gengið yrði fellt, eftir að þeir
eru búnir að selja vöruna, en
ekki greiða hana.
O. Johnson & Kaaber, lang-
stærsti innflytjandi kaffis, hætti
í gærmorgun að afgreiða kaffi.
Verzlanimar munu nú hafa um
tveggja daga birgöir af kaffi.
SiIIi & Valdi og Ólafur Gíslason
& Co. flytja inn nokkurt magn
af kaffi, en þessir aðilar kaupa
að mestu gegn staðgreiðslu og
kemur því ekki til sölustöðvun-
ar hjá þeim. Magnið, sem þeir
flytja inn hefur þó sáralítið að
segja í heildarneyzluna. — Sig
urliði Kristjánsson. Sagði að þeir
í Silla & Valda, hefðu um mán
aðarbirgðir miáað við eðlilega
neyzlu, en þær myndu vart
duga nema vikuna mc’ hamstri,
sem búast mætti við.
Eysteinn
átelur
hljóðvarpið
„Hljóðvarpið er löðrandi i áróðri
úr stjórnarherbúðunum,“ sagði Ey-
steinn Jónsson á Alþingi í gær.
Hann fann ekki svo mjög að þing-
fréttum sjónvarpsins sjálfum, en
taldi mjög óréttmætt, að i almenn-
um fréttum væri sagt f löngu máli
frá umsögnum ráðherra vlð ýmis
tækifæri, en stjómarandstöðunnar
litið getið.
Ræðu sína flutti Eysteinn við
umræður um frumvarp, sem fyrir
liggur, um þingsköp Alþingis. Ey-
steinn kvað ráðherrana hafa geng-
ið á lagið og fyllt ræður sínar við
slík tækifæri af pólitískum áróðri.
Ráðherrar urðu fyrir svörum og
báru af sér þann áburð og kváðu
hljóðvarpið sjálfrátt um það, hvern
ig fréttum væri hagað. Var bent á,
að eðlilega ættu umsagnir þeirra,
er með stjórnina fara mikið erindi
til þjóðarinnar. Frá stjórnarand-
stæðingum heyrðist litið, og töluðu
þeir helzt á lokuðum fundum.
Viðræður
í dag
• Viðræðunefnd stjórnmálaflokk-
anna mun koma saman til fundar
í dag. Beðið hafði verið með funda
höld fram yfir landsfund Alþýðu-
bandalagsins, sem haldinn var um
síðustu helgi. Helzt litur út fyrir,
að enn sitji við hið sama á fund-
unum og lítið miði i samkomulags
átt.
I