Vísir - 05.11.1968, Side 3

Vísir - 05.11.1968, Side 3
FIS IR . Þriðjudagur 5. nóvember 1968. 4 Svipmyndir frá afmælishófi á Hótel Sögu Nokkrir kunnir menn ræðast við i síðdegisboði í Ráðherra- bústaðnum, Sigurður Bjarnason frá Vigur, Thorolf Smith, Bjami Guðmundsson og Sigurður Magnússon. Tómas Karlsson skálar hér við Árna Óla, heiðursfélaga Blaða- mannafélags íslands. Blaðamannafélagið 70 ára k laugardag héldu íslenzkir blaðamenn upp á 70 ára afmæli félags síns. Menntamála- ráðherra og frú höfðu í því til- efni boð inni síðdegis, en um kvöldið var mannfagnaður í Átthagasal Hótel Sögu. Þangað komu forsetahjónin, mennta- málaráðherra og frú, starfs- menn blaða og fréttastofnana, og margir gestir, sem eiga mik- il samskipti við þær. í hófinu voru fluttar ræður yfir borðum, ennfremur voru ýmis skemmtiatriði, þjóðlaga- söngur, verðlaunagetraun og happdrætti. Að borðhaldinu loknu var stiginn dans til kl. 1.30. Myndsjáin var að sjálfsögðu á staðnum, þó ekki í embættis- erindum, heldur til að kasta af sér.oki hversdagsleikans, enda var sannarlega glatt á hjalla. Það af skemmtiatriðunum, sem mesta kátínu vakti var verðlaunagetraunin: „Hver er maðurinn?" Hún fór þannig fram, að lesnir voru palladómar um eipstaka blaðamenn, án þess aö nöfn þeirra væru nefnd, og viðstaddir áttu síðan að segja til um Við hverja væri átt. Ýmsar hnútur flugu þarna i góðu gamni, og spaugilegt var aö spreyta sig á , því að þekkja, að hverjum var höggvið hverju sinni. I hófinu var skýrt frá tveimur merkum atriðum varöandi Blaðamannafélagið, eins og fram hefur komið í fréttum. í fyrsta lagi var sagt frá því, að m Forseti Islands, dr. Kristján Eldjárn flutti ræðu í hófinu. Á myndinni sjást frá v.: frú Kristin Halldórsdóttir, dr. Kristján Eidjárn, frú Guðrú n Vilmundardóttir, Vilhjálmur Þ. Gíslason og Tómas Karlsson. Við borðin í baksýn eru sjónvarpsmenn og útvarpsmenn (lengra í burtu). Vilhjálmur Þ. Gíslason fyrrum útvarpsstjóri og fyrrverandi for- maður félagsins mundi taka saman efni í bók um sögu Blaðamannafélagsins, blaðanna og blaðamannanna. 1 öðru lagi var frá því skýrt, að langþráð baráttumá! mundi verða að veruleika i vetur, en þá verður stofnaður blaðamannaskóii, eða þriggja mánaða námskeið fyrir nýgræðinga i stéttinni, þar sem til verða fengnir hinir færustu fyrirlesarar íslenzkir og erlend- ir. Hófinu lauk kl. 1.30, og kom þá á daginn, að veðurguðirþir höfðu gert blaðamönnum illan grikk, því að jörð var snævi þakin, og umferð þung, þannig að erfitt var að ná í leigubíla. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem eitthvað svipað kemur fyrir, þegar blaðamenn hittast til að skemmta sér, og er skemmst að minnast þess, að þegar pressu- ballið var haldið síöasta vetur, gerði slíkt foraðsveður, að marg- ir gestanna séu sér þann kost vænstan að gista á Hótel Sögu í stað þess að freista þess að komast til síns heima. Efnt var til skyndihappdrættis (að sjálfsögðu um Mallorcaferð). Guðrún Árnadóttir eigin- kona Magnúsar Bjarnfreðssonar hlaut vinninginn, sem Atii Steinarsson afhendir henni hér. Það má sjá, að allir hafa skemmt sér hið bezta, því að meira að segja hljómsveitarmennirrir eru brosmildir. Meðal gesta í afmælishófi Blaðamannafélagsins voru fyrrverandi útvarpsstjóri og frú. F.v. Vilhjálmur Þ. Gíslason, Jónas Kristjánsson, frú Inga Árnadótti'1 og frú Kristín Halldórsdóttir. Við háborðið: Atli Steinarsson, frú Kristín Hall dórsdóttir, dr. Kristján Eldjárn, Viihjáimur Þ. Gíslason, Tómas Karlsson, Árni Óla, frú Ása Jónsdóttir, dr. Gylfi Þ. Gíslason, frú Halldóra Eldjám, frú Anna Bjarnason og Sigfús Jónsson/ I

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.