Vísir - 14.11.1968, Síða 7
V í SIR . Fimmtudagur 14. nóvember 1968.
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
dtlönd í morgun
dtlönd
Harðasti and-
stæðingur Ayub
Khons handtekinn
Karachi: Zulficar Ali Bhutto,
íyrrv. utanríkisráðherra Pakistans
var handtekinn í s.æt fyrir starf-
semi hættulega öryggi ríkisins.
Hann hefur síðan honum var vik-
ið frá verið harðasti andstæðingur
4yub Khans forseta, sem fyrir
skömmu var sýnt banatilræði, sem
misheppnaðist.
Miklar óeirðir hafa verið í Vest-
ur-Pakistan a<5 undanfönws.
• Fegurðardrottning Spánar,
,,Miss Spain", þátttakandi í fegurð
arsamkeppninni um titilinn „TJng-
frú Alheimur", hætti í gær við
þátttöku, af því „Miss Gibraltar"
fékk að vera með. Hin síðamefnda,
18 ára gömul skrifstofustúlka,
Sandra Sanguinetti vildi ekkert láta
eftir sér hafa um á'kvörðun hinnar
spönsku.
Ný tillaga í Rhódesíumálinu
Deilan verði útkljáð með samningi Bretlands
og Rhódesiu sem sjálfstæðra rikja
• Búizt er við að viðræðum brezka
ráðherrans Thomsons og Ian Smiths
forsætisráðherra Rhódesíu verði
haldið áfram, en Thomson hefur
undangengna daga heimsótt öll ná-
grannalönd Rhódesíu.
Sir Alec-Douglas-Home, fyrrver-
andi forsætisráðherra, talsmaður
íhaldsflokksins um utanríkismál,
sagði f gær á fundi Brezk-Rhódesíu-
félaginu, að óhyggilegt væri af
Smith að láta málin enn dragast á
langinn. Tækifæri, sem væri fyrir
hendi nú, kæmi ekki aftur.
Hann stakk upp á, aö Bretland
og Rhódesía sem tvö sjálfstæð lönd
gerðu með sér sáttmála til þess að
tryggja réttindi blakkra manna í
Rhódesíu.
Johnson ól áhyggjur vegna frétta
um árásir frá afvopnuðu spildunni
Bandríkjastjórn hefur varað
stjórnina f Norður-Víetnam við af-
leiðingum þess, ef áframhald verð-
ur á árásum frá afvopnuðu spild-1
unni.
Slíkar árásir hafa verið gerðar
undangengna daga, en þegar John
son forseti tilkynnti ákvörðun sína
Ríkisstjórn Suður- Víetnam
æf út í Bandartkjastjérn
— Bfaðin segja bilið breikkandi
og bandalagið i hættu
■ Saígon í gær: Taugastríöiö milli
stjómanna í Saígon og Washington
fór enn harðnandi í gær, er nýtt
eiðikast Saigonstjórnar brauzt út
á fundi upplýsingamálaráðherrans
með fréttamönnum.
Þetta var annar slíkuf fundur,
sem hann boðaði til á tveimur dög-
um. Ráðherrann Ton Than Own
ræddi ummæli Clarks Cliffords land
vamaráðherra Bandaríkjanna á
fundi með fréttamönnum í Was-
Rafvirki
Hitaveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða
rafvirkja til starfa við rafbúnað dælustöðva
og aðrar raflagnir veitunnar. Þekking á sjálf-
virkum tækjum og enskukunnátta nauðsyn-
leg. Laun samkvæmt kjarasamningi. Um-
sóknir með upplýsingum um réttindi og.fyrri
störf sendist til hitaveitustjóra, Drápuhlíð 14,
fyrir 1. desember næstkomandi.
Hitaveita Reykjavíkur.
m.s. Skógafoss
fer frá Reykjavík mánudaginn 18. nóvember
til: ísafjarðar og Akureyrar.
Vörumóttaka verður í A-skála á föstudag og
til hádegis á laugárdag.
H.f. Eimskipafélag íslands.
hington, en þar gaf Clifford í skyn
að stjórn Suður-Víetnam hefði ekki
staðið við skuldbindingar sínar. —
Þessu neitaði ráðherrann afdráttar-
laust.
Bui Demi ambassador Suður-Ví-
etnam í Washington er í Saígon og
mun verða þar í nokkra daga. Hann
hefur ekki viljað láta hafa neitt
eftir sér, nema að hann sé kom-
inn til þess að gefa stjórninni
skýrslu.
Það hefur komið greinilega í ljós,
að mikil vonbrigði eru ríkjandi í
Saígon yfir því, að Richard Nixon
hefur boðað, að hann muni fylgja
óbreyttri stefnu Johnsons forseta.
Þetta kemur m. a. fram í blöðun-
um, en blaðið Saígon Post varar
við afleiðingum þess, að „styrjöld
orðanna" skuli komin á það stig,
að hún stefni bandalagi Bandaríkj-
anna og Suður-Víetnam í hættu, og
það hefði aukið vandann og þensl-
una, að Nixon hefur aðhyllzt stefnu
Jomsons, og Víetnam Guardían
kvartar yfir því að Nixon og John-
son komi fram eins og þeir hafi
unnið forsetakosningarnar í sam-
einingu.
FRIÐARNEFND
Það varð kunnugt í gær, að Buddh
istar, kaþólikkar og verkalýðsleið-
togar komu saman á fund í gær, en
þessir aöilar vilja friðsamlega lausn
styrjaldarinnar. Ákveðiö var að
stofna friðarnefnd.
Tran Nguyen Lien, sem var vara-
forsetaefni van Minhs hershöfðingja
í forsetakosningunum, tók þátt i
fundinum.
Vínarborg í gær: Tékknesk
stjórnarvöld hafa nú til athugunar
enn frekari takmarkanir á ferða-
frelsi, oe virðist svo horfa, aö Tékk
ar, sem æskja ferðaleyfis bil þess
að starfa í vestrænum löndum, fái
ekki vegabréf.
Ennfremur veröur þeim neitað
um vegabréf sem ætla til langdval-
ar í heimsóknum vestan tjalds.
Á þetta er litið sem nýja til-
raun tll þess að stöðva straum
menntaðra og sérþjálfaðra Tékka,
sem vilja ekki vera í Tékkóslóvak-
íu vegna breytts viðhorfs þeirra
eftir innrásina.
um að stöðva sprengjuárásirnar,
tók hann fram að stjórnin í Hanoi
vissi vel til hvers af henni væri
ætlazt, vegna stöðvunarinnar, og
fréttamenn minna á þessi ummæli
nú og segja, að eitt af þessu hefði
veriö, að liðssafnaður yrði ekki á
spildunni eða árásir gerðar þaðan.
SAIGON: Bandaríska herstjórnin í
Saigon skýrir frá því, að það hafi
byggzt á skökkum athugunum, að
norðnr-víetnamskar hersveitir á af-
vopnuðu spíldunni hafi gert
sprengjuárásir þaðan á bandarískt
lið. Sprengjuvörpurnar voru stað-
settar sunnan spildunnar en ekki á
hennisjálfri.
Samtímis hafa borizt fréttir frá
Washington um, að Johnson for-
seti hafi haft miklar áhvggjur af
fyrrnefndúm fréttum um sprengju-
árásir frá afvopnuðu spildunni, en
hann sé staðráðinn í að fara gæti-
lega og hvik? ekki frá því marki,
að fá stjórn Suður-Víetnam til þess
að setjast að samningaboröi í París.
Blökkumenn
drepnir í Boston
í Bandaríkjunum
Boston: Þrír blökkumenn voru
drepnir í gær í Boston og tveir
særðust, er hónur blökkumanna
réðst á þá í blökkumannahverfi
borgarinnar. Hvítir menn eru ekki
flæktir í málið.
Þeir, sem urðu fyrir árásinni eru
allir í samtökum, sem nefnast
„Negro Grass Roots Organization",
en markmið þeirra samtaka er að
vinna hófsamlega að réttindum
blökkufólks.
NEW YORK: Bandaríkin hafa
enn lagzt gegn því á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna, að Kína fái
aðild að samtökunum.
MEMPHIS: Frestað hefur verið
fcíl 3. marz að ári aö taka fyrir
mál James Earl Ray, sem sakaður
pr um að hafa myrt dr. Martin
Luther King. Tekin var til greina
krafa hans um að fá annan verj-
anda.
BRUSSEL: Landvarnaráðherrar
Norður-Atlantshafsbandalagsríkj-
anna koma saman í dag til fundar
og ræða varnimar. Fundinn átti
upphaflega að halda i desember.
PRAG: Miðstjórn Kommúnista-
flokks TÚkkóslóvakíu hefir enn
varað við afleiðingum mótmælaað-
gerða og andúðar gegn Rússum.
LONDON: Otflutningsmálaráðiö
brezka býzt viö mjög auknum
brezkum útflutningi á næsta ári.
i , V
DUBLIN: Irska stjómin veitti ný-
lega 25.000 pund til þess að senda
hjúkrunarfólk og lyf til Aba og
‘Oswerri í Biafra. — Áður var stjóm
in búin að veita 105.000 pund til
hjálparstarfsemi í Biafra.
DUBLIN: Fyrir nokkru er látin
ekkja írska skáldsins George B.
Yeats. Þau voru gefin saman 1917.
DUBLIN: Fornfræðingar hafa
fundið ný grafhýsi í Knowth-sýslu
á I’rlandi Er það annað af tveim-
ur stórum grafhýsum sem þarna
hafa fundizt, en einnig hafa fund-
izt mörg minni. Grafhýsi þessi eru
talin vera frá 2500—2000 fyrir
Krists burð.
DUBLIN: Fuglar, sem verpa á
Nýja Sjálandi og Falklandseyjum
undan suðurodda Suöur-Ameríku
hafa fundizt á Skellig og Blasket-
eyjum undan suðvesturströnd ír-
lands.
DUBLIN: írska skipafélagið B&I
Line hefir stofnaö dótturfélag —
Irish Sea Hovercraft Limited. —
Áformað er, að svifnökkvar verði
í förum á írlandshafi.
SÖLUBÖRN ÓSKAST
Dngblaðið VÍSIR
Nemendahefti R.K.Í. fyrir fræðsluþætti Sjón-
varpsins í
skyndihjálp
fæst í bókaverzlunum og á skrifstofu Rauða
kross íslands, Öldugötu 4, sími 14658.