Alþýðublaðið - 30.01.1966, Blaðsíða 9
FRÍMERKI
ÞÖGUL FRÍMERKI.
Það. kemur stundum fyrir frí-
merkjasafnara, einkum byrjend-
ur, að þeir komast yfir merki,
sem þeir eru í vandræðum með að
greina hvaðan eru. ■— Nöfn land-
anna sem gefið hafa merkin út,
vantar stundum. Þessi frímerki
kalla safnarar „Þögui merki“.
— En frímerkjasafnarar eru yfir-
leitt þolinmóðir, og þykir gaman
að glíma við greiningu merkja.
— Oft má geta sér til um föður-
land þessara þöglu merkja, með
því að athuga mynd merkisins og
verðgildi. — Sum frímerki eru þó
svo þögul, að verðgildið er aðeins
tölustafur, en ekkert, sem bendir
til þess hver myntin er — Lítum
t.d. á þetta merki hér á myndinni.
í fljótu bragði virðist það ekki
segja mikið til um uppruna sinn.
í hornum þess að ofan stendur
talan 10 og ekkert er vitað hvort
þetta eru 10 aurar eða 10 shill-
ingar eða þá einhver önnur mynt.
—: Venjulega er það svo, að ein-
hver saga er bakvið þessi „þöglu”
fnerki, og að því leyti er þetta
merki hér engin undantekning. —
Ef við blöðum í verðlistanum yfir
Evrópufrímerki þá sjáum við fljót
lega, að á þessu merki er skjaldar-
merki Austurríkis. — Og þar sjá-
um við einnig að þetta merki er
gefið út árið 1879. — Árið áður
hafði Austurríki hertekið tvö fylki
eða landshluta á Balkanskaga sem
hétu Bosnía . og Herzegowina og
gert þau að e.k. vernarríkjum sín-
um. — Á árunum áður hafði sterk
þj óðernishreyfing vaknað með slav
nesku þjóðarbrotunum í þessum
fylkjum og vildu þau sameiningu
við Serbíu og Montenegro og koma
þannig á fót öflugu slavnesku ríki.
Austurríki geðjaðist aftur á móti
ekki að þessum ráðagerðum, því
að það hafði mikinn hug á, að
auka veldi sitt á Balkan. — Slav-
nesku þjóðernissinnarnir voru yf-
irbugaðir og Bosnía og Herzegow-
ína komust undir yfirráð Austur-
ríkismanna. — Til að undirstrika
yfirráð sín gáfu Austurríkismenn
út frímerki handa verndarríkjun-
um, mynd af einu þeirra sést hér
og er það „þögult” merki. Þessi
frímerki átt-u að leysa af hólmi
tyrknesk frímerki, er þarna höfðu
verið notuð um skeið. — Þessi
frímerki voru prentuð í Wínar-
borg og báru mynd af skjaldar-
merki Austurríkis, enginn skyldi
vera í vafa um, hver þarna réði
málum. — En enginn texti i
orðum var settur á merkin. Skýr-
ingin er sú, að í þessum fylkjum
eru töluð svo mörg tungumál og
Framhald á 10. síðu.
inn veit með vissu hvað gerðist þar.
Antoine Lopez, e sumir álíta að
Ben Barka hafi verið myrtur í
húsi hans.
Pierre Dubail þekktur í París und
ir nafninu „Kiki“..
ist naest. Parísarlögreglan hóf ekki
leit að Ben Barka fyrr en 3. nóv
ember, þótt tilkynnt hefði verið
um brottnámið 31. október. Leitin
að morðingja Ben Barka varð hjá
kátleg. Er hér var komið sögu
vissu nefnilega eftirtaldir menn
hver myrti Ben Barka: .
★ Jacquier, hershöfðingi úr
flughernum og yfirmaður frönsku
leyniþjónustunnar.
★ Maurice Papon, lögreglu
stjóri í París.
★ Jacques Aubert, ráðuneytis
istjóri í innanríkisráðuneytinu.
★ Jacques Foccart, einn ráðu
nautur de Gaulles forseta.
Fyrir nokkrum dögum varð ann
að lineyk'li. George Figon, aðal
vitnið í málinu, fannst látinn og
hafði hann verið skotinn í höfuð
ið. Ríkissalcsóknarinn í París tel
ur, að Figon hafi framið sjálfsmorð
og gefur þes a skvringu: Figon
var á flótta undan lögreglunni. Á
mánudagskvöld í síðustu viku
hafði lögreglan komizt að því hvar
liann faldi sig. Lögreglumenn vonn
aðir vélbyssum umkrinedu hús
nokkurt í Rue do Renaudes í hinu
fína borgarhverfi. Etoile. Fiaon
var hvattur til að gefast unn. Skot
hljóð heyrðist. Fieon fannst lát
inn í íbúð sinni. Þetta er það sem
lögreglan heldur fram.
Dagblöðin í París eru á öðru
máli. íhaldsblaðið „Figaro“ spyr:
„Framdi Georges Figon raunveru
lega sjálfsmorð. . .? og hið vinstri
sinnaða blað „Combat“ segir:
„Þetta er mjög undarlegt sjálfs
morð.“ Um það er rætt, hvort lög
reglan sjálf hafi komið Figon fyrir
kattarnef tii þess að losna við
vitni, sem hefði getað orðið bæði
lögreglunni og ríkinu hættulegt.
Hver verða endalok þessa furðu
lega máls? Frakkar lesa nær dag
lega nýja kafla þessarar óhugnan
legu sakamála-ögu £• blöðunum, og
málið hefur sett stjórn de Gaulles
í mikinn vanda. Hér á sér stað
undarlegur samleikur lögreglunn
ar, undirheimanna og stjórnmál
anna.
Georges Bolcheseiche, faldi Ben
Barka í villu simii.
E1 Mani er bróðursonur Oufkir
utanríkisráðherra.
Japasiskar þorskanetaslöngur
FYRIRLIGGJANDI.
Síldarnótabáfkar
FYRIRLIGG JANDI.
Jénsson og Júlíusson
Hamarshúsi — Vesturenda
Sími 15430.
Aðalf undur
Hjarta- og æðasjukdómavarna-
félags Reykjavíkur
verð'.ir haldinn í Gyllta salnum á Hótel Borg, miðvikudag
inn 2 fetarúar n.k. kl, 20,30,
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3 Sýndar verða 2 danskar kvikmyndir um hjarta-
verndarmálefni (ca.. 20 mín.)
Stjórnin.
Bifreiðaeigendur
Llmboðsmenn Hagtrygginga á
eftirtöldum stöðum eru:
AKRANES: Xngvar SigmundsBon, Suðurgötu 115.
BORGARNES: Ólöf ísleiksdóttir.
HELI.ISSANDUR: Bjöm Emilsson, Lóranstöðin,
ÓLAFSVÍK: Jóhann Jónsson, Grindarbraut 28.
STYKKISHÓLMUR: Hörður Kristjánsson.
A.BARÐASTRANDASÝSLA: Ingigarður Sigurðsson,
Reykhólum.
PATREKSFJÖRÐUR: Sigurður Jónasson, Brunnum 2.
BÍLDUDALUR: Eyjólfur Þorkelsson.
ÞINGEYRI: Guðjón Jónsson.
FLATEYRI: Emil Hjartarson.
BOLUNGAVÍK: Marís Haraldsson.
ÍSAFIRÐI: Björn Guðmundsson, Grunngötu 14.
BLÖNDUÓS': Pétur Pétursson, Húnabraut 3.
SKAGASTRÖND: Karl Berndson.
SAUÐÁRKRÓKUR: Jón Björnsson, Vörubílastöðin.
SIGLUFJÖRÐUR: Jóhannes Þórðarson, Hverfisgötu 31.
AKUREYRI: Sigurður Sigurðsson, Hafnarstræti 101.
HÚSAVÍK: Stefán Benediktsson, Höfðaveg 24.
ÞÓRSHÖFN: Njáll Trausti Þórðarson,
EGÍLSSTAÐIR: Vignir Brynjólfsson.
NESKAUPSTAÐUR: Bjarki Þórlindsson, Nesgötu 13.
ESKIEJÖRÐUR: Sigurþór Jónsson.
REYÐARFJÖRÐUR: Sigurjón Ólafsson, Keiðarvegi 72.
BREIDDALSVÍK: Stefán Stefánsson, Gljúfraborg.
HÖFN, HORNAFIRÐI: Ingvar Þorláksson.
VÍK, MÝRDAL: Sighvatur Gíslason, Hólmgarði.
VESTMANNAEYJAR: Ástvaldur Helgason, Sigtúni.
HELLA: Sigmar Guðlaugsson.
SELFOSSI: Garðar Hólm Gunnarsson, Fagurgerði 8.
HVERAGERÐI: Verzl. Reykjafoss, Kristján H. Jónsson.
GUINDAVÍK: Kristján R. Sigurðsson, Víkurbraut 52.
SANDGERÐl: Brynjarr Pétursson, Hlíðargötu 18.
KEFLAVÍK: Guðfinnur Gísl^on, Melteig 10.
VsgBir Gsiðnasosi Suðurgötu 35.
aEÍ'Ísjí.VÉKURFLUGVÖLIjUB, Þórarinn Óskarsson.
'7J ÖlfcMJJl: Mn Gkí’- unðsson, Strandgötu 9.
GTRYGGU ÍG H.F
.aSal’sk'eifeíoÆaii ROUi!>* 4 — Reykjavík
SSE80 S Ifqnr.
UÞÝÐUBLb: 1 - 30. janúar 1966 §