Alþýðublaðið - 30.01.1966, Blaðsíða 11
bRitstiori Örn
ÍBS tekur jbátt í II. deildar-
keppni Islandsmótsins í sumar
íþróttaáhugi er mikilt
á Suðurnesjum
UNDANFARIN ár hafa tvö lið af
Reykjanesskaganum tekið þátt í
íslandsmótinu í knattspyrnu, það
er að segja Reynir í Sandgerði
og ÍBK. Nú verður breyting hér
á og er hún sú að í stað Reynis
leikur nú í sumar í II. deild lið
frá íþróttabandalagi Suðurnesja.
Þetta var tilkynnt á síðasta þingi
KSÍ. Vegna þessa höfum við snú
ið okkur til Alfreðs Alfreðssonar
form. ÍBS og spyrjum hann um
ástandið í íþróttamálum ÍBS.
— Þið ætlið að taka þátt í ís
landsmótinu í sumar?
— Já, meiningin er að senda
lið til þátttöku í öllum flokkum
en sjálf agt verður þar við ein
hverja byrjunarörðugleika að etja.
Við byrjuðum æfingar hjá yngri
flokkum í fyrra sumar, en tók
um þá stefnu að senda ekki lið
í íslandsmótið, heldur fengum
ými.j lig til að koma til okkar.
En nú þegar við höfum fengið
Sandgerðinga í lið með okkur þá
horfa málin öðru vísi við. Að sjálf
sögðu munum við byggja mfl. upp
á liði Reynis og jafnvel yngri fl.
líka, en urmull er af ungum og efni
legum piltum hér á umráðasvæði
ÍBS.
— Hafið þið æft eitthvað í vet
ur?
— Nei, því miður. Við höfum
enga aðstöðu til að æfa knatt
spyrnu innanhúss, en það stendur
þó til bóta, þar sem við munum
fá hið gamla Samkomuhús Njarð
víkur (Krossinn) til umráða, en
salurinn þar er eitthvað svipaður
Hálogalandssalnum að stærð. Ann
Fyrsta bikarkeppni
_
FRI næsta sumar
ars verður erfiðast fyrir okkur að
ná hópnum saman, þar sem svæði
ÍBS er nokkuð víðlent, en til
þess telst allur Reykjanesskaginn
að Keflavík undanskilinni. Aftur
á móti höfum við góða aðstöðu ut
anhúss, þar sem við höfum gras
völlinn í Njarðvik og einnig nokkra
malarvelli á félagssvæðinu.:
— Hvernig er með þjálfara?
— Þar erum við ágætlega sett
ir, þar sem við höfum ágætan
þjálfara, Albert Karl Sanders,
sem tekið hefur mikinn þátt í
knattspyrnu bæðj hér suður frá
og einnig vestur á ísafirði. Hann
kemur til með að þjálfa alla flokka
ÍBS.
— Er mikill áhugi á íþróttum
innan ÍBS?
— Já, þó má segja að það sé
allt á byrjunarstigi, en mikill á
hugi er t.d. á körfuknattleik og
er ÍKF í I deild á Körfuknattleiks
mótinu, en það félag heyrir und
ir ÍBS. Þá hefur handknattleikur
verið æfður talsvert, en aðallega
á sumrin.
— Eitthvað að lokum?
— Ekki annað en það, að það
er von okkar og trú að þessi til
högun muni gefa góða raun og að
knattspyrna megi blómstra innan
vébanda ÍBS ekki síður en t.d. í
Keflavík.
Þetta sagði form. ÍBS. Alfreð
Alfreðsson.
Íþróttasíða Alþýðublaðsins ósk-
ar hinum nýja þátttakanda í ís
landsmótinu gæfu og gengis og
vonandi verður ÍBS einn liður i
þvi að auka áhuga á knattspyrnu
og íþróttum yfirleitt hér á landi.
Á ársþingi FRÍ, ahldið 27. og
28. nóvember sl. var ákveðið að
efna til Bikarkeppni í frjálsíþrótt
um og eftirtalin reglugerð sam
þykkt fyrir þessa keppni:
1. grein.
Keppnin heitir Bikarkeppni FRÍ.
2. grein.
Öll héraðssambönd, ungmenna
sambönd og frjálsíþróttaráð inn
in FRÍ, eiga rétt á þátttöku í
keppninni. Reykjavíkurfélögin
þrjú, Ármann, ÍR, og KR eiga
þó rétt á þátttöku sem sjálfstæð
ir aðllar.
3. grein.
Stjórn FRÍ ákveður riðlaskipt
ingu hverju sinni í samræmi við
þátttöku, en sex aðilar keppa til
úrslita í Reykjavík. Sigurvegari
hvers riðils fer í úrslitakeppni
nema tvö félög í Reykjavík.
4. grein.
Keppt ska) í eftirtöldum grein
um: KARLAR: 100 m. hlaup, 200
m. hlaup, 40 m. hlaup, 800 m.
hlaup, 1500 m. hlaup, 3000 m.
hlaup. 5000 m. hlaup, 110 m.
grindahlaup, 4x100 m. boðhlaup,
1000 m. boðhlaup, hástökk, lang
stökk, þrístökk, stangar^tökk, kúlu
varp, kringlukast, spjótkast, KON
UR: 100 m. hlaup, 200 m. hlaup,
80 m. grindahlaup, 4x 100 m. boð
hlaup, langstökk, hástökk, kúlu
varp, kringlukast og spjótkast.
5. grein.
Einn þátttakandi skal vera í
hverri grein.
6. grein.
Undankeppni skal lokið fyrir 1.
ágúst.
7. grein.
í keppninni eru stig veitt, sem
hér segir: 7-5-4-3-2-1. Ef tveir eða
fleiri aðilar hljóta jafnmörg stig
:• undankeppni eða úrslitakeppni
■■kulu stig keppenda reiknuð sam
kvæmt þehri alþjóðastigatöflu, •
sem í gildi er og sá sem flest stig
hlýtur þannig, telst sigurvegari.
8. grein.
Úrslitakeppni skal fara fram í
Revkiavík í ágústmánuði ár hvert.
9. grein.
Rifnirvegarinn hlýtur sæmdar
heiti ..Bikarmeistari FRÍ“. Þátt-
töknfrestur í keppnina er til 1.
maí ár hvert.
Stiórn FT?f mun leitast við að
ereiðq einbvern hluta f ferðakostn
aði tii úrslitakenpninniar. off mun
bað tiiVvnnt, fvrir lirslitakeonnina
tii sPrq ram-bandsaðjta. j>á vill
sHórnín bvetía aRa sambandsað
ila tii bátftöku í bessari kennni,
off betún undirbúninff tímanlega
með tilljti til þátttöku.
f. t '
'■ 'f'íé’éúöív/.; '
,,r ‘ '7. •
iNI
Þessi skemmtilega mynd er frá ensku knattspyrnunni Hún sýnir Montgomery, hinn bráðsnjall^:
markmann Sunderland, slá boltann frá markinu í leik við Manchester United.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 30. janúar 1966 JJ,