Alþýðublaðið - 03.02.1966, Síða 8
Litið gftn í verzlun, sem er með ýmsar nýjungar á prjónunum, bæði
j vinnslu matvæla og
þjénustu við viðskiptavini.
FYRIR rúmum tveimur mán-
uðum breyttist nafn vetviunar-
innar Austurver í Lidókjör, og
jafnframt tóku við henni nýir
eigendur. Aðaieigendur eru. þeir
Róbert A. Kristjónsson og Hilm-
ar Heigason, en þeir reka jafn-
framt veitingahúsið Lidó. Þeir
Róbert og Hilmar (hafa komið
fram með ýmsar nýjungar í sam
bandi við starfsemina í Lidó og
Lidókjöri, - og til að forvitnast
um það, náðum við tali af Ró-
þert og báðum hann að segja
okkur frá ýmsum nýjungum fyr
irtækja hans.
— Þið hafið ýmsa þjónustu,
sem ekki hefur verið hér áður
í- verzlunum?
.! — Jú, við erum t. d með
fagmenn, matreiðslumenn. sem
liúsmæður geta hringt til eða
fengið að tala við í verzluninni,
og fengið upplýsingar um, hvern
ig á að matreiða ýmsa rétti. T.
d. ef húsmóðir vill útbúa síld-
arrétti, þá getur hún hringt og
fengið allar leiðbeiningar um það.
Við eruni líka með ýmsa kjöt-
rétti, sem ekki hafa verið seldir
áður t. d. lambakrepenettur. Þær
hafa orðið mjög vinsælar Það
er eins konar buffréttur, búinn
Róbert A. Kristjónsson:
Munum bráðlega hafa vörukynn-
ingu I verzlun okkar.
tii bæði úr framparti og slög-
um, kryddaður með pipar Þetta
er alveg tilbúið á pönnuna, og
selst mjög mikið, enda ódýrt,
10 krónur stykkið. Aðrir nýir
réttir eru t.d. Buff Lindström,
en. það er búið til úr nautakjöti,
kapers, rauðbeðum, og lauk,
allt saxað saman, ásamt eggj-
um. Fylltar lambakótelettur eru
mjög vinsælar, þær eru fylltar
með skinku og osti. Þær verður
að panta fyrirfram. Sehnitzel
Gordon Blue er nauta- eða
trippakjöt 'fyllt með osti og
skinku.
Þetta eru nú helztu nýju kjöt-
réttirnir. Svo má nefna það, að
við seljum oftast svokailaða T-
beina-iiautasteik. Annars seljum
við yfirleitt allt það kjöt sem
fólk ójskar eftir, ef hráefnið er
fyrir hendi, en stundum er erf
itt að, fá gott nautakjöt.
— 03 seljið þið ekki algeng-
ustu sildarrétti?
— Jú, við seljum súrsíld,
marineraða síld, kryddsíid og
marineraða síld með púrrum.
— Og þið sendið mat út í bæ
eftir pöntunum?
— Já, já, við sendum mat út
í bæ, bæðr heitan og kaldan,
eftir pöntunum. Einnig smurt
brauð og snittur. Yið sendum t.
d daglega út heitan mat til
vinnuflokka. Þegar við sendum
heitan mat út í bæ, sendum við
ihann í allstórum einangruðum
trékössum, og þar helzt hann
alveg heitur. Járnkassarnir taka
meira i sig kuldann og matur-
inn kólnar fyrr í þeim en tré-
kössunum.
— Þarf að panta hjá ykkur
tilbúinn mat með löngum fyrir-
vara?
— Á annatímum, t. d. fýrir
fermingsan þarf að parcta með
löngum fyrirvara. Kalt borð þarf
annars venjulega að panta með
eins til tveggja daga fyrirvara.
Heitan mat má yfirleitt fá sam
dægurs, nema ef um mat fyrir
mjög marga er að ræða, þá er
vissara að panta með eins eða
tveggja daga fyrirvara.
Frá kjötdeild verzlunarinnar.
— Hver er yfirmatreiðsiumað
ur hjá ykkur?
— Hann heitir Birgir Pálsson.
Hann sér um matinn og vinnsl-
una. Við vinnum hér til dæmis
allt okkar álegg, nema skinkuna.
Einnig búum við til allt. salat,
sem við seljum. Og það er alltaf
nýtt, nýtilbúið. -
— Eru einhverjar nýjungar á
prjónunum hjá ykkur á næst-
unni?
— Já, við höfum hugsað okk-
ur að hafa matarkynningu, þar
sem þeir, sem ábuga hafa á geta
komið og smakkað á ýmsum
mat. Einn daginn verðq t. d.
kynntar sósur með fiski, svo sem
tnrtarsósa, remoulaðisósa, coektail
sósa o. fl. Þá verður komið fyrir
á einu borði í verzluninni smá-
skömmtum fyrir hvern þann, sem
vill smakka á réttunum.
Einnig hef ég hugsað mér, að
heildsaiar hafi vörukynningu á
sinum vörum í gluggum verziun
arinnar. Þá hefur hver heildsali
giugga til kynningar á sínum vör
um t. d. í eina viku. Þettn eyk
ur samtökin á milli smásalans og
heildsalans.
TEXTI:
ANNA BRYNJÚLFSDÓTTIR
MYNDIR:
JÓKANN VILBERG
8 3. febrúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ