Alþýðublaðið - 27.03.1966, Page 11
bRitstióri ÖrnEidsson
Beztu frjálsíþróttaafrek í Evrópu 7965:
Finnar eiga langbeztu
spjótkastara Evrópu
í DAG eru á dagskrá hjá okk-
ur sleggjukast, spjótkast og tug-
þraut, síöustu greinarnar á afreka-
skrá karla.
Spjótkastið var finnsk grein í
fyrra, Kinnunen er langbeztur og
snerti varia spjót án þess að kasta
því lengra en 80 m., lengst 88,14.
Alls eru sex Finnar á skránni yfir
20 beztu í Evrópu 1965, sem er
frábært afrek hjá þessari smáþjóð.
Lusis, Sovét er annar, en þriðji er
Sidlo, 32 ára sem verið hefur í
fremstu röð spjótkastara í heim-
inum í rúman áratug. Telja má
nokkuð öruggt, að baráttan um Ev-
rópumeistaratitilinn standi milli
Finna og Rússa, en Sidlo og Ung-
verjinn Culcsar, Ungvfcrjalandi'
gætu blandað sér í það stríð
Heimsmethafinn Terje Pedersen
var ekki eins snjall í fyrra og 1964,
en hann hefur vonandi ekki sagt
sitt síðasta orð.
Rússar eiga langbeztu sleggju-
kastarana, aðeins heimsmethafinn,
Zsivotsky, Ungverjalandi er betri.
Af 20 beztu eiga Rússar hvorki
meira né minna en 10 eða helm-
inginn.
Þjóðverjinn Kurt Bendlin, sem
er 22ja ára gamall er sagður mesta
tugþrautarefni Evrópu nú, hann
er annar á skránni með 6 stigum
lakara afrek en Rússinn Storoz-
henko. Annars eru Rússar og Þjóð-
verjar með 16 af 20 beztu, 9 Rúss-
ar og 7 Þjóðverjar. Valbjörn Þor-
láksson kemst ekki á skrá, en þar
sem hver þjóð má aðeins senda
þrjá keppendur í hverja grein,
hefur hann tölverða möguleika á
að verða framarlega í Búdapest.
Hér eru afrekin:
Spjótkast:
88,14 Kinnunen, Finnl.
86,56 Lusis, Sovét.
85,50 Sidio, Póil.
85,04 Kuisma.Finnl.
84.28 Supanen, Finnl.
84,18 Culcsar, Ungv.
84,05 Paama, Sovét.
83.28 Stolle, Au-Þýzkal.
82,75 Von Wartburg, Sviss
82,41 Glogowwki, Póll.
82,04 Perála, Finnl.
i
Armann 71-53
KR sigraði
ÍSLANDSMÓTIÐ í körfuknatt
ieik héit áfram á föstudagskvöld.
Þlá fóru fram tveir leikir í I.
deild, KR sigraði Ármann með
71 stigi gegn 53, KR-ingar hafa
þar með tryiggt sér Islandsmeist
aratitilinn annað árið í röð. Þá
vann ÍR ÍKF með 68-62. Rætt
verður nánar um leikina á þriðju
dag.
81,94 Macquet, Frakkl.
81,28 Pedersen, Noregi
80,89 Radman, Ítalíu
80.72 Rasmussen, Noregi
80.56 Herrings, V-Þýzkal.
80,04 Nevala, Finnl.
79,88 Tiusanen, Finnl.
79,34 Thorslund, Noregi
79,32 Balujev, Sovét.
Sleggjukast:
73,74 Zsivotsky, Ungv.
71,02 Klim, Sovét.
68,40 Kondrachov, Sovét.
68,04 Nikulin, Sovét.
67,84 Beyer, V-Þýzkal.
67,02 Shupíakov, Sovét.
66.57 Baltovsky, Sovét.
66,02 Cieply, Póll.
65.72 Matousek, Tékk.
65,70 Bakarinov, Sovét.
65,68 Rut, Póll.
65,50 Husson, Frakkl.
65,10 Rudenkov, Sovét.
65,07 Párkhomeko, Sovét.
65,02 Zaharov, Sovét.
64,64 Polyakov, Sovét.
64,64 Loch, Au.-Þýzkal.
64,60 Krogh, Noregi
64.39 Asplund, Svíþjóð
64,26 Baumann, Au.-Þýzkal.
Tugþraut:
7,854 Storozhenko, Sovét.
7.848 Bendlin, V-Þýzkal.
7,636 Beyer, V-Þýzkal.
7,556 Auun, Sovét.
7,519 Dyachov, Sovét.
7.486 Vravnik, Júg.
7,443 Phantalis, Sovét.
7,443 Bakai, Ungv.
7,433 Sokol, Rúmeníu
7,429 Ortseiev, Sovét.
7,418 Gabriel, V-Þýzkal.
7,415 Strarodubtsev, Sovét.
7,413 Pglugteil, V-Þýzkal.
7,395 Von Moltke, V-Þýzkal.
7,383 Paalo, Sovét.
7,380 Miroshin, Sovét.
7,368 Sar, Ítalíu
7,362 Utech, Au.-Þýzkal.
7,359 Ovsenko, Sovét.
7,348 Heise, V-Þýzkal.
Ríkharður Jónssón.
Haildór Sigurbjörnsson.
Akurnesingar sigur-
sælir í borðtennis
Akranesi, 22. marz. Hdan
S.l. sunnudag fór fram á Akra-
nesi keppni í borðtennis á milli
heimamanna og starfsmanna Lands
banka íslands í Reykjavík. En þeir
Landsbankamenn hafa þótt einna
harðastir í þessari grein hér á
lándi á undanförnum árum og að
sögn aldrei tapað í keppni. Þessir
aðilar hafa tvisvar mætzt áður í
keppni og sigruðu Landsbanka-
menn með yfirburðum í bæði skipt
in.
Að þessu sinni fór keppnin fram
í Barnaskólanum á Akranesi og
kepptu 5 manna sveitir frá hvorum
aðila. Keppnin var mjög jöfn frá
byrjun til enda og lauk henni með
naumum sigri Akurnesinga sem
hlutu 13 vinninga gegn 12.
Tveir keppendur báru af, þeir
Björgvin Hjaltason frá Akranesi
og Jóhann Sigurjónsson frá Lands-
bankanum og réði leikur þeirra
innbyrðis raunar úrslitum, en
Björgvin hafði betur í þeirri við-
ureign og sigraði með yfirburð-
um. Tapaði hann engum leik í
keppninni og sýndi mikið öryggi
í leik sínum.
Borðtennis er mjög skemmtileg
íþrótt sem nýtur vaxandi vinsælda
hér á landi. Nokkrir menn hér á
staðnum hafa æft að staðaldri í
vetur og hafa þeir náð góðum ár-
angri, eins og úrslitin í þessari
keppni bera með sér. Þá er vitað
að nokkuð stór hópur manna í
Rvík stundar þessa íþrótt af miklu
kappi, aðaliega innan ýmissa fyrir-
tækja og liefur Akurnesingum bor-
izt boð um keppni frá nokkrum að
ilum. Það hlýtur að koma að því,
að íþróttafélög taki þessa íþrótta
grein á stefnuskrá sína og hlýtur
þá að koma að því fyrr en síðar,
og raunar orðið tímabært nú þegar,
að haldið verði hið fyrsta íslands-
meistaramót í þessari skemtilegu
íþróttagrein..
íbróttir
um helgina
MIKIÐ verður um að vera í
íþróttunum um helgina. íslands
mótið í handknattleik heldur á-
fram að Ilálogalandi í kvöld kL
20,J5 þá leika FII-Ármann o*g
Fram — KR í I. deild. Annað
kvöld verður æfingaleikur í
íþróttahöllinni milli liðs lands-
liðsnefndar og liðs, sem íþrótta-
fréttamenn völdu. í liði lands'iiðs
nefndar leikur m.a. Ellei^i
Schram.
Unglingameistaramót íslands í
skíðum fer fram á Akureyri og
Stefánsmótið í Skálafelli í dag.
Fyrsta Evrópumeistaramótið i
frjálsum íþróttum innanhúss fer
fram í Dortmund, Vestur-Þýzka
Iandi í dag. Einn íslendingur,
Jón Þ. Ólafsson tekur þátt í
mótinu, en keppendur eru frá
22 þjóðum.
í þriðjudagsblaðinu verðui*
rætt um þá viðburði, sem hér
hafa verið nefndir og aðra, sent
merkir þykja.
Bifreiðaeigendur
sprautum og réttum
Fljót afgreiðsla.
Bifreiðavcrkstæðið
Vesturás h.f.
Síðumúla 15B, Sími 35740. r
Keppendur Akurnesinga og Landsbankans í borðtennis. Myndir: HDan.
ALÞÝDUBLAÐIÐ - 27. marz 1966