Alþýðublaðið - 27.10.1966, Qupperneq 4
RitatjArar: Gylfl Grönöal (áb.) oz Bencdikt Gröndal. — Rltstjómarfuil-
trúl: Eiöur GuBnoson. — Símar: 14900-14903 — Auglýslngasími: 14900.
Aösatur Alþýðuhúsia viO Hverflsgötu, Keykjavik. — PrwstsmiCja AlþýOu
KaOsins. — Askriftargjald kr. 95.00 — 1 lausásölu kp. 7,00 eintakiO,
titgefandl AlþýSuflokkurlnii.
AðstoB v/ð sjúklinga
Það hefur farið mjög í vöxt hérlendis undarifarið,
'að þurft hafi að senda sjúklinga, — oft smábörn til
læknisaðgerða vestur um haf. Aðgerðir þær, sem
hér um ræðir er ekki unnt að framkvæma hér á
lándi, en þær hafa yfirieitt borið mjög góðan árang
iír og gert það að verkum, að margir sem áður var
ekki lífs auðið geta nu lifað og starfað, eða vax
ið upp og orðið íslenzka þjóðfélaginu nýtir og góðir
þegnar.
En sá galli er á gjöf Njarðar, að þessar læknisaðgerð
ir eru mjög kostnaðarsamar og ekki á allra færi að
snara út fé fyrir þeim. Sérstaklega er þetta oft erfitt
ef um ung börn er að ræða, sem ef til vill eru úr
barnmörgum fjölskyldum, þar sem efniæru ekki mik
il.
Hið opinbera veitir að vísu nokkurn styrk til
þeirra, sem þurfa á þessum dýru aðgerðum að halda
en oft er það ekki nema um fjórðungur kostnaðar,
sem þannig er lagður að mörkum. Er þó skylt að geta
þess ‘að Tryggingastofnun ríkisins og ýmsir fleiri að
flar hafa gert það sem unnt er, samkvæmt núgildandi
lögum til aðstoðar við þetta fólk. Skortir þar ekki
vilja til að leysa þessi mál.
' Borgarfulltr. Alþýðuflokksins Páll Sigurðsson trygg
ingayfirlæknir gerði þessi mál fyrir nokkru að um
ræðuefni á borgarstjórnarfundi og taldi Páll einsýnt
að auka þyrfti með einhverjum hætti 'aðstoðina við
þá sem þessara aðgerða þurfa með. í sama streng tók
Geir Hallgrímsson borgarstjóri.
Við stærum okkur gjarnan af þeirri staðreynd, að
Ihér sé nú komið á velferðarþjóðfélag. Það er óneit-
anlega staðreynd, og þá ekki hvað sízt fyrir ötula
baráttu Alþýðuflokksins og forystumanna hans.
En velferðarþjóðfélag er ekkert markmið, sem verð
ur náð einu sinni í eitt skipti fyrir öll. Velferðar-
þjóðfélagið og hið víðfeðma kerfi almannatrygginga,
sem hér er komið á, verður að breytast og halda á-
|ram að þróast í samræmi við kröfur breyttra tíma.
Það verður að kappkosta að aðlaga kerfið breyttum
aðstæðum og gera því kleift að gegna hlutverki
éínu, Aldrei má til þess koma hér á landi, að börn
ýða aðrir geti ekki notið lífsnauðsynlegrar læknis-
hjálpar vegna þess að fé er ekki fyrir hendi.
j M^nnslíf er ekki hátt metið, á tvö hundruð þúsund
fcrónur eða milliónarf jórðung, en það mun nú algeng
ur nostnaður við vandasama hjartauppskurði, sem
framkvæmdir eru erlendis. Greinilegt er <að gera þarf
nú einhveriar breytingar á þá lund, að létt verði und
ir með þeim sem þurfa á þessum dýru aðgerðum að
halda, svo viðkomandi burfi ekki að stofna sér í botn
lausar skuldir til að halda lífi og heilsu.
4 27. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
(
Þýzkir
Fallegt úrval —Ný sending.
SKÓVAL
Austurstræti 18 — (Eymundssonarkjallara.)
Þýzkir kuldaskór kvenna
Ný sending.
SKÓVAL
Austurstræti 18 — (Eymundssonarkjallara.)
Ódýrir kuldaskór
úr Vinyl, frá Englandi fyrir kvenfólk — Ný sending
SKÓBÚÐ AUSIURBÆJAR SKÓKAUP KJÖRGARÐI
Laugavegi 100. Laugavegi 59
★ KVÖLDVÖKUR
FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS.
Vetrarstarfsemi Ferðafélags íslands er að
hefjast um þessar mundir. Fyrsta kvöldvaka fé-
lagsins að liðnu sumri var nýlega haldin og helg-
uð Hornströndum, en Ferðafélagið efndi einmitt
til tíu daga sumarleyfisferðar þangað síðastliðið
sumar. Dr. Haraldur Matthíasson menntaskóla-
kennari á Laugarvatni, sem var einn af þátttakend-
um, rakti ferðasöguna og sýndi og útskýrði lit-
skuggamyndir frá þessu afskekkta byggðarlagi, sem
nú er komið í eyði. Var þetta einkar vel flutt og
fróðlegt eriridi fyrir þá, \sem aldrei hafa á þessar
slóðir komið. Ekki virðlst vera fyrir neinar lið-
leskjur að fara þessa leið, enda var þetta allt dug-
legt og þrautþjálfað ferðafólk, sem þarna var á
ferð. Ávinningur hefði verið að því, að brugðið
hefði verið upp korti af Hornströndum, þar sem
merkt hefði verið á leiðin, sem farin var, til
skilningsauka. En annars komu myndirnar, sem
sýndar voru, að mildu gagni, auk þess sem sumar
voru bráðfallegar.
Kvöldvökur Ferðafélagsins hafa um all-
langt skeið verið haldnar í Sigtúni, sem er að
mörgu leyti hentugt fyrir slíka fundastarfsemi.
Þó er sá galli á gjöf Njarðar, að ekki virðast vera
fyrir liendi borð handa öllum, sem samkomuna
sækja, en húsfyllir er jafnan á kvöldvökunum,
verða því sumir að fara af samkomustaðnum ári
þess að eiga kost nokkurra veitinga.
★ ÁRBÆKUR F. í.
Annar aðalþátturinn í fræðslustarfsemi
Ferðafélagsins er útgáfa árbókanna. Þær eru nú
orðnar 39 talsins og í heild ítarlegasta íslandslýs-
ing, sem við eigum. MS heita, að lokið sé lýsingu
á öllum héruðum landsins í stórum dráttum, svo
og óbyggðum. Næg verkefni munu þó fyrir hendi
á þessu sviði, bæði er það, að sumar árbækurnar,
einkum hinar eldri, eru ekki mjög itaríegar, og
sömuleiðis væri æskilegt að gera vissum svæðum
nónari skil, af ýmsum ástæðum, t. d. stöðum, sem
mikið eru sóttir af ferðamönnum. Sá, sem þetta
ritar, hefur t. d. orðið var við áhuga ’ á því, að
Ferðafélagið gæfi út árbók um Breiðafjarðareyjar.
Þeirra er að vísu getið í þremur árbókum félags-
ins, þ. e. Snæfellsnessýslu, Dalasýslu og Barða-
strandarsýslu, en aðeins í fáum orðum. Breiða-
fjarðareyjar eru með sérkennilegustu og sögu-
ríkustu stöðum landsins og um þær mætti 'Skrifa
margar bækur. En auk þess hefur ferðamanna-
straumur þangað aukizt gífurlega undanfarið og
fer vaxandi með hverju ári. Þess vegna mundi
slíkt rit áreiðanlega vel þegið. — S t e i n n .
v 0