Bókasafnið - 01.01.1975, Síða 6

Bókasafnið - 01.01.1975, Síða 6
lesið. Einnig ræddi 0rjasæter um notkun skólaútvarpsins í Noregi við bókmennta- kennslu og þá auknu möguleika, sem skóla- útvarpið veitir í kennslu annarra greina. Að lokum flutti 0rjasæter fyrirlestur í boði Sérkennarafélags íslands þar sem hún ræddi um bækur fyrir lestrega og gildi barnabókarinnar fyrir börn með sérþarfir. Þar ræddi hún t. d. um gildi myndabóka og upplesturs fyrir biirn, sem af einhverj- um ástæðum geta ekki lært að lesa og nauð- syn þess, að við þessi börn sé talað og þau þjálfuð í að tjá sig. Hún minntist á nauðsyn þess, að efni og málfar bóka fyrir þessi börn væri sniðið eftir þroskaþeirra og aldri, þannig að sem flest börn finni bækur við sitt hæfi. Rétt er að geta þess hér, að hér á landi er mikill skortur á lestrarefni fyrir börn með lestrarörðugleika. Virðist þetta efni því hafa verið mjög tímabær hug- vekja, enda var mjög góður rómur gerður að öllum fyrirlestrum Tordisar 0rjasæter. Ole Lund Kirkegaard er barnakennari og kennir í smábæ einum á Jótlandi. Hann hóf rithöfundarferil sinn með bókinni Lille Virgil, sem út kom í Danmörku árið 1967. Fyrir bók sína, Albert, fékk Kirkegaard B0rnebogsprisen danska árið 1968. Ein af bókum hans, Fúsi froskagleypir, hefur verið þýdd og gefin út á íslensku af bóka- forlaginu Iðunni. Þýðinguna gerði Anna Valdimarsdóttir. Kirkegaard ræddi um bæk- ur sínar, þar sem hann fjallar aðallega um samband barnsins við fullorðna fólkið og hvernig barnið lítur á heim hinna full- orðnu. Honum veitist einkar auðvelt að lýsa því hvernig börnin sjá út fullorðna fólkið og veikleika þess og eru bækur lians fyndnar og ævintýralegar. Sá gálgahúmor, sem hann beitir óspart í þessum lýsingum sínum, höfðar bæði til barna og fullorðinna Kirkegaard leggur mikla áherslu á að bækur fyrir börn séu skrifaðar á máli, sem börn- in skilja og er þeim tamt og án allra predik- ana. Lokaatriði dagskrárinnar var svo barna- skemmtun, sem brúðuleikhúsið Leikbrúðu- land, flutti. Voru það þrír þættir, sem verið hafa á dagskrá þeirra undanfarið, þ. e. Meist- ari Jakob gerist bamfóstra, Meistari Jakob og pylsusalinn og J. J. og Djúpsystur syngja. Ýmislegt fleira var gert til þess að halda hátíðlega þessa fyrstu barnabókaviku á ís- landi. Má þar nefna barnabókasýningu í Norræna húsinu, sem var yfirlitssýning yfir frumsamdar íslenskar barnabækur á þess- ari öld. Þar var og sýning á myndskreyting- um úr barnabókum eftir íslenska mynd- listarmenn, og sýning á gömlum og nýjum leikföngum. Var þar athyglisverð sýning á ýmiskonar þroskaleikföngum, sem verslun- in Völuskrín hafði þar á boðstólum. Auk H. C. Andersens veggspjaldsins voru gefin út íslensk veggspjöld unnin af nemendum í Myndlista- og handíðaskóla íslands og eru þau öll tengd bókum og lestri. í út- varpinu flutti Silja Aðalsteinsdóttir erindi um þróun barnabókaritunar og Þorleifur Hauksson flutti í bókmenntaþætti sínum úrdrátt úr dagskrá íslenska barnabóka- kvöldsins. Landsbókasafn hafði sýningu á verkum H. C. Andersens, sem út hafa verið gefin á íslensku og Kennaraháskólinn hafði sýningu á fagritum um barnabókmenntir. Þessi fyrsta barnabókavika, sem Félag bókasafnsfræðinga stóð fyrir, virðist hafa náð þeim tilgangi sínum, að vekja athygli á mikilvægi barnabóka og mikilvægi þess, að frumsamdar barnabækur verði gefnar út í aukinni fjölbreytni. Einnig langaði okk- ur til þess að fá fólk, sem starfar á einn eða annan hátt með börnum, til samstarfs. Er Jaað von okkar, sem að þessu stóðum, að slíka kynningu verði hægt að endurtaka, og Jaá í samvinnu við ennþá fleiri aðila. 6

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.