Bókasafnið - 01.01.1975, Blaðsíða 14
„Bókasafnið á að líkjast grísku menningartorgi”
Litið inn í Bæjar- og héraðsbókasafnið á Akranesi og rætt við Stefaníu Eiríksdóttur bókavörð.
Akranes snemma vors í góðu veðri. Við
Hrafn Harðarson göngum í gegnum bæinn
og stefnum á nýlegt tveggja hæða hús, sem
reist hefur verið í nýja hluta bæjarins. Það
er Bókhlaðan við Heiðarbraut 40. Við er-
um hingað komin til að ræða við Stefaníu
Eiríksdóttur og takamyndir. Umhverfis hús-
ið er grasi gróin lóð.og há girðing- Við för-
um fram hjá sjúkrahúsinu og símstöðinni og
komum reyndar ekki réttu megin að húsinu
heldur verðurn að ganga í kringum það til
að komast inn. Hefði ekki verið réttara að
snúa innganginum í suður út að torginu og
miðbænum, sem korna skal hér?
Mér til ánægju sé ég, að við innganginn
hefur verið kornið fyrir skábraut, svo fatlað-
ur maður kemst auðveldlega inn í húsið.
Annars er sjálfstætt bókasafn í sjúkrahús-
inu, sem sjúklingar þar hafa aðgang að.
Stefanía tekur okkur tveim höndum og við
njótum gestrisni hennar og frásagnargleði.
Hún sýnir okkur húsið og við gefum henni
orðið:
„Á neðri hæð Bókhlöðunnar höfum við
til afnota 2/3 hluta af hæðinni og í kjallara
stóra bókageymslu, sem hefur verið stúkuð
í sundur og nýtt að hluta sem sýningarsalur.
1/3 hluti neðri hæðar, þ. e. barnadeildin
(útlána- og lesstofa) var á sínum tíma leigð-
ur menntadeild gagnfræðaskólans á meðan
beðið var eftir stækkun skólans. Á sl. ári
flutti skólinn úr Bókhlöðunni í ný húsa-
kynni og þar með eru þessar tvær stofur, sem
um var að ræða, auðar. Áætlað var að opna
barnabókasafnið og lesstofuna í þessu hús-
rýrni sl. haust, en framkvæmdir hafa dreg-
ist að því er mér finnst allt of lengi. Við
þurfum nauðsynlega á þessu viðbótarhús-
næði að halda og þarna er um lítið verk að
ræða, en bæjaryfirvöld gætu svarað því
hvers vegna þetta hefur dregist svo lengi.“
Við virðum fyrir okkur þessi tómu her-
14