Bókasafnið - 01.01.1975, Blaðsíða 20

Bókasafnið - 01.01.1975, Blaðsíða 20
Fréttir POHJOISKALOTIN KIRJASTOKOKOUS Dagana 26. til 30. maí sl. var haldin í borginni Ro- vaniemi í Norður-Finnlandi 5. Norðurkalotten bóka- safnaráðstefnan (Pohjoiskalotin kirjatokokous). Megin- efni ráðstefnunnar var rannsóknir í heimskautslöndum, rannsóknarstofnanir og útgáfustarfsemi og þjónusta bókasafna við þessar rannsóknir. Fyrirlestrar og um- ræður fóru fram á ensku. íslendingar hafa ekki tekið þátt 1 fyrri Norðurkalott- en bókasafnaráðstefnum en þessu sinni var tveimur ís- lendingum boðin þátttaka, þeim Guðrúnu Karlsdóttur, bókaverði í Háskólabókasafni, og Þórdísi Þorvaldsdótt- ur, bókaverði Norræna hússins. Fluttu þær erindi af íslands hálfu. Var erindi Guðrúnar tvíþætt og nefndist fyrri hluti þess The Icelandic University Library aml its connection uiith research, en síðari hlutinn Volcano- logical research og var í þeim hluta einkum fjallað um Norrænu eldfjallarannsóknastöðina í Reykjavík. Erindi Þórdfsar fjallaði um starfsemi Norræna hússins í Reykjavík og nefndist það Nordic Honse in Reykjavik, Iceland. Ráðstefnutia sóttu tæplega 60 bókaverðir og starfs- menn rannsóknarstofnana. Voru þeir frá Kanada, Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Grænlandi og Ílalíu auk Norðurlandabúanna. Erindi flutt á ráðstefnunni önnur en þau, er fyrr voru talin, voru þessi liin helztu: Research Society of Lapland (Dr. Erkki Lahde, for- stöðumaður RSL), Public libraries in Finnish Lapland (Anneli Ayriis, bókafulltrúi), Oulu University Library/Ottlu University and arctic research (Irene I’elli, bókavörður), Research Institute of Norlhern Finland (Ph. Lic. Eino Siuruainen), Nordic Council for arctic medical research (Hans Aker- blom, prófessor), Library of the Geological Survey of Finland (Ph. D. Marjatta Okko), l’ublic libraries in Northern Svveden (Norrbotten)/' Luleá Library (Eva Viirman, bókavörður), Library busses in Gallivare, N Sweden (Marianne Berg- gren, bókavörður), Tornedalen Library, Overtorneá/Sweden and history of the Nordkalottens biblioteksmöte (Library conferenc- es of the North Cap) (Carin Ullberg, bókavörður), Umeá University Library (Paul Sjögren, bókavörður), Public libraries in Northern Nonvay (Sissel Jakola, bókavörður), Troms University Library/Troms University and arctic research (Jolni Wolcl, bókavörður), Scandinavian Institute for the Lapps (Alf Isak Keskita- lo, deildarstjóri), Libraries in Greenland (Hans Westermann, bókavörð- ur), Instituto Geografico l’olare, Italy (Silvio Zavatti, pró- fessor). Efni til umræðna á lokadegi ráðstefnu voru m. a. þessi: Northern information sources, Bibliögraphies, Directories, Booklists. Margt fleira bar á góma. í tengslum við ráðstefnuna voru skoðuð söfn og rannsóknarstofnanir í Rovaniemi og nágrenni. Einnig var farið í þrjár lengri rannsóknar- og kynnisferðir. Var valið um hinar tvær fyrri, þar sem þær voru farnar meðan mótið stóð enn. Fóru því sumir til Sodankylá og fleiri staða norður af Rovaniemi, en aðrir, þar á meðal íslenzku þátttakendurnir, kusu að halda suður á bóg- inn, til Oulu. Þriðja ferðin var farin að mótinu loknu og stóð hún þrjá daga. Var haldið til Vads0 í Noregi með viðkomu víða á leiðinni, en þaðan snúið aftur til Rovaniemi. Að mótinu loknu hélt Þórdís suður Finn- land og skoðaði ýmis söfn þarlend, en Guðrún fór hins vegar yfir til Svíþjóðar og lieimsótti nokkur söfn í Norrbotten. 20

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.