Bókasafnið - 01.01.1975, Side 12
að í bókasafninu er myndasafn Urðasókn-
ar, um 1100 ljósmyndir og teikningar
alls staðar að úr byggðinni sem sýna líf
fólksins á helgum dögum og virkum
allt frá fornöld til vorra daga,
að í bókasafninu getur þú fengið hylkis-
segulbandstæki lánað heim, og með
hjálp bókasafnsins getur þú fengið lán-
uð bönd með fræðsluefni til sjálfsnáms
eða önnur hljóðbönd frá Fræðslu-
myndastofnuninni í Falun,
að blindir og sjóndaprir í héraðinu geta
fengið lánuð segulbandstæki frá
Blindrafélaginu í Falun og í bókasafn-
inu fást lánaðar talbækur,
að bókasafnið hefur með höndum starfsemi
sem nefnist Bókin kemur. Þetta þýðir að
sjúkir, aldraðir og lamaðir geta hringt
í salnið og þá verða þeim sendar bæk-
urnar,
að húsrými bókasafnsins fæst lánað ókeypis
fyrir leshringi, fræðslufundi og þess hátt-
ar starfsemi.
Að lokum þetta: Flafir þú tillögu fram
að flytja um eitthvað sem þú telur að bóka-
safnið ætti að gera eða beita sér fyrir er slík-
um ábendingum tekið með jrökkum.
Hittumst heil í bókasafninu.
Af þessu verður greinilega séð að starf-
semi bókasafnsins í Furudal í Urðasókn er
allumfangsmikil þótt hér sé um að ræða
stofnun sem ekki hefur á að skipa fastráðn-
um starfsmanni. Það leynir sér ekki að hinir
bókasafnsfróðu gestir sem dvöldu þama
stundarkorn þennan fallega maímorgun
voru býsna ánægðir með heimsóknina í
þetta litla bókasafn í Dölum eftir að hafa
heimsótt mörg stærstu og glæsilegustu bóka-
söfnin í Svíþjóð. Hér höfðu bókasafnsmál
í dreifbýli verið leyst á skemmtilegan og
hagkvæman hátt.
En á heimleiðinni til Ráttvik verður mér
síhugsað til þess hvað mörg byggðarlög hér
á landi gætu leyst bókasafnsmál sín á svipað-
an hátt og gert er í Urðasókn. Þetta bóka-
safn hefur hingað til ekkert framlag fengið
frá ríki, hvorki til bókhlöðu né rekstrar, en
á árinu 1975 mun það verða útibú frá bóka-
safninu í Ráttvik, og eftir það kemst það í
ker'fi sem fær framlag frá ríki. Það hefur
samt notið góðrar og mikilvægrar fyrir-
greiðslu og aðstoðar frá borgar- og héraðs-
bókasafninu í Falun, en Falun er borg með
um 34.000 íbúa og er þangað um það bil 50
km leið frá Furudal. Þar er eitt best búna
og glæsilegasta bókasafn í Svíþjóð.
Hvers vegna verður mér svo tíðhugsað
heim til íslands á leiðinni til baka á ráð-
stefnustaðinn í Ráttvik? Hér er þó farið um
fögur héruð og mér áður ókunn. Og hvers
vegna sækir heimsóknin í bókasafnið í Furu-
dal svo mjög á hugann við umræður og
bollaleggingar þá ráðstefnudaga sem eftir
eru?
12