Bókasafnið - 01.01.1975, Qupperneq 16
af 500 börn. Einnig eru bækur lánaðar til
báta og skipa og munu þar vera um 180
lánþegar. Sjómennirnir koma í safnið og
fá lánaðar bækur á sama hátt og aðrir lán-
þegar. Eina sérleyfi þeirra er að halda bók-
unum lengur en venja er. Lánþegar frá
sveitunum í kring koma í safnið og sækja
bækur, þegar jreir eiga leið um. Bækur eru
ekki sendar út á bæina.
Við leggjum leið okkar niður í kjallar-
ann. Þar er stór salur, sem ætlaður er til
bókageymslu. Hluti rýmisins er þegar í
notkun fyrir bækur og þarna er vinnuað-
staða. Stefanía heldur áfram að segja okk-
ur frá starfseminni:
„Eins og ég sagði áðan hefur kjallara-
geymslan verið nýtt sem sýningarsalur. Þar
hafa verið haldnar átta málverka- og grafík-
sýningar, auk þriggja sem haldnar hafa ver-
ið á efri hæðunum. Allar Jressar sýningar
hafa verið vel sóttar. Þá hafa verið haldnar
fjórar bókasýningar og kynningar á vegum
safnsins. Þær eru: Prentverk í Borgarfirði,
Borgfirskir rithöfundar, Barnabókakynning
og Hallgrímsvaka. Þá var Bæjar- og héraðs-
bókasafnið á Akranesi annar aðilinn að
Snorrasýningunni í Reykholti á sl. sumri.
Hinn aðilinn var Héraðsbókasafnið í Borg-
arnesi. Landsbókasafn íslands hefur ávallt
veitt mikla fyrirgTeiðslu í þessum efnum.
Fyrirhugað var að halda framhaldskynn-
ingu á borgfirskum rithöfundum nú í apríl,
en vegna innréttinga á efri hæð hússins og;
rasks, sem því fylgir, hefur orðið að fresta.
því um ófyrirsjáanlegan tíma.“
Líkan af Bókhlöðunni ásamt teikningum
var til sýnis á Þriðja landsjjingi íslenskra
bókavarða, sem haldið var að Lögbergi við
Háskóla íslands í september síðast liðnum.
Þess má geta, að mynd af Bókhlöðunni var
birt í danska tímaritinu Bogens Verden eft-
ir landsfundinn. Líkanið var hannað af
Karli Lilliendahl.
Við hittum Ástu Ásgeirsdóttur og Hafdísi
Daníelsdóttur samstarfskonur Stefaníu. I
safninu er unnið tveggja manna starf, sem
þrjár konur leysa af hendi þ. e. ein í fullu
starfi og tvær í hálfsdagsvinnu.
Tíminn hefur flogið frá okkur. Komin er
kveðjustund. Um leið og við kveðjum Stef-
aníu og þökkum fyrir okkur fljúga mér í
hug orð hennar frá því fyrr um daginn, að
„bókasafnið á að líkjast grísku menningar-
torgi.“ E. B. G.
BÓKAVERÐIR ATHUGIÐ!
• Ameríska bókasafnið hefur á að skipa rúmlega 7.000
bókum, 135 tímaritum og safn myndsegulbanda í hinum
ýmsu fræðigreinum, svo sem lögfræði, þjóðfélagsfræði
og vísindum. Auk þess lánar bókasafnið hljómplötur og
segulbandsspólur.
• Kvikmyndir eru lánaðar til stofnana og félagasamtaka.
• Öll ofangreind þjónusta er ókeypis.
• Bókasafnið er opið frá kl. 13—19 mánud. — föstudags.
Kvikmyndasafnið er opið frá kl. 14—17 mánud., mið-
vikud. og föstud. og milli 11—12 og 17—19 þriðjud. og
fimmtud.
MENNINGARSTOFNUN BANDARÍKJANNA
NESHAGA 16 - SÍMAR: 19900, 19331 OG 11084.
16