Bókasafnið - 01.10.1982, Qupperneq 21
tölvur
Tölvunotkun í íslenskum
hnl/oenfmmi — eftir Þón Ragnarsson
bókasafnsfræðing
Hér á eftir fer örstutt yfirlit um tölvu-
notkun í íslenskum bókasöfnum um
þessar mundir og horfurnar á þessu
sviði.
Ljósmyndaútlán. I Borgarbókasafni
hafa um árabil verið tíðkuð svonefnd
ljósmyndaútlán. Þau felast í því að
míkrómynd er tekin af skírteini lánþega,
bókarvasa og tölvumiða (OCR-miða),
en síðan vinnur tölva úr þessum gögnum
og býr til vanskilalista. Skýrsluvélar rík-
isins og Reykjavíkurborgar annast
tölvuvinnsluna.
Bókasafn Kópavogs tók upp sams
konar ljósmyndaútlán í júlí 1981.
Tölvuvinnsla safnsins er á vegum
Reiknistofu bankanna og tölvudeildar
Kópavogskaupstaðar.
Beinar leitir í gagnabönkum erlendis.
Þrír aðilar hérlendis gera beinar upplýs-
ingaleitir í gagnabönkum erlendis. Þess-
ir aðilar eru Upplýsingaþjónusta Rann-
sóknaráðs, Bókasafn Landspítala og
Bókasafn Hafrannsóknastofnunar, en
síðastnefnda stofnunin er nýlega komin
í samband við DIALOG í Bandaríkj-
unum.
fslensk bókaskrá. íslensk bókaskrá
hefur verið tölvuunnin frá árinu 1980
(íslensk bókaskrá 1979) og jafnframt
prentaður texti fyrir spjaldskrárspjöld.
Skráning. Bókasafn Landspítala notar
bandaríska skráningarþjónustu sem
nefnd er MARCIVE. Fyrirtæki þetta
annast skráningu rita, framleiðir spjald-
skrárspjöld, örglæruskrár og einnig er
mögulegt að fá skráningu á segulbönd-
um. Þjónusta þessi þykir ódýr og gefur
góða raun.
Safndeild Háskólabókasafns í jarð-
fræði hefur notfært sér örtölvu Norrænu
eldfjallastöðvarinnar og skráir inn á
hana greinar og bækur urn jarðfræði fs-
lands. Unnt er að leita í skránni eftir
höfundum og efnisorðum.
Tölvunefnd. Tölvunefnd bókasafna
var sett á laggirnar í febrúar 1981. Lagði
hún fram tillögur sínar í maí 1981 og
febrúar 1982. Tillögurnar fela í megin-
atriðum í sér:
— að komið verði á fót sameiginlegu
skráningarkerfi fyrir bókasöfnin;
— að samið verði MARC-snið til notk-
unar í íslenskum bókasöfnum;
-— að Landsbókasafn taki upp þetta
nýjasta snið og samin verði forrit til
þess að vinna íslenska bókaskrá skv.
því;
— að keypt verði örtölva til Lands-
bókasafns.
Örtölva af gerðinni North Star
Horizon barst Landsbókasafni snemma
árs 1982 og hefur hún verið notuð við
innskrift þjóðbókaskrár.
í ársbyrjun 1982 lá fyrir uppkast að
MARC-sniði fyrir íslensk bókasöfn,
nefnt ísMARC. Hefur tölvunefndin
umsjón með gerð þess. Voru haldnir
nokkrir fundir með skráningarnefnd og
flokkunarnefnd þar sem uppkastið var
rækilega lesið yfir.
Fyrstu viku júlí-mánaðar kom hingað
til lands á vegum Landsbókasafns
Mogens Weitemeyer, bókavörður í
Konunglega bókasafninu í Kaup-
mannahöfn, en hann hefur sérþekkingu
á MARC-kerfum. Fór hann yfir upp-
kastið að ísMARC og veitti ýmsar
gagnlegar ráðleggingar.
Þess er að vænta að ísMARC liggi
fyrir til notkunar í haust.
Kennsla í bókasafnsfrxði. Tölvunotk-
un í þágu bókasafna hefur verið á
kennsluskrá bókasafnsfræði i Háskóla
fslands allt frá árinu 1975. Á næsta
kennsluári verða væntanlega þrjú nám-
skeið sem varða tölvumálin; þau eru
þessi:
1) tölvunotkun í bókasöfnum,
2) upplýsingakerfi og tölvunotkun og
3) beinar leitir í tölvu.
ÖRFILMU
LESARAR
Tækni framtíðarinnar..
hjá okkur í dag
KJARAINI HF
skrifstofuvélar & verkstæði — Armúli 22 - slMi 83022