Dagur - 17.10.1997, Blaðsíða 8
8- FÖSTUDAGVR 17.0KTÓBER 1997
FRÉTTASKÝRING
L
rD^ftr
SIGURDÓR
SIGURDÓRS
SON
SKRIFAR
„Það hefur verið stöðug kreppu-
stjórnun í sjö ár á sjúkrahúsun-
um,“ sagði Kristín Astgeirsdóttir
þingkona við umræður um heil-
brigðiskerfið á Alþingi í gær. Ingi-
björg Pálmadóttir heilbrigðisráð-
herra sagði þvert á móti að allt
stæði til bóta í heilbrigðiskerfinu.
Umræðan snerti flesta átakafleti
heilbrigðiskerfisins.
Ræða Kristínar endurspeglaði
kjarnann í gagnrýni stórnarand-
stöðunnar: „Það fer mestur tími
allra stjórnenda, lækna og hjúkr-
unarfræðinga, í að glíma við ein-
hverjar niðurskurðartillögur.
Þessi styrjöld hefur geisað á
sjúkrahúsunum í sjö ár... Ungir
læknar segja upp störfum og þeir
hafa boðað það líka að þeir vinni
samkvæmt vinnutímatilskipun
Evrópusambandsins. Sérfræðing-
ar hafa sagt upp samningi við
Tryggingastofnun. Og það sem ef
til vill er alvarlegast; það gengur
illa að fá lækna heim aftur eftir
að þeir hafa haldið til náms er-
lendis. Þetta er grafalvarlegt mál
og við hljótum að spyrja hver sé
framtíð íslenska heilbrigðiskerfis-
ins ef svo heldur fram sem horf-
ir.“
Hækka læknalaun
Kristín sagðist vilja hækka laun
lækna: „Byrjunarlaun aðstoðar-
lækna eru 85.227 krónur á mán-
uði eftir 6 ára háskólanám. Það
er unnin gríðarleg yfirvinna á
sjúkrahúsunum, miklu meiri en
góðu hófi gegnir og jaðrar við ör-
yggismörk... Það kerfi sem við
búum við núna var búið til um
1970 og síðan hafa menn þar,
eins og í tryggingakerfinu, sífellt
verið að plástra og bæta utan á án
þess að horfa á heildina. Miklar
breytingar hafa átt sér stað síðan
1970, bæði í læknavísindum og
allri tækni og ekki síst þeir mildu
búferlaflutningar sem átt hafa sér
stað á landinu. Því spyr ég hvort
ekki sé kominn tími til að horfa á
þetta kerfi allt í heild... í stað þess
að halda áfram að plástra kerfið.“
Sjúklingar aukaatriði
Það var Margrét Frímannsdóttir
sem óskaði eftir umræðunni. I
Hættum að plástra k
Margrét: Stór hópur hefur ekki efni á
ad fara til læknis.
upphafsræðu sinni vitnaði hún í
harðorða samþykkt frá aðalfundi
Læknafélags Islands í haust þar
sem kemur fram gagnrýni á
ástandið í heilbrigðiskerfinu. Þar
segir að stefnuleysi í heilbrigðis-
málunum skapi öryggisleysi hjá
sjúklingum og starfsmönnum
heilbrigðisþjónustunnar, sem
ekki verði við unað.
Margrét sagði lýsingin í sam-
þykkt Læknafélagsins væri ekki
fögur en því miður alveg sönn.
Hún benti á að enn sæi ekki fyrir
endann á kjaradeilu heilsugæslu-
lækna, sem hófst fyrir meira en
ári síðan.
Fjársvelti
Hún sagði einnig að heilsugæslan
hefði búið við fjársvelti í mörg ár.
Víða hefði gengið illa, eða alls
ekki tekist, að manna stöður
lækna við heilsugæslustöðvar.
Dregið hefði verulega úr þeirri
þjónustu sem heilsugæslan hefði
veitt. Hún nefndi fjölmörg dæmi
máli sínu til stuðnings og sagði að
það gengi ekki lengur að segja að
„málið sé í athugun," eins og ráð-
herra svari allri gagnrýni.
Þá ræddi hún um kjaramál
heilbrigðisstéttanna og sagði þau
í uppnámi hjá sérfræðilæknum
og þroskaþjálfum.
Margrét benti á að nú væri svo
komið að stór hópur sjúklinga
teldi sig ekki hafa efni á að leita
til læknis eða að Ieysa út Iyf. í
könnun sem landlæknir lét gera
Ingibjörg: Allt stefnir til bóta i
heilbrigdiskerfinu.
á íisllaincdli
Höfum alltaf til afgreiðslu
með skömmum fyrirvara
ýmsar stærðir og
útfærslur af MAN-
vörubílum. Höfum einnig
til afgreiðslu strax ýmsar
stærðir af PESCI
bílkrönum.
KRAFIURehf.
VAGNHÖFÐA 1-112 REYKJAVÍK
SÍMI 567 7100 - FAX 567 7106
MAN
verulblll
áir