Dagur - 30.10.1997, Page 1
Verð í lausasölu 150 kr.
80. og 81. árgangur - 205. tölublað
Ráðherra ræðst á
N eytendasamtökin
Neytendasamtökin
íhuga málssókn vegna
Pósts og síma. Sam-
gönguráöherra sakar
Neytendasamtökin
umóheilindi. Hálf-
tíma „vinaspjaH“
hækkar uiii 124% á
einu ári.
Mikil harka er hlaupin í sam-
skipti samgönguráðherra og
Neytendasamtakanna eftir að
Póstur og sími meinaði Neyt-
endasamtökunum um aðgang að
gögnum. Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra fer ómyrkum orð-
um um framkvæmdastjóra Neyt-
endasamtakanna, Jóhannes
Gunnarsson, í viðtali við blaðið í
dag.
„Eg skil ekki af hveiju Neyt-
endasamtökin berjast svona
harkalega gegn sjónarmiðum
landsbyggðarinnar í þessu efni.
Af hverju líta Neytendasamtökin
ekki á sig sem samtök allra neyt-
enda á landinu? Þetta hefur áður
komið fram mjög sterklega fram
hjá Jóhannesi Gunnarssyni. Hér
er ekki um að ræða að greiðslu-
byrði verði almennt þyngd á
heimilunum. Breytingin léttir
auðvitað á sumum og þyngir öðr-
um en ef Jóhannes Gunnarsson
lítur á heimilin í heild sinni, er
ekki um þyng-
ingar að ræða,“
sagði samgöngu-
ráðherra í sam-
tali við blaðið í
gær.
Viðskiptaleynd
er nauðsynleg
Halldór segir um
upplýsingaleynd
Pósts og síma að
ekkert fyrirtæki
sem hann þekki
í eðlilegum
rekstri og sam-
keppni myndi
gefa upp þessi
mál. „Hér er um viðskiptaleynd
að ræða og ég myndi bregðast
eigendum símans - þjóðinni - ef
ég færi að gefa slíkt upp. Augljós-
lega myndu hagsmunir fyrirtæk-
isins skaðast og þar með hags-
munir eigendanna, þjóðarinnar,"
sagði Halldór.
Finnur fær póstinn
A hinn bóginn segir Jóhannes
Gunnarsson að það hafi sýnt sig
að ekkert þýði að rita samgöngu-
ráðherra bréf og bera upp fyrir-
spurnir. Hann svari þeim ekki.
Jóhannes gagnrýnir harðlega að
P&S, einokunarfyrirtæki á stóru
sviði, taki sjálft ákvarðanir líkt og
um gjaldskrárbreytinguna, án
þess að nokkur nema ráðherra
hafi þar umsagnar- eða eftirlits-
vald. „Þetta eru mjög óeðlileg
vinnubrögð. Það vantar hlutlaus-
an- eftirlitsaðila," segir Jóhannes.
Hann segir jafnframt að máls-
sókn sé meðal úrræða sem sam-
tökin eru nú að skoða. Vegna
málsins hafa Neytendasamtökin
ritað viðskiptaráðherra bréf þar
sem liðsinnis hans er óskað.
Miltil „spjaUhæRkun“
Dagur hefur reiknað út að gjald-
skrárbreytingar Pósts og síma feli
í sér stórkostlega hækkun á
venjulegu hálftíma „vinaspjalli"
innanbæjar fyrir fólk hvar sem er
á landinu. Framvegis endist
skrefið aðeins í 100 sekúndur, í
stað 180 sek. eins og nú er. Fyr-
ir tæpu ári, í desember sl., var
skrefið mun lengra, eða 240 sek-
úndur, Skrefum í hálftíma
vinaspjalli hefur þannig fjölgað
úr 7,5 upp í 18 á minna en ári,
eða um 140%. — BÞ
Sjá bls. 3 og fréttaskýringu
bls. 8-9
Notendur Internetsins eru hvað óánægðastir meó gjaldskrár-
breytingu Pósts og síma. Þessir Verkmenntskælingar á
Akureyri iétu það þó ekki trufla sig I gær. - mynd: brink
Atvinnustyrk-
ir áAkureyri
Atvinnumálanefnd Akureyrar
hefur veitt styrki til atvinnuþró-
unar og eru styrkirnir aðallega
veittir smærri fyrirtækjum og
einstaklingum. 5 aðilar hlutu
styrk, sjónvarpsstöðin Aksjón,
300 þúsund krónur. Arni Faug-
dal, 200 þúsund vegna stofnun-
ar „Útboðsbanka", fyrirtækis
sem fylgist með útboðum og
miðlar upplýsingum. Teista ehf.,
í eigu Jóns B. Kristjánssonar og
lsaks Oddgeirssonar, hlýtur 200
þúsund króna styrk til undirbún-
ings fullvinnslu sjávarafurða til
framleiðslu á heilsufæði. Baf-
verk ehf. hlýtur 200 þúsund til
að vinna að þróun frumgerðar á
„Eldvara", sem er búnaður sem
rýfur rafstraum af eldavél ef liiti
frá hellu skapar eldhættu. Og
Loftur Sigvaldason hlýtur 200
þúsund króna styrk vegna stofn-
'unar lítils matvælafyrirtækis sem
framleiðir til niðurlagningar á
valinni, frosinni rækju. — GG
Hluti styrkþega ásamt formanni atvinnumálanefndar, Hákoni Hákonarsyni og Berglindi Hallgrímsdóttur,
starfsmanni nefndarinnar. - mynd: brink
Sr. Flóki Kristinsson: biskup vill að
Evrópuprestur fái stöðu diplómats.
Prestar er-
lendis eru
diplómatar
íslensku sóknarprestarnir í
London og Kaupmannahöfn eru
með svokallaða diplómatapassa,
sem tryggja þeim töluverð rétt-
indi. Biskup hefur fundað með
utanríkisráðherra um stöðu Evr-
ópuprestsins með sama í huga.
Þetta kom fram á fyrirspurna-
tíma kirkjuþings. Geir Waage,
formaður Prestafélags Islands,
lagði fram fyrirspurn um kjör,
réttindi og aðbúnað sóknar-
presta sem þjóna erlendis, kostn-
að vegna þeirra og reynsluna af
árslangri stöðu Evrópuprests.
Sagði Geir að þjóðsögur væru á
kreiki um kjör þessara manna og
rétt að fá fram réttar upplýsing-
ar.
Olafur Skúlason biskup lagði
fram gögn um prestana erlendis
og sagði kjör þeirra ekkert leynd-
armál. Hann greindi frá
diplómatastöðu prestanna í
London og Kaupmannahöfn og
sagði hvað reynsluna af Evrópu-
prestinum varðar, að það gilti
um alla prestana erlendis, sem
margir væru til Htnis um, að
þjónusta þeirra væri talin dýr-
mæt og mörgum mikils virði.
Arslaun og launatengd gjöld
ásamt staðaruppbót prestanna
erlendis voru 1996 sem hér seg-
ir: I Gautaborg 4,4 milljónir
króna, I Kaupmannahöfn 3,7
milljónir, í London 3,9 milljónir
og Evrópupresturinn er með 2,4
milljónir, en starf hans hefur sér-
staka fjárveitingu úr ríkissjóði.
Helsti annar kostnaður sem fylg-
ir þessum prestum er starfs-
kostnaður, húsaleiga, fargjöld og
dagpeningar. — FÞG
Sjálfstæðis-
UU'IIII
hræddir?
bls. 7
Skot frá
Sigmari
bls. 2
rrmri
Perfecta'
HrinjrnsarJælur
SINDRI
-sterkur í verki
wmmssasummm