Dagur - 30.10.1997, Side 2
2 -FIMMTVDAGUR 30.OKTÓBER 1997
FRÉTTIR
Sigmar B. Hauksson: „Ég þekki menn sem stunda refa-
veiöar, og þeir segja aö þetta séu mjög skemmtiiegar veiö-
ar. Það væri því vel hugsandi, að fara að hæna menn frek-
ar að því að stunda þær.“
Verður sport að veiða ref?
Af hverju eltast vel vopn-
aðir sportveiðimeim við
bjargarlausar rjúpur, en
fást ekki við verðugri and-
stæðinga, t.d. ref, nema
gegn greiðslu?
Ríkissjóður gerir ráð fyrir að borga
mönnum 17 milljónir á næsta ári fyrir
að bana samtals 9 þúsund refum og
minkum. Þetta er næstum sama upp-
hæð og ríkið vonast eftir að fá í tekjur
fyrir sölu 10.500 veiðikorta, sem aðal-
lega eru keypt af sportveiðimönnum til
að stunda fuglaveiðar. En hvers vegna
æða þeir gráír íyrir járnum upp um holt
og heiðar til að skjóta saklausar og
bjargarlausar rjúpur, en sniðganga
slyngari og verðugri andstæðinga, eins
og mink og ref, nema þeir sem fá borg-
að fyrir það?
Spuming að hæna menn að refa-
veiðum
„Það væri spurning að hæna menn að
refaveiðum," svaraði Sigmar B. Hauks-
son, formaður Skotveiðifélags Islands.
„Ég þekki menn sem stunda refaveiðar,
og þeir segja að þetta séu mjög
skemmtilegar veiðar. Það væri því vel
hugsandi, að fara að hæna menn frek-
ar að því að stunda refaveiðar, því yfir
háveturinn, þ.e.a.s. eftir áramót, er
ekki um auðugan garð að gresja hjá
skotveiðimönnum. A hinn bóginn hef-
ur víða þótt óæskilegt að við sportveiði-
menn værum að veiða refi, vegna at-
vinnumannanna, þeirra sem fá borgað
fyrir þetta og líta á það sem sína at-
vinnu. En færu t.d. Veiðistjóraembætt-
ið og fleiri að kynna þetta fyrir veiði-
mönnum, þá mundu ugglaust margir
fara á fjöll og veiða refi.“
— En minkurinn, er hann ekkert
s-pennandi?
„Jú, jú, en það er kannski ekki beint
sportveiðimennska. Minkurinn er inn-
flutt aðskotadýr og plága bara eins og
rottur. Hann er mest veiddur með
hundum og Iítið sport í þessu. Þetta er
bara eins og að veiða rottur, menn
þurfa að nota járnkalla, bensín, skóflur
og öll hugsanleg meðul til að ná hon-
um. Hann kemst mjög víða og mikil
vinna og fyrirhöfn að ná honum. En
það eru strákar í þessu, margir hverjir
af áhuga sem hafa gaman af þessu.“
Hlufverk rjúpunnar að vera étin
Varðandi refinn sagðist Sigmar þó vita
um sportveiðimenn sem ekki skjóta
tófu þó þeir sjái hana. Líta svo á að hún
eigi rétt á Iandinu rétt eins og við
mannfólkið.
— Á rjúpan þá eliki sama rétt?
„Rjúpan er fædd til að vera étin. Allar
rjúpur eru étnar, annað hvort af ref,
fálka eða hrafni, eða þá okkur. Það er
bara hennar hlutskipti í lífinu að vera
matur,“ sagði Sigmar B. Hauksson.- HEI
FRÉTTAVIÐTALIÐ
Hrafn Jökulsson, varaþing-
maður Alþýðuflokksins,
gerði mikla lukku í nýja
flokknum sínum, Sjálf-
stæðisflokknum, á dögmi-
um. Hann gekk í flokkinn
til að styðja galvaskan
frambjóðanda í prófkjör-
inu í Reykjavík, Guðlaug
Þór Þórðarson, og hélt síð-
an glimrandi ræðu í sigur-
veislunni. Ýmsir sjálfstæð-
isforingjar munu hafa fagnað herhvöt hans ineð
lófataki og faðmlögum. Haft var á orði að svo
hlýjar viðtökur hefði Hrafn aldrei fengið á með-
an hann var í Alþýðuflokknum.
Hrafn Jökulsson er vinsæll
í pottinum og þar voru
menn að rifja upp þetta
með afsögn hans sem rit-
stjóra hjá Mannlífi. Fáir
skildu rökin fýrir því að
hann þyrfti að segja af sér
sem ritstjóri þótt saksókn-
ari sem hann skrifaði um
segði ekki af sér. En nú er
fullyrt að eftirmaður
Hrafns á Mannlífi hafi ver-
ið ráðinn, en það er Karl Th. Birgisson fyrrum
ritstjóri Pressunnar sem mun taka við blaðinu
og ritstýra ásaint Guðrúnu Kristjánsdóttur. Guð-
rún var raunar meðritstj óri Hrafns á sínum tíma
líka. Þetta þóttu tvöfaldar fréttir í heita pottin-
um því ekki einasta er Karl Th. orðinn ritstjóri á
ný, heldur er hann víst fluttur á mölina í Reykja-
vík aftur eftir að hafa húið í nokkur inisseri á
Stöðvarfirði...
m
Kari Th. Birgisson.
Hrafn Jökulsson.
Jóhann Sigur-
jónsson
sjávarlíffræðingur og sendi-
herra.
Sarnið varum 13,2% sam-
dráttá veiðum úrnorsk-ís-
lenska síldarstofninum fyrír
áríð 1998 á fundi íslend-
inga, Norðmanna, Rússa,
Færeyinga og Evrópusam-
bandsins í Osló á þríðjudag.
Þróuð verði Tangtíma-
nýtmgarstefna
— Heildarkvótinn verður 1.290.000
tonn og hlutur Islendinga því um 202
þúsund tonn í stað 233 þúsund tonna sem
samið var um í desember á síðasta ári. Er
þetta ásættanleg niðurstaða?
“Það er engin launung að íslenska sendi-
nefndin lagði mikla áherslu á að tekið yrði
tillit til ráðgjafar Alþjóða hafrannsóknaráðs-
ins, sem gekk út frá 20% niðurskurði á
heildarmagni frá úthlutun þessa árs. Þó
hrygningarstofninn sé í góðu ásigkomulagí
þá hefur nýliðun verið mjög léleg undanfar-
in ár og því miður ekki fyrirsjáanlegur neinn
sterkur árgangur. Við teljum því Iykilatriði
að hrygningarstofninn sé sem stærstur og
að dregið verði úr veiðiálaginu svo upp komi
árgangur sem geti staðið undir veiðum úr
norsk-íslenska síldarstofninum í nánustu
framtíð."
— Var það vilji fulltrúa allra þeirra
þjóða sem hittust í Osló að semja?
“Það gerðu allir sér grein fyrir því að það
er mikill ábyrgðarhlutur að semja ekki um
þessar veiðar úr stærsta fiskveiðistofni í
Norður-Atlantshafi. Það þekkja allir sögu
síldveiðanna og að stofninn nánast hvarf á
sjöunda áratugnum. Það var mjög erfitt að
koma á samningi í fyrra og langt samnings-
ferli að baki honum, svo það voru ýmis
grundvallaratriði að baki þegar til þessa
fundar kom nú. Islenska sendinefndin vildi
að farið yrði eftir tillögum Alþjóða hafrann-
sóknaráðsins og veiðar dregnar saman um
20%, en samið var um nálægt 200 þúsund
tonna minnkun á aflamarki í stað 300 þús-
und tonna. Kvóti okkar hefði þá orðið um
185 þúsund tonn. Fijálsar veiðar hefðu þýtt
hrun fyrir síldarstofninn og því hefði skap-
ast mjög alvarlegt ástand ef ekki hefði náðst
samkomulag. Eg held að við megum vel við
una við þessi málalok."
— Hvenær má búast við að veiðarnar
hefjist?
“Veiðarnar hefjast ekki af neinum krafti
fyrr en maí eða júnímánuði og vonandi tekst
að veiða kvótann nú, en á síðasta ári veidd-
ust ekki 13 þúsund tonn af 233 þúsund
tonna kvóta. íslensk skip mega með sama
hætti og á þessu ári veiða allan sinn hlut í
Iögsögu Færeyja og færeysk skip sinn hlut í
lögsögu Islands. Eins mega íslensku skipin
veiða sinn hlut í lögsögu Jan-Mayen og
norsk skip mega veiða sem svarar tveimur
þriðju hlutum af kvóta Islands, eða 150
þúsund tonn, í lögsögu okkar. Rússnesk
skip fá að veiða 5.600 tonn á afmörkuðu
svæði innan íslensku Iögsögunnar í stað
6.500 tonna á þessu ári.“
— Var mörkuð einhver stefna til lengri
tíma?
“Sendinefndirnar fimm voru sammála um
nauðsyn þess að þróa langtímanýtingar-
stefnu fyrir síldina til að tryggja skynsam-
lega nýtingu stofnsins, þar sem höfuðmark-
miðið er að draga úr sveiflum í stofnstærð
og veiðum. Settur var á fót vinnuhópur til
að vinna að tillögugerð að höfðu samráði við
sérfræðinga Alþjóða hafrannsóknaráðsins.
Þessi vinna hefst nú strax á vetrarmánuðum
og á að liggja fyrir á fundi þessara sömu að-
ila í Reykjavík í októbermánuði á næsta ári.“
- GG