Dagur - 30.10.1997, Qupperneq 4
4- FIMMTUDAGVR 30.OKTÓBER 1997
ro^ir
FRÉTTIR
L. j
Ungir framarar ánægðir
Á aðaTrundi Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík var þeim ár-
angri fagnað, sem áunnist hefur hjá Reykjavíkurlistanum í málefnum
borgarinnar á síðustu þremur árum. Er hvatt til áframhaldandi sam-
starfs þeirra sem að Reykjavíkurlistanum standa en áréttað „að jafn-
ræðis sé gætt á milli þessara ólíku hreyfinga og að sjónarmiðum sem
flestra verði gaumur gefinn við ákvarðanatöku innan Reykjavíkurlist-
ans.“ Sérstaklega er hvatt til þess að frumkvæði, áræðni og hug-
myndaríki ungs fólks verði virkjað fyrir komandi átök, þannig skipi
ungt fólk þriðjung sæta á framboðslistanum og þess gætt að ungt fólk
verði skipað í allar nefndir og ráð borgarinnar. Þorlákur Traustason
var endurkjörinn formaður FUF í Reykjavík.
Þrotabú rnkkar forstjóraim
Lúðvík Th. Halldórsson, fyrrum eígandi Bónus-ís (Veigar hf.), hefur
verið dæmdur af Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða þrotabúi fyrir-
tækisins rúmar 2,6 milljónir króna.
Skiptastjóri þrotabús Veiga hf. höfðaði mál gegn Lúðvík til inn-
heimtu á þessari upphæð, sem Lúðvík er talinn hafa stofnað til eftir
að fyrirtækið varð gjaldþrota. Bar Lúðvík því við að annar maður, sem
annaðist um Qármál fyrirtækisins, hefði ráðstafað fjármununum, en
dómarinn taldi ábyrgðina liggja hjá Lúðvíki. Veigar hf. rak ísbúðina
Bónus-ís við Ármúla en var úrskurðað til gjaldþrotaskipta í október
1995, eftir að reksturinn hafði verið seldur. — FÞG
Vigtarmenn
Orðsending til allra vigtarmanna sem eru
með réttindi frá því í maí 1993 eða eldri.
Ákvæði í lögum nr. 100/1992 kveða á um að Iög-
gilding vigtarmanns gildi í allt að 5 ár.
Nú er sá tími að renna á enda og taka því allir vigtarmenn
með löggildingu 5 ár og eldri að missa réttindi sín
ef ekki verður að gert.
Til að endurnýja Iöggildingu sína þurfa
vigtarmenn að koma á dagsnámskeið.
Hér á eftir er skrá um fyrirhugaða námskeiðsstaði
og eru þeir allir með sama fyrirveranum:
A „Lágmarksþátttaka er 10 manns“
B Þátttakendur þurfa að skrá sig með viku fyrirvara
C Námskeiðinu lýkur með prófi
D Námskeiðsgjald er kr. 10.000,-
Fáist næg þátttaka verða námskeiðin á eftirfarandi stöðum:
1. Patreksfirði, 5. nóv. 1997, haldið f Félagsheimilinu
2. lsafirði, 7. nóv. 1997, haldið í Stjómsýsluhúsi
3. Sauðárkróki, 10. nóv. 1997, haldið í Strönd, húsi Verkalýðsfélagins Fram
4. Þórshöfn, 12. nóv. 1997, haldið í Félagsheimilinu Þórsveri
5. Reyðarfirði, 14. nóv. 1997, haldið í Félagsheimilinu Félagslundi
6. Hornafirði, 17. nóv. 1997, haldið í S.V.F.Í. húsinu, Álaugareyjarvegi
7. Vestmannaeyjum, 19. nóv. 1997, haldið í Týsheimili
8. Keflavík, 21. nóv. 1997, haldið í Flughótelinu
9. Ólafsvík, 2. des. 1997, haldið í Félagsheimilinu Klifi
10. Akureyri, 4. des. 1997, haldið í Galtalæk, húsi Flugbjörgunarsveitar
11. Egilsstaðir, 5. des. 1997, haldið í S.V.F.Í. húsi, Bláskógum 3
12. Reykjavík, 9. des. 1997, haldið í Dugguvogi 2, húsnæði Ökuskóla íslands.
Skráning þátttakenda og allar nánari
upplýsingar gefnar á Löggildingarstofu,
sími 568 1122
Uppskipun þorskafla á Tálknafirði. - mynd: gs
„TJrskurður dómar-
ans er brandari“
Valdimar vildi ekki sætta sig
við að kvótinn festist í höndum
„sægreifaaðals" og krafðist þess
að fá ríflegan kvóta; 500 tonn af
þorski, 100 tonn af ýsu, 150
tonn af ufsa, 50 tonn af steinbít,
20 tonn af grálúðu, 20 tonn af
skarkola, 50 tonn af rækju, 10
tonn af humri, 1.200 tonn af síld
og 5.000 tonn af Ioðnu.
„Niðurstaða héraðsdómarans
er brandari," segir Valdimar í
samtali við Dag. „Það er óþol-
andi að ríkisvaldið skuli nota lög-
fræðilegt hókus pókus til að
komast hjá því að taka á grund-
vallarspurningum um mannrétt-
indi. Dómarinn fellst á rök ríkis-
valdsins um að ég hafi ekki hags-
muni af málinu umfram alla
aðra og að hagsmunir mínir séu
þar af leiðandi ekki lögvarðir.
Þetta þýðir um leið að það getur
enginn tekið á þessu mannrétt-
indamáli. Þetta er hreinlega
hlægilegt,“ segir Valdimar. — FÞG
Héraðsdómari vísaði
frá kröfu Valdimars
H. Jóhannessonar iini
að fá kvótaskerf úr
„sameign þjóðarinn-
ar“. Frávísunin kærð
tH Hæstaréttar og
köUuð brandari.
Máli Valdimars H. Jóhannesson-
ar, framkvæmdastjóra Samtaka
um þjóðareign, gegn Islenska
ríkinu, þar sem Valdimar krafðist
þess að fá úthlutuðum kvóta til
að geta hafið útgerð, var vísað
frá Héraðsdómi Reykjavíkur nú
fyrir helgi. Valdimar hefur
ákveðið að kæra frávísunina til
Hæstaréttar með kröfu um að
málið fái efnislega meðferð.
Valdimar hefur ekki stundað
útgerð, en vísar til fiskveiði-
Valdimar H. Jóhannesson.
stjórnunarlaga um að fiskurinn
sé sameign þjóðarinnar og í
ákvæði stjórnarskrárinnar um
jafnræði og atvinnufrelsi. I vor
sótti hann um veiðileyfi til að
stunda veiðar í atvinnuskyni, en
fékk strax synjun, sem Valdimar
taldi ólöglega og því höfðaði
hann mál.
Vilji til írekan
samemingar
Samhliða sameming-
arkosningum í þrem-
ur sveitarfélögum við
utanverðan Eyjafjörð,
þ.e. Árskógsströnd,
Dalvík og Svarfaðar-
dal 18. október, var
spurt uin æskHega
stærð sveitarfélags og
frekari sameiningu
eyfirskra sveitarfé-
laga.
68,6% allra svarenda töldu sam-
eininguna vera vissan áfanga til
frekari sameiningar við Eyja-
fjörð. Þessa niðurstöðu er ekki
hægt að túlka öðru vísi en skýr
skilaboð kjósenda í áðurnefnd-
um sveitarfélögum til annarra
íbúa Eyjafjarðar. Engin afger-
andi niðurstaða fékkst þegar
spurt var um ástæður fyrir því að
kjósendur sögðu nei á kjördag.
Aðeins 3,7% þeirra sem sögðu
nei töldu sameininguna hindra
sameiningu allra sveitarfélaga
við Eyjafjörð. Þátttakendur í at-
kvæðagreiðslunni um samein-
ingu voru 846 en í skoðanakönn-
uninni alls 582, þ.e. 87% á Ár-
skógsströnd og í Svarfaðardal en
61 % á Dalvík.
I svari við spurningu um það
hvort hér væri að verða til æski-
lega stórt sveitarfélag sögðu
17,3% þeirra sem greiddu sam-
einingu atkvæði já, við spurn-
ingu hvort sameining væri áfangi
að því að sameina allan Eyjafjörð
í eitt sveitarfélag sögðu 30,2% já
og í spurningu um hvort samein-
ing nú væri liður í að sameina
sveitarfélög við utanverðan Eyja-
Qörð og að Siglufjörður, Olafs-
fjörður og Hrísey bættust í hóp-
inn síðar, sögðu 8,9% já.
Þeir sem greiddu sameiningu
mótatkvæði voru mjög samstiga,
því við öllum spurningum sem
fyrir þá voru lagðar var fylgi
6,4%. Spurt var hvort þcttbýli og
dreifbýli ættu ekki samleið í einu
sveitarfélagi, hvort viðkomandi
hefði viljað sameina fleiri sveit-
arfélög í þessari lotu og hvort
sameining nú tefði fyrir eða
hindraði sameiningu allra sveit-
arfélaga við Eyjafjörð.
Svarfdælingar voru sáttastir
við að þá stærð sveitarfélags sem
samþykkt var, eða 25% sem svör-
uðu, 19,4% Dalvíkinga og 5,7%
Árskógsstrendinga. - GG