Dagur - 30.10.1997, Blaðsíða 6
6- FIMMTVDAGUR 30.OKTÓBER 1997
Thypr
ÞJÓÐMÁL
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjórar: stefán jón hafstein
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Aðstoðarritstjórí: BIRGIR GUÐMUNDSSON
Framkvæmdastjórí: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgöru 31, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang rítstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjaid m. vsk.: í.oso KR. Á mánuði
Lausasöiuverð: 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
Grænt númer: 800 7080
Simbréf auglýsingadeildar: 460 6101
Símbréf ritstjórnar: 460 6171CAKUREYRI) 551 6270 (reykjavíK)
Hroki risaeölimnar
í fyrsta lagi
Það verður miklu dýrara fyrir fólk að tala saman í síma eftir
helgina. Þetta er vegna gífurlegra hæklcana Pósts og síma á
greiðslu fyrir innanbæjarsímtöl - þau símtöl sem alþýða
manna notar langmest. I desember síðastliðnum voru þessi
símtöl hækkuð um 32 prósent. Nú hækka þau aftur í kringum
80 prósent. Þetta er því önnur stórhækkunin á verði innan-
bæjarsímtala á tæpu ári. A móti kemur að landið verður allt
eitt gjaldsvæði og að samtöl til útlanda verða ódýrari.
í öðru lagi
Flestar fjölskyldur í landinu þurfa að borga miklu meira fyrir
að lyfta símtólinu og spjalla við ættingja og vini. Þetta á ekki
aðeins við um þá sem eiga heima á höfuðborgarsvæðinu, held-
ur íbúa þéttbýlisstaða um allt land. En stórhækkanir á kostn-
aði vegna innanbæjarsímtala lenda einnig með miklum þunga
á þeim fjölmörgu sem nota Netið. Það skiptir engu máli hvort
farið er inn á Netið til lærdóms, leiks eða viðskipta - öll notk-
un þess verður miklu dýrari. Með þessari hækkun er tvímæla-
laust verið að setja verulegar hömlur á nýtt samskiptaform
sem Islendingar hafa verið fljótir að tileinka sér og sem býður
upp á gífurlega möguleika til menntunar og viðskipta. Það
stingur óneitanlega í stúf við íjálglegar yfirlýsingar ráðamanna
um mikilvægi Netsins.
í þriöja lagi
Hér er gripið til prósentuhækkana af því tagi sem íslenskir
neytendur þekkja ekki lengur í þjóðfélagi þar sem verðbólga
hefur verið í lágmarki árum saman. Það er fyllilega eðlilegt að
svo stórfelldar hækkanir á símakostnaði fjölskyldnanna í land-
inu veki hörð viðbrögð víða í þjóðfélaginu. Stjórnendur Pósts
og síma, sem er enn að öllu leyti í eigu ríkisins, hrista hins
vegar af sér öll mótmæli með hroka risaeðlunnar. Þeir neita
jafnvel að upplýsa um raunverulegar forsendur þessara hækk-
ana; segja í reynd við þjóðina, sem þó á fyrirtækið, að hennar
hlutverk sé það eitt að borga það sem upp er sett og þegja.
Svei! Svei!
Elías Snæland Jónsson
Tíu kratastrákar
Þá fækkar enn um einn í for-
ustusveit krata. Ossur Skarp-
héðinsson er orðinn ritsjórí
DV og augljóslega á hraðferð
út úr pólitík. Össur sagði í út-
varpsviðtali í gær að hann
hygðist starfa áfram sem
þingmaður samhliða hinu
nýja starfi, enda væri mikill
akkur í því að hafa mann inni
á þingi fyrir „málgagn" sem
lætur sig þjóðmál og stjórn-
mál skipta, svo gripið sé til
þeirra orða sem hann notaði.
Hann hyggst greini-
lega verða einhvers
konar þingfréttarit-
stjóri á óháðu dag-
blaði og hlýtur því í
framhaldinu að
ganga í þingflokk
„óháðra" þar sem
Ögmundur Jónasson
er einn fyrir.
Össur á útleiö
Össur hefur nefnilega gefið
sterklega til kynna að með því
að taka að sér ritstjórn DV
muni ýmislegt annað breytast
í kjölfarið. Þannig virðist nán-
ast liggja fyrir að hann fer
ekki aftur í framboð til AI-
þingis og sé á útleið úr pólitík.
Það að hann segir ekki af sér
þingmennsku strax sé þá ein-
faldlega eins konar aðflug að
því sem koma skal. Með
þeirri yfirlýsingu er fátt orðið
eftir af forustusveit krata úr
Viðeyjarstjórninni, en forusta
flokksins nánast eins og hún
leggur sig er hætt í pólitíkinni
og farin að snúa sér að ein-
hverju öðru. Eiður er sendi-
herra, Jón Sigurðsson er
bankastjóri, Karl Steinar er
forstjóri, Guðmundur Árni er
enn að ná sér eftir afsögn, Jón
Baldvin á leið til Washington
og nú síðast Össur í blaða-
V
mennskuna. Sighvatur er
nánast (Rannveig virðist ein-
hvers staðar í fríi) aleinn eftir
í flokksforustunni af gamla
góða genginu. Þetta er nánast
eins og í kvæðinu um negra-
strákana - og nú er aðeins
eftir einn lítill kratastrákur!
Líkn með sam-
einmgarþraut
En kannskí sameining jafnað-
armanna bjargi honum úr
einsemdinni. Stóra
spurningin sem
vaknar við einsemd
Sighvats í Alþýðu-
flokksforustunni er
auðvitað sú hvort
flokkurinn sé yfir
höfuð tilbúinn til
stórræða í samein-
ingarmálum við
Hjörleifa og Stein-
gríma, án þess að hafa ein-
hvern með sögulegar rætur
þarna við stjórnvölinn við
hliðina á Sighvati. Óneitan-
lega virkar það léttvægt að all-
ir nema hann séu einhverjir
nýgræðingar. Aðeins einn að-
ili sem fór úr flokksforustunni
er Iíklegur til að koma aftur
og veita Sighvati nokkra líkn
með sameiningarþrautunum -
Jóhanna Sigurðardóttir. Jó-
hanna undi illa plássleysinu í
flokksforustunni á sínum
tíma, en nú eru þeir farnir
sem hún tókst á við. Sighvat-
ur er einn eftir. Nú er lag fyr-
ir Jóhönnu að koma aftur og
þá í nafni sameiningarinnar -
hennar tími er loksins kom-
inn! „Einn lítill negrastrákur
gleði tók að nýju, kynntist
negrastelpu og þau eignuðust
stráka tíu!“ garri.
JÓHANNES
SIGURJONS-
SON
skrifar
Upplýsmgaharðllflð
Póstur og sími, „einkafyrirtæki í
eigu almennings," situr nú undir
harðri gagnrýni fyrir að vilja ekki
gefa upp ástæður fyrir breyting-
um á gjaldskrá. Almenningur
krefst þess að sjálfsögðu að fá að
vita hversvegna fyrirtæki í al-
menningseigu ætlar að láta
þennan sama almenning borga
meira en áður fyrir sömu þjón-
ustu. Því væntanlega verður sú
reyndin.
Forsvarsmenn Pósts og síma
bera við viðskiptaleynd, sem þýð-
ir líklega að þeir vilji ekki að
samkeppnisaðilar þeirra í brans-
anum fái vitneskju um belli-
brögðin sem að baki breytingun-
um liggja. Hvaða samkeppnisað-
ilar?, spyrja menn svo auðvitað í
forundran.
Upplýsingasteinsmuga
í þessu máli er Póstur og sími að
gera sig sekan um framferði sem
almenningur þolir ver en flest
annað, þ.e. upplýsingaharðlífi.
Þessa endalausu tregðu til að
veita sjálfsagðar upplýsingar um
málefni sem eru ekki einkamál
viðkomandi stofnunar. Enginn
er að óska eftir rennandi upplýs-
ingasteinsmugu, þannig að fróð-
leikurinn frussist í allar áttir. En
svona framferði er óþolandi.
Þarna er um upplýsingar að
ræða sem neytendur eiga kröfu á
að komi fram í dagsljósið.
Hið sama gildir auðvitað um
laun bankastjóra „einkabanka í
eigu almennings." Og ferða-
kostnað maka bankastjóra. Og
raunar hvað annað sem almenn-
ingur, eígandi fyrirtækjanna, vill
fá að vita.
Póstur og krimmi
Forsvarsmenn stofnana og fyrir-
tækja virðast aldrei átta sig á
þeim grundvallarsannindum að
leynd kallar æfinlega á tor-
tryggni. Þeir sem liggja á upplýs-
ingum eins og ormur á gulli eru
æfinlega grunaðir um græsku og
álitnir hafa óhreint mjöl í poka-
horninu. Þannig er borðleggj-
andi að almenningur er t.d. þess
fullviss að leyndarlaun banka-
stjóranna séu miklu hærri en
þau raunverulega eru. Og þar
með er hið eftirsótta „goodwill11
bankanna og bankastjóranna
miklu minna en ella væri og eru
raunar fremur „badwill“ á meðan
Ieynd er ekki aflétt.
Hið sama gildir um Póst og
síma núna. Meðan fyrirtækið
gerir ekki hreint fyrir sínum dyr-
um, þá er eins víst að það gangi
undir nafninu „Póstur og
krimmi" manna á meðal og í
framhaldinu ver í staklt búið til
að mæta samkeppni í framtíð.
Gróðapuugar?
Nú er eins víst og raunar trúlegt
að fullkomlega eðlilegar og skilj-
anlegar ástæður búi að baki
ákvörðun Pósts og síma um
gjaldskrárbreytingar. Til dæmis
að fyrirtækið vilji græða enn
meira en það hefur gert hingað
til. Það eru náttúrlega eðlilegar
viðskiptaástæður sem allir „sam-
keppnisaðilar" ættu að skilja vel.
A.m.k. virðist ekki ástæða til
þess að leynd hvíli yfir gróðahug-
sjónum fyrirtækja og menn þurfa
ekkert að skammast sín fyrir að
vilja græða, nema gróðinn sem
að er stefnt sé meiri en góðu hófi
gegnir. Og þar er hugsanlega
komin fram skýring á Ieyndinni.
Hvemig lístþér á Össur
Skarphéðinsson sem
nýjan ritstjóra DV?
Ellert B. Sihrani
fv. rítstjóri DV.
Össur er
ágætur mað-
ur, snarpur
penni og
h e f u r
reynslu sem
ritstjóri. Eg
átta mig
hinsvegar
ekki á því
hvernig það
á að ganga upp að vera þingmað-
ur tiltekins flokks og á sama tíma
ritstjóri fijáls og óháðs dagblaðs.
Það gekk að minnsta kosti ekki
upp þegar ég var í þeirri stöðu.
Ég óska honum og blaðinu bara
alls góðs.
Páll Pétursson
félagsmálaráðherra og hóndi á Höllu-
stöðum.
Eg leyfi mér
nú bara að
hlægja þegar
þú segir mér
þessar frétt-
ir. En það
var annars
óskaplegt
áfall fyrir
DV þegar
Ellert B. Schram hvarf af blað-
inu, því hann var vandaður
blaðamaður. Trúðverðugleikinn
eykst ekki við að Össur komi
þarna inn.
Svavar Gestsson
þingmaðurAlþýðubandalags ogfv.
ritstjðrí Þjóðvíljans
Mér líst bara
vel á að fá
hann þarna
inn en ég
spyr mig líka
þá hvort
hann sé að
yfirgefa hið
pólítíska
svið, sem
væri merki-
Iegt því hinn þingmaður Alþýðu-
flokksins í Reykjavík er á leið til
Washington. Já, ég myndi sakna
Össurar af þingi. Sjálfur hef ég
enga trú á því að hann muni í
framtíðinni bæði gegna þing-
mennsku og ritstjórastörfum.
Það fyrirkomulag ætlaði Ellert
man ég að hafa á sínum tíma, en
gekk ekki upp.
Ingólfur Margeirsson
Jv. ritstjóriAlþýðublaðsins.
Össur er
mjög reynd-
ur blaða-
maður og
kraftmikill
ritstjóri og
ég vænti
mikils af
honum sem
nýs ritstjóra
DV. Ég held líka að það væri rétt
mat hjá honum að hætta í fram-
tíðinni þingmennsku vegna hins
nýja starfs, svo DV geti geti óum-
deilanlega gegnt sinni fjórða-
valds skyldu.