Dagur - 30.10.1997, Side 7
FIMMTUDAGVR 30. OKTÓBER 1997 - 7
Thyptr.
ÞJÓÐMÁL
Samfylldng hræðir
sjálfstæðismenn
KRISTINN H.
GUNNARSSON
ALÞINGISMAÐUR AlÞÝÐUBANDALAGSINS,
OG
SIQHVATUR
BJORGVINSSON
FORMAÐUR ALÞÝÐUFLOKKSIMS,
SKRIFA
LJndanfarið hafa verið mjög á
döfinni hugmyndir um samfylk-
ingu á vinstri væng íslenskra
stjórnmála. Samfylking er sam-
heiti yfir samstillingu kraftanna.
IVleð samfylkingu aetla menn að
beina kröftum sínum að sameig-
inlegu markmiði í stað þess að
beina þeim að hvor öðrum. Náist
það fram er fyrirsjáanlegt að
grundvallarbreyting verður í
stjórnmálunum.
Þegar er farið að koma í ljós að
formenn Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks eru orðnir óró-
legir og í Degi síðastliðinn laug-
ardag er viðtal við Davíð Odds-
son, formann Sjálfstæðisflokks-
ins og forsætisráðherra. Þar
grípur hann til stóryrða og dæm-
ir til útlegðar sameiginlegan lista
A flokkanna, en það er ein út-
gáfa af samfylkingarhugmynd-
unum og sú sem margir aðhyll-
ast.
Útlegðardómur
Þessi útlegðardómur formanns
Sjálfstæðisflokksins sem gildir til
eilífðar eru óvenjulega hörð við-
brögð og ekki dæmi um sam-
bærileg í marga áratugi. Sjálf-
■
Greinarhöfundar gera ýmsar athugasemdir viá ummæli Davíðs Oddssonar í viðtali við Dag um síðustu helgi.
stæðisflokkurinn hafnar fyrir-
fram öllu samstarfi við A flokk-
ana ef þeir kjósa að starfa sam-
an. Auk þess tekur Davið Odds-
son að sér að gefa út sömu yfir-
lýsingu fyrir hönd Framsóknar-
flokksins. Fróðlegt verður að
fylgjast með viðbrögðum forystu-
manna Framsóknarflokksins,
skyldu þeir láta sér vel líka að
formaður Sjálfstæðisflokksins
hafni fyrir þeirra hönd samstarfi
við A flokkana?
En skilaboðin frá Davíð Odds-
syni til Framsóknarflokksins eru
skýr. Orðrétt eru ummælin
þessi: „Eg hef enga trú á því að
slíkur listi yrði talinn hæfur kost-
ur í stjórnarsamstarfi, hvorld hjá
Sjálfstæðisflokki eða Framsókn-
arflokki. Eg held að hann muni
dæma sig í eilífa útlegð og
harma það svo sem ekki.“
Öllugasta stjórnmálaaflid
Hvers vegna þessi hörðu við-
brögð? Astæðan er einföld. Sam-
fylking A flokkanna og fleiri hef-
ur alla möguleika á að verða öfl-
ugasta stjórnmálaaflið á íslandi
og þar með yrði Sjálfstæðis-
flokknum skákað til hliðar sem
ráðandi flokki. Um það snýst
málið, þess vegna er Davíð
Oddsson skelfingu lostinn og
leggur til atlögu nú þar sem
framundan eru viðræður flokk-
anna um mögulegan málefna-
grundvöll fyrir samstarfi þeirra.
Takist að skapa traustan grund-
völl fyrir samstarfinu hefur verið
stigið stórt skref frá ofurvaldi
Sjálfstæðisflokksins í íslensku
samfélagi.
Gróska, samtök jafnaðar-
manna og félagshyggjufólks, hef-
ur á undanförnum mánuðum
unnið að sameiginlegum mál-
efnagrundvelli og mun kynna af-
raksturinn á næstu dögum. Það
verður fróðlegt að heyra hverjar
tillögur þeirra verða. Laugar-
daginn 1. nóvember kl. 12.00
verður fundur þeirra á Isafirði
og hvetjum við Vestfirðinga til
þess að mæta þar og kynna sér
hugmyndir Gróskumanna.
Miinar foreldra um
huudrað milljóiiir?
HEÚGI
GRIMSSON
, Fræðslufulltrú1
s iÚÉ k. # Krabbameinsfélags
Reykjavíkur,
SKRIFAR
Hvernig þætti nemendum og
foreldrum að bæta árlega fjórum
nýjum margmiðlunartölvum við
tölvukost hvers grunnskóla á
landinu? Þannig gætu fjölskyld-
ur lagt sitt af mörkum til þess að
bæta framtíðarhag ungu kyn-
slóðarinnar. Engu þarf að fórna
til að koma þessu í framkvæmd.
Nemendur í 8.-10. bekk grunn-
skóla verja þessum tæpu
100.000.000. kr. til kaupa á
sígarettum á hverju ári. Þó svo
að mikill minnihluti unglinga
reyki þá er fíknin dýru verði
keypt. í 8. -10. bekk reykja flest-
ir daglegir reykingamenn 1/4-1/2
pakka. Samkvæmt uppskriftum
og kokkabókum tóbaksframleið-
enda er Iagt allt kapp á að dag-
skammturinn verði að lágmarki
heill pakki hjá hverjum fíkli.
Tóbaksauglýsingax í kvik-
iiiyiidum
Lítill vafi Ieikur á að það er
markmið tóbaksframleiðenda í
markaðssókn sinni að hvetja
óharðnaða unglinga til þess að
byrja að reykja. Nú þegar tób-
aksauglýsingar eru bannaðar er
það hryggilegt að kvikmynda-
framleiðendur og leikarar þiggi
fúlgur fjár fyrir að gera reykingar
aðlaðandi í kvikmyndum. Nýlegt
dæmi um þetta er þáttur Juliu
Roberts í myndinni My Best Fri-
ends Wedding. Þar upphefur
hún reykingar á ónefndri sígar-
ettutegund og á í andlegum
skyndikynnum við saklausan
hótelstarfsmann fyrir tilstuðlan
tóbaksfíknarinnar. Skilaboðin
sem þessi annars huggulega leik-
kona sendir æskunni eru
óhugguleg. Auglýsingin sem
sígarettuframleiðandinn keypti
er augljós.
Unglingar í brennidcpU
Hlutverk tóbaksauglýsinga er
samkvæmt áætlun tóbaksfram-
leiðenda að gera það aðlaðandi
og eftirsóknarvert fyrir ungt fólk
að reykja.
Aætlunin er í fimm liðum:
Búið til aðstæður sem líkjast
hversdagslífi unglinga, en tengið
þær því að verða fullorðinn,
komast til manndóms.
Höfðið til þess að sígarettan sé
ein af fáum Ieiðum sem nota
megi til að sýna fram á að maður
sé kominn í fullorðinna manna
tölu.
Sýnið sígarettuna sem hluta
þeirra lífsnautna sem eru ólög-
Iegar eða bannaðar en unglingar
geta þó veitt sér.
Reynið eftir bestu getu að
tengja sígrettur áfengi, kynlífi og
öðrum sambærilegum hlutum.
Ekki nefna heilsu eða atriði
tengd góðri heilsu.
Eins er áberandi í tóbaksaug-
Iýsingum að umhverfið er ekki
reykmettað, fólkið er ungt,
glæsilegt og glaðvært. Tób-
aksneysla er mjög oft tengd úti-
veru og útivist í auglýsingum
tóbaksframleiðenda.
íþróltir og tóbak
Tóbaksframleiðendur ná ekki
einungis til æskunnar í gegnum
óbeinar auglýsingar í kvikmynd-
um. Tóbaksframleiðendur
styrkja íþróttaviðburði víða um
heim. Það er niðurlægjandi fyrir
íþróttahreyfinguna hvernig tób-
ak er til dæmis tengt aksturs-
íþróttum. Hér heggur sá er hlífa
skyldi.
Sniðgöngiun fíknicfnasala
Við þurfum að snúa bökum sam-
an gegn „löglegum“ fíkniefna-
framleiðendum, fíkniefnainn-
flytjendum og fíkniefnasölum.
Þá fjármuni sem óharðnaðir
ungiingar verja til kaupa á tóbaki
er hægt að nýta á uppbygglegan
og skynsamlegan hátt. Eg hvet
því foreldra og forráðamenn til
að leyfa ekki reykingar unglinga
og sniðganga þær fjölmörgu
verslanir og söluturna sem selja
börnum undir 18 ára aldri tóbak.
Veitum börnum okkar frelsi til
framtíðar og tökum þátt í að
skapa reyklausa kynslóð.