Dagur - 30.10.1997, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 - 9
\
iga málssókn
igaöldina - en notkun kostar nú margfalt meira eftir að Póstur og sími breytti gjaldskrá, með verulegum hækkunum.
'■ árangurslaust að ná tali af honum í gær. Samflokksmaður hans, Halldór Blöndal, segist vera að gera landsbyggðinni greiða.
týrir ítarlega frá hér í miðopnu. - mynd: brink
petta hefur áður komið fram
mjög sterklega fram hjá Jóhannesi
Gunnarssyni. Hér er ekki um að
ræða að greiðslubyrði verði al-
mennt þyngd á heimilunum.
Breytingin léttir auðvitað á sum-
um og þyngir öðrum en ef Jó-
hannes Gunnarsson lítur á heim-
ilin í heild sinni, er ekld um þyng-
ingar að ræða.“
Breytt viðhorf
I ljósi þessara orða ráðherrans er
vert að rifja upp svar hans við fyr-
irspurn á Alþingi um hvort Póstur
og sími hefði einhver áform uppi
um að taka upp eina gjaldskrá fyr-
ir landið. Þá sagði samgönguráð-
herra m.a. varðandi hugsanlega
breytingu á einni gjaldskrá fyrir
öll símtöl: „Jafnframt liggur það
ljóst fyrir að þunginn af gjald-
heimtunni mun færast til í ein-
hverjum mæli. Hann mun áreið-
anlega færast frá atvinnurekstrin-
um yfir á einstaklingana, á heim-
ilin. Það mun verða kostnaðartil-
færsla frá fyrirtækjum á heimilin
ef landið verður gert að einu
gjaldsvæði. Ég hygg að allir séu
sammála um það sem hafa sett
sig inn í þessi mál.“
Brosleg rök
Á hinn bóginn gefur Halldór
Blöndal lítið fyrir þau rök Jóhann-
esar að það sé villandi varðandi
heildardæmi Pósts og síma nú að
erlendi taxtinn sé tekinn með.
„Þetta er broslegt. Ef Jóhannes
veit eitthvað um símann þá veit
hann að þróunin er hvarvetna sú í
heiminum að símtöl eru að
lækka. Ef það ætti að vera miklu
dýrara að hringja héðan til Eng-
lands en öfugt þá myndu menn
ekkert hringja héðan til Englands.
Við myndum missa viðskipti. Ég
held einnig að Jóhannes ætti að
velta því fyrir sér að íjölmargir
foreldrar eiga námsmenn erlendis
og eiga að geta haft samband við
þá á viðunandi kjörum.“
Intemetshækkunin léttvæg
Samgönguráðherra segir varðandi
óánægju Internetsnotenda að
hann hafi beitt sér fyrir því að
lækka kostnað Internetsþjónustu
til annarra landa. „Nú kostar það
sama að nota Internetið hvar sem
er á landinu en það var gagnrýnt
af ýmsum þeim sem ráku Inter-
netsþjónustu og sáu ekki fram í
tímann. Mér er sagt að meðal-
notkun á Internetinu sé hálftími.
Ef viðkomandi notar sér þá þjón-
ustu á kvöldin eða um helgar
kostar það aðeins rúmar 30 kr.
eftir breytinguna. Mér finnst það
satt að segja ekki gefa tilefni til
mikils hugaræsings."
l'iimur vísar áfram
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, sagði í samtali
\dð blaðið í gær að hann hefði enn
engar forsendur til að tjá sig um
þessa deilu. „Ég treysti mér ekki
til að meta málið á þessu stigi en
þegar ákveðnar forsendur liggja
fyrir mun þetta erindi Neytenda-
samtakanna verða sent til Sam-
keppnisstofnunar. Ég vil að öðru
leyti ekki leggja mat á rökræður
um viðskiptaleyndarmál eða ekki
á þessu stigi," sagði Finnur.
Torgo f'sjjziom
32 mb EDO vinnslu-
minni
2 mbATI 3d Skjákort
15“ Skjár
3.2 GB Harður diskur
20 x Geisladrif
16 bita hljóðkort og
2 hátalarar
33,6Voice modem
Windows ‘95 uppsett
Windows ‘95 lyklaborð,
mús og motta
BC ICVAL
Hafnarstræti - Akureyri - sími 461 5050