Dagur - 30.10.1997, Qupperneq 11
FIMMTVOAGVR 30.0KTÓBER 1997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Verdbréfasalar í Hong Kong bíða meö öndina í hálsinum.
Stiómast af
hj ar öhvötinni
Miklar liræringar
hafa verid á flestirm
helstu verdhréfamörk-
uðiiin heimsins und-
anfama daga.
Samkvæmt kenningum hagfræð-
innar eiga hlutabréfamarkaðir að
virka samkvæmt Iögmálum rök-
vísinnar og fjárfestar eru taldir
stunda útreikninga sína af fyllstu
nákvæmni til þess að þeir geti
uppskorið sem mestan hagnað.
Raunveruleikinn er hins vegar
sá, eins og komið hefur svo
áþreifanlega í ljós á allra síðustu
dögum, að tillfinningar og hug-
lægir þættir hvers konar hafa
mikil áhrif á „eftirspurnina" sem
er annar helmingurinn í jöfn-
unni góðu um „framboð og eftir-
spurn".
Hrun Dow Jones verðbréfa-
vísitölunnar um 554 stig á
mánudag og ris hennar um 337
stig strax daginn eftir „er öfga-
kennt dæmi um þá staðreynd að
ákvarðanatakan í Wall Street
byggist á tilfinningalegum en
ekki skynsamlegum rökum,“ seg-
ir Maurice Elvekrog, sem er
bæði sálfræðingur og Qármála-
sérfræðingur í Bandaríkjunum.
Hann \áll rekja æðið sem gekk
yfir kauphallirnar í New York og
víðar að verulegu Ieyti til „hóp-
eðlis" eða „hjarðmennsku", eink-
um þeirra sem hafa umsjón með
verðbréfasjóðum, en þeir brugð-
ust nánast allir sem einn við erf-
iðleikum á verðbréfamörkuðum í
Asíu með því að selja í stórum
stíl, og keyptu síðan leifarnar
daginn eftir á lækkuðu verði.
„Sjálfsagt má segja að verðbréfa-
salarnir hugsi upp á eigin spýtur
og stundi sjálfstæða útreikn-
inga,“ sagði hann. „En þeir búa
flestir við sama veruleikann og
hafa miklar áhyggjur af ársfjórð-
ungsútkomum. Þeir vilja ekki
sitja eftir í súpunni."
James Gottfurcht, sálfræðing-
ur í Los Angeles sem starfar sem
ráðgjafi hjá Mastercard, segir
verðbréfasala stjórnast af sams
konar „eðlishvötum" og oft búa
að baki kaupæði hvers konar
sem grípur fólk. „Sú tilfinning að
það sé einhvers konar öryggi í því
að fylgja fjöldanum býr í eðli
okkar," segir hann. „Jafnvel þótt
þú hugsir rökrétt og fáir góða
fjárfestingarráðgjöf, þá eru allar
líkur til þess að þú látir hópeðlið
stjórna þér.“
Einn sálfræðingurinn enn, Ed-
ward Charlesworth í Houston,
telur ennfremur að alþjóðavæð-
ing fjármálamarkaða geti gert
fjárfesta enn óöruggari um sinn
hag þannig að þeir hneigist frek-
ar til að taka óskynsamlegar
ákvarðanir vegna þess að allt er
orðið mun flóknara en áður, eft-
ir að tengsl við erlend hagkerfi
og erlenda gjaldmiðla urðu
meiri.
-Los Angeles Times
Sýslumaðurinn á Húsavík
Útgarði 1, 641 Húsavík
Sími 464 1300
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Útgarði 1, Húsavík,
þriðjudaginn 4. nóvember 1997 kl. 10
á eftirfarandi eignum:
Aðalbraut 24a, Raufarhöfn, vöru-
skemma, þingl. eig. Jón Eiður
Jónsson, gerðarbeiðandi Lands-
banki íslands Höfuðstöðvar.
Aðalbraut 32, Raufarhöfn, þingl.
eig. Örn Trausti Hjaltason, gerðar-
beiðandi Sýslumaðurinn á Húsavík.
Ásgata 17, Raufarhöfn, þingl. eig.
Valdimar Árnason og Ægir Þormar
Pálsson, gerðarbeiðendur Bygging-
arsjóður ríkisins, Byggingarsjóður
ríkisins húsbrd. Húsnæðiss. og
Tryggingamiðstöðin hf.
Brúnagerði 1, Húsavík (neðri hæð),
þingl. eig. Meindýravarnir íslands
ehf, gerðarbeiðandi Iðnlánasjóður.
Garðarsbraut 13, Húsavík, (efri
hæð og ris), þingl. eig. Svavar
Kristmundsson, gerðarbeiðendur
Samskip hf., Sýslumaðurinn á
Húsavík, Tryggingamiðstöðin hf. og
Vátryggingafélag íslands hf.
Garðarsbraut 62-64, Húsavík
9,62% þingl. eig. Bakaríið-Kringlan
efh, gerðarbeiðandi Húsavíkur-
kaupstaður.
Garðarsbraut 67, Húsavík 0302,
þingl. eig. Sigríður Sigurjónsdóttir,
gerðarbeiðandi Byggingasjóður rík-
isins húsbrd. Húsnæðiss.
Grundargarður 7, Húsavík, íb. 103,
þingl. eig. Anton Sigmarsson, gerð-
arbeiðandi Olíuverslun íslands hf.
Hesthús, Staðarfelli, Ljósavatnshr.
talin eign gerðarþ., þingl. eig. Bald-
vin Björnsson, gerðarbeiðandi ís-
landsbanki hf. höfuðst. 500.
Smiðjuteigur 7b, Reykjahverfi,
þingl. eig. Stöplar hf, gerðarbeið-
andi íslandsbanki hf. höfuðst. 500.
Stórhóll 77, Húsavfk, þingl. eig.
Guðrún Sigríður Gunnarsdóttir og
Sigurður Helgi lllugason, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður verka-
manna.
Sýslumaðurinn á Húsavík,
29. október 1997.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, ftr.
Stálboltar 8.8
og ryðfríir
STRAUMRÁS
Furuvöllum 3 • 600 Akureyri • Sími 461 2288 • Fax 462 7187
Bein lína til Kína
Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Jiang Zemin samþykktu á einka-
fundi sínum í fyrrinótt að sett verði upp beint símasamband milli
höfuðborganna Washington og Beijing, þannig að þeir geti ræðst við
hvenær sem þurfa þykir. Svipað fyrirkomulag er á milli Washington
og Moskvu, þar sem Jeltsín Rússlandsforseti er í beinu símasambandi
við Clinton. Þeir Clinton og Jiang áttu síðan opinberan fund í
gærkvöld, og var reiknað með að að þeim fundi loknum yrði tilkynnt
um samkomulag um bann við dreifíngu gjöreyðingarvopna milli ríkj-
anna.
Mandela heiðrar Gadhafi
Nelson Mandela, forseti Suður-Afríku, lagði leið sína til Lfbfu í gær í
annað sinn á tæpri viku. Tilefnið að þessu sinni var að veita Moamm-
ar Gadhafi, forseta Líbíu, æðsta heiðursmerki sem Suður-Afríka veit-
ir útlendingum. Vangaveltur kviknuðu um hvort Mandela væri að
reyna að miðla málum milli Gadhafis og Vesturlanda, þannig að unnt
verði að aflétta refsiaðgerðum á Líbíu. I ræðu sinni ráðlagði Mandela
Gadhafi, án þess þó að segja það berum orðum, að framselja tvo Líb-
íumenn sem eftirlýstir eru vegna Lockerbiemálsins í Bretlandi, en
Gadhafi sagði það aldrei koma til greina.
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000,00
1983-2.fl. 01.11.97 -01.05.98 kr. 77.428,40
* Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1,
og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 30. október 1997
SEÐLABANKIÍSLANDS