Dagur - 30.10.1997, Side 12
12- FIMMTUDAGUR 30.OKTÓBER 1997
ÍPRÓTTIR
FylM forðað frá
gj aldþroti
Knattspymudeild
FylMs er eitt þeirra
íþróttafélaga sem
berjast í bökkum.
Skuldir félagsins voru
hátt í 30 milljónir
fyrir ári og farið hafði
verið fram á að félagið
yrði lýst gjaldþrota.
Forráðamenu félags-
ius hafa nú snúið hjól-
inu við.
„Það er rétt. Það var lögð fram
gjaldþrotabeiðni á hendur félag-
inu og það var gert árangurslaust
Iögtak. Menn voru að reyna að
semja og það tókst um miðjan
dag í fyrradag," sagði Kolbeinn
Finnson, formaður knattspyrnu-
deildar Fylkis.
Kolbeinn sagði að þetta væri
sex ára gamalt búningamál sem
mcnn væru að ýfa upp núna og
að hann skildi ekki tilganginn
með þeim fréttaflutningi sem af
því var.
„Það var búið að semja um
þessa skuld en það var alveg
sama hvernig við reyndum, það
náðist aldrei í fréttamann Stöðv-
ar 2 og hann ansaði okkur ekki
og sagðist fara með fréttina þó
búið væri að semja.“ Félagið
keypti á sínum tíma Henson
búninga, út á víxil, sem ekki
hafði verið greiddur. „Við höf-
um ekki átt í neinum útistöðum
við Halldór Einarsson út af þessu
máli. Þessi víxill hafnaði í hönd-
unum á lögfræðingi sem sótti
málið á hendur félaginu. Ég veit
ekkert hver átti þessa kröfu en
um hana hafði verið samið og því
er það dálítið högg fyrir okkur að
fá frétt eins og þá sem flutt var á
Stöð 2.“
„Við höfum unnið hörðum
höndum að því að koma böndum
á skuldasöfnun félagsins og ég
held að það hafi gengið mjög vel.
Skuldirnar voru 26 milljónir fyrir
ári en okkur hefur tekist að
minnka þær niður í um 12 millj-
ónir nú og við teljum það mikinn
árangur. Við erum nú í skilum
með nær öll okkar mál. Það er
aðeins eitt mál sem við erum enn
að semja um og það er á við-
kvæmu stigi núna,“ sagði Kol-
beinn ennfremur.
Ein af sparnaðarráðstöfunum
Fylkis var sú að liðið keypti enga
Ieikmenn fyrir síðustu leiktíð.
Félagið missti hinsvegar níu leik-
menn til annarra Iiða og þeir sem
komu í staðinn fengu engar
greiðslur, nema „bónusa" fyrir
unna leiki, eins og aðrir leik-
menn liðsins. í Árbænum vinna
menn að því að koma fjárhag fé-
lagsins í gott lag sem er alger for-
senda þess að árangurinn á vell-
inum batni. Fylkir var lengi vel í
fallsæti í fyrstu deildinni framan
af leiktíðinni en er á leið náði
þjálfari þeirra, Atli Eðvaldsson,
að stilla strengi liðsins og vinna
það út úr vandanum. Nýi þjálfar-
inn; Olafur Þórðarson, tekur því
við blómlegra búi en forveri
hans, bæði fjárhagslega og fót-
boltalega. - GÞÖ
Nýr Kani til Njarðvíkur
Njarðvíkingar hafa fengið nýjan
bandarískan leikmann í stað
Dalon Bynum, sem þeir ráku á
dögunum. Sá heitir Petey
Sessom og kemur til landsins á
föstudaginn. Hann lék með Old
Dominum háskólanum, þar sem
David Grissom lék á sínum tíma.
Sessom er sagður mjög góður
leikmaður, skotbakvörður og
framherji, sem skorar mikið af
stigum auk þess sem hann hirðir
Ijölda frákasta f hverjum leik. í
sumar lék hann í liði með
Sherrick Simpson, leikmanni
Hauka, og samkvæmt heimild-
um Dags er Sessom sagður öfl-
ugri leikmaður en Simpson.
Hann ætti því að nýtast Njarð-
víkingum vel í baráttunni í vetur.
- GÞÖ
Júgóslavar nær öruggir
Júgóslavar eru komnir með ann-
an fótinn í lokakeppni HM í
knattspyrnu eftir yfirburðasigur á
Ungverjum í fyrri leik liðanna um
sæti í keppninni. Lokatölur urðu
7:1 en leikið var í Ungverjalandi
og búast má við því að síðari leik-
urinn á heimavelli Júgóslava
verði formsatriði. Branko
Brnovic, Miroslav Djukic og Dej-
an Savicevic komu gestunum í
3:0 eftir tíu mínútna leik og Pre-
drag Mijatovic gerði síðan
þrennu áður en Savo Milosevic
gerði sjöunda mark gestanna
eftir aðeins 63 mínútna leik.
Bela Illes skoraði eina mark Ung-
verja, tveimur mínútum fyrir
leikslok.
Italir náðu öðru stiginu gegn
Rússum, þegar liðin áttust við í
Moskvu. Christian Vieri skoraði
mark ítala eftir fallegt einstakl-
ingsframtak á 49. mfnútu en
Sergei Yuran jafnaði tveimur
mínútum síðar. Vallaraðstæður
voru mjög erfiðar og það snjóaði
stanslaust á meðan á leiknum
stóð.
Króatar unnu öruggan sigur á
Ukraínu á heimavelli sínum.
Slaven Bilic, sem leikur með
enska úrvalsdeildarliðinu Ev-
erton, skoraði fýrra markið á 11.
mínútu eftir sendingu Robert
Prosinecki og Goran Vlaovic
gerði það síðara í byrjun síðari
hálfleiksins. Króatar höfðu
nokkra yfirburði í Ieiknum.
Belgar standa vel að vígi í
viðureigninni gegn írum. Jafnt
varð í fyrri leik liðanna í Dublin,
1:1. Denis Irwin náði forystunni
fyrir íra á 7. mínútu en Luc Nilis
jafnaði metin eftir hálftíma leik.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
FREYJA KRISTJÁNSDÓTTIR,
frá Ásgarði, Húsavík,
verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju
föstudaginn 31. október kl. 13.30.
Páll Vigfússon, Ragnheiður Valdimarsdóttir,
Gísli Vigfússon, Hrafnhildur Ragnarsdóttir,
Helgi Vigfússon, Unnur Jónsdóttir,
Elísabet Vigfúsdóttir, Leifur Jósefsson,
Hjálmar Vigfússon, Hildur Kristjánsdóttir,
Sigurður Vigfússon, Dögg Hindriksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Slæmur lokakafli gerði
útslagið gegn Litháen
Draumar íslensku
landsliðsmanuanua
um sæti í lokakeppni
Evrópumótsins á
næsta ári, biðu mikla
hnekki á lokamínút-
um leiksins gegn Lit-
háen í Kaunas í gær-
dag. Heimamenn skor-
uðu fimm mörk í röð
og ljóst er að barátta
íslands fyrir sæti í
lokakeppni Evrópu-
mótsins er rétt að
byrja.
Leikurinn var í járnum mest all-
an tímann. Island leiddi oftast í
fyrri hálfleik og náði um tíma
fjögurra marka forskoti, 8:4, en
var marki yfir, 14:15, í Ieikhléi.
Heimamenn höfðu oftar undir-
tökin í síðari hálfleiknum og
náðu tvívegis þriggja marka for-
skoti, en íslenska liðið náði þó
forystunni í Ieiknum, 27:28, þeg-
ar fimm mínútur voru til loka.
Það reyndist svanasöngur ís-
lenska liðsins, því lokakaflinn
varð hálfgerð martröð. Litháar
skoruðu fimm mörk í röð og inn-
sígluðu sinn fyrsta sigur í riðlin-
um.
Mörk íslands:
Patrekur Jóhannesson 8
Bjarki Sigurðsson 8
Björgvin Björgvinsson 5
Julian Róbert Duranona 2
Dagur Sigurðarson 1
Róbert Sighvatsson 1
Staðan er nú þessi í riðlin-
um:
Júgóslavía 2 1 1 0 54:48 3
ísland 3 1 1 1 85:86 3
Litháen 3 1 1 1 80:83 3
Sviss 2 0 1 2 54:56 1
Leikur Sviss og Júgóslavíu fer
fram í kvöld og fjórða umferðin í
riðlinum, leikir íslands við Lit-
háen og Júgóslavíu við Sviss, fer
fram um næstu helgi. Riðla-
keppninni Iýkur síðan með viður-
eignum Litháen við Sviss og ís-
lands og Júgóslavíu um sætin tvö
sem gefa rétt til að leika í loka-
keppni EM á Ítalíu á næsta ári.