Dagur - 15.11.1997, Page 7

Dagur - 15.11.1997, Page 7
LAUGARDAGUR 15. NÚVEMBER 1997 - 23 LÍFIÐ t LANDINU Þau eiga, þrjú heymar- laus böm. Hanna Kristín erþeirra elst eða 17 ára og hún hefurmikinn áhuga á kvikmyndum, Lísa Rut er 14 ára og elskar tónlist, GunnarBjöm er 8 ára og veit allt um Spice Girls. Foreldrarnir Fríða Birna og Jón Gunnar ásamt Hönnu Kristinu og kærastanum hennar, Guðmundi Rúnari, Lísu Rut og Gunnari Birni. mynd: e.ól. Þau eru heyrnarlaus þótt öll noti þau heyrnartaeki sem hjálpa þeim mismikið, allt eftir því hve langt þau eru komin í þjálfun ís- lenskunnar. „Stelpurnar hafa til- einkað sér íslenskuna vel og strákurinn er farinn að gera það núna,“ segja foreldrarnir, Fríða Birna Kristinsdóttir og Jón Gunnar Jónsson, sem búa ásamt börnunum þremur á Sogavegin- um í Reykjavík. Þrátt fyrir heyrnartækin þá heyra þau ekki allt talað mál eins og við. Það getur verið að það ldippist ofan og neðan af setningum, en þau lesa af vör- um ef talað er skýrt og greini- lega. Oll bömin fæðast herymarlaus, hvaða skýringu hafa læknar gefið ykkur? „Það er engin skýring gefin. Við erum bæði með fulla heyrn og það er ekki vitað með vissu hvort þetta er í ættum. I raun hefur enginn sýnt því áhuga að rannsaka það, en fyrst um er að ræða bæði kynin þá er þetta talið arfgengt. - En við höfum ekkert verið að ganga á eftir skýringum, það er meira um vert að vera virkur og hjálpa þeim áfram í lífinu.“ í lagi ef maður er jákvæður Á meðan á samtalinu stendur tala þau Fríða Birna og Jón Gunnar tvö tungumál, því elsta dóttirin, Hanna Rristín, sest hjá okkur og tekur þátt í samræðun- um ásamt kærastanum, Guð- mundi Rúnari. Hanna Kristín er í M.H. „Mér gengur ágætlega í skól- anum,“ segir hún. Síðan túlkar mamma: „Eg er ekki búin að ákveða á hvaða braut ég ætla en ákveð það í janúar." Sá yngsti á heimilinu situr við tölvuna frammi og Lísa Rut er niðri í kjallara með kettinum Emblu, líklega að hlusta á tón- list. Foreldrarn- ir nefna að það sé verst hvað það sé orðið dimmt úti ann- ars myndu þau fara með blaða- manni og ljós- myndara að sýna þeim stór- fjölskylduna úti í garði, kanínu- hjónin sem nýlega eignuðust sjö unga. Lísa Rut og Gunnar Björn eru í Vesturhlíðarskóla sem er sér- skóli fyrir heyrnarskert og heyrnarlaus börn. Skólinn er fá- mennur, telur um 30 börn, þar af eru níu börn 2-5 ára á leik- skóladeild. Samfélag heyrnar- lausra á íslandi er því lítið og telur Jón Gunnar að í hverjum árgangi fæðist að jafnaði 1-2 heyrnarlaus börn á ári. Við ræðum um hvort þessi litli fjöldi geri það að verkum að erfitt sé fyrir heyrnarlausa og aðstandendur þeirra að búa á Is- landi en niðurstaðan er sú að það fari líklega mest eftir hugar- farinu. „Ef maður er jákvæður er þetta í lagi en ef ekki finnst manni allt ómögulegt," segir Hanna Kristín. Fáir sem kuiiiia tákii mál „Það hefur orð- ið heilmikil þróun í mál- efnum heyrnar- lausra síðan við eignuðumst fyrsta barnið og táknmálið hef- ur þróast gífur- lega síðustu tíu ár en það er vissulega erfitt hvað það eru fáir sem tala þetta tungumál. I október síðast liðnum útskrifuð- ust Ijórir táknmálstúlkar frá Há- skóla Islands sem er hreint frá- bært en það er mikil þörf fyrir fleiri. Eins þarf að viðurkenna táknmálið sem þeirra móður- mál. Þeirra móðurmál er ekki ís- lenska," segir Fríða Birna og Hanna Kristín kinkar kolli og bætir við: „Táknmálið er okkar móðurmál, íslenskan er númer tvö.“ Fríða Birna og Jón Gunnar segja að þegar textavarpið kom hafi verið bundnar miklar vonir við það en að það hafi ekki alveg staðið undir væntingum. „Á sunnudaginn var mjög ánægju- legt að leikrit Hlínar Agnarsdótt- ur var textað og í framtíðinni vonar maður að flest sjónvarps- efni verði textað. Nú er búið að leggja fram frumvarp um breyt- ingar á útvarpslögum um að fréttir verði textaðar og á það að taka gildi 1. janúar 1999. Þetta er mjög brýnt enda myndu ekki bara heyrnarlausir njóta góðs af heldur einnig allur sá fjöldi sem er farinn að tapa heyrn.“ Alltaf áfall að eignast fatlað barn Þegar fæðist einstaklingur í fjöl- skyldu sem er með sérþarfir þarf að læra inn á það. Fyrir utan að læra þeirra tungumál, táknmál- ið, hafa foreldrarnir reynt að hjálpa börnunum að fara í gegn- um það sama og önnur börn, ekki að loka þau af heldur leyfa þeim að taka fullan þátt. Fríðu Birnu er greinilega tamt að nota táknmálið fullum fetum. „Við byijuðum að læra tákn- mál þegar Hanna var eins árs eða þegar hún greindist heyrn- arlaus. Okkur fannst hún ekkert bregðast við hljóðum frá 6 mán- aða aldri og upp frá því var farið að athuga málið.“ Var áfallið ekki mikið þegar stðan fæðast tvö önnur heyrnar- laus böm? „Jú, það er alltaf áfall við hvert fatlað barn sem maður eignast. Þegar Lísa fæddist voru bytjaðar heyrnarmælingar á ný- burum upp á Landspítala og á þriðja degi kom í ljós að það var eitthvað mikið að hjá henni. Við áttum samt ekkert von á því að annað barn yrði heyrnarlaust líka. Þegar Fríða Birna var ófrísk að þriðja barninu voru þeim hjónum gefnar einhveijar vonir um að barnið yrði ekki heynar- laust ef um annað kyn var að ræða, þ.e. ef þau eignuðust strák. Líkurnar voru þannig taldar meiri á eðlilegri heyrn en síðan kom annað í ljós.“ Spice Girls, hestar og kvikmyiidir Áhugamálin hennar Hönnu Kristínar eru vídeó, bækur og tímarit, Lísa Rut elskar að hlusta á tónlist og nýlega keypti hún sér hest, Gunnar Björn er aftur á móti með Spice Girls æði og fylgist vel með þeim kúltúr öllum. Er hljóðlátara hjá ykkur en öðrum bamafjölskyldum? „Nei, alls ekki. Þessi börn eru bara eins og önnur börn, hafa sínar þarfir og kröfur og láta heyra í sér ef þau eru ekki ánægð með eitthvað." -MAR „ Við höfum ekkert verið aðganga á eftir skýring- um,það ermeira um vert að vera virkur og hjálpa þeim áfram í lífinu. “

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.