Dagur - 15.11.1997, Blaðsíða 15

Dagur - 15.11.1997, Blaðsíða 15
X^ur LAUGARDAGUR ÍS.NÓVEMBER 1997- 31 LIFIÐ I LANDINU „Annað hvort gerir maður það eða ekki „Ég erauðvitað stór- glæsilegurí hverju sem er, það skiptirengu máli hverju ég klæðist. “ Hann stendur við kajak, klædd- ur rauðri bómullarpeysu og gömlum gallabuxum, með svarta rauða kollhúfu á höfði og fínleg gleraugu. „Eg er að sauma skinn utan um þennan kajak,“ segir hann. „Hann á að vera í breskri kvikmynd, þar sem hetjan þarf að komast til byggða „from the middle of nowhere", eða þannig," bætir hann við og glott- ir. Listamaðurinn og arkitektinn Illugi Eysteinsson, Illur, er frjáls að eigin sögn. Frjáls til að vera í því sem honum sýnist, frjáls til að gera það sem honum sýnist og frjáls til að lifa Iífinu. „Eg verð farinn að Iifa af list minni fyrir fertugt," fullyrðir hann og segist byrja hvern dag á því að segja sjálfum sér að hann sé listamaður á heimsmæli- kvarða og verða svo að vinna samkvæmt því út daginn. „Ann- að hvort gerir maður þetta eða ekki, það er enginn millivegur." Hann hefur tekið þátt í níu sýningum á þremur árum, klætt Stöðlakot og sett upp sýning- una Tukt í Síðumúlafangelsi. „Þegar mér datt það í hug, þá vantaði mig auðvitað tónlist og bað systur mína, Kristínu, um að hóa saman einhverju fólki og spila. Hún gerði það og úr því varð hljómsveitin Otugt, sem er enn til“. Margar húfur Illur kom til íslands fyrir þrem árum, frá Los Angeles, þar sem hann stundaði nám í arkitektúr. „Maður kom heim með 36 boli og 5 stuttbuxur, það var sá klæðnaður sem maður þurfti þar,“ segir hann og hlær. „Og klútana og húfurnar rnínar," bætir hann við. Illur segist alltaf vera með húfu, hann á rauða, svarta og svarta og hvíta pijóna- húfu. „Eg var meira með klúta um höfuðið þegar ég var úti, það var hlýrra þar. En hérna, ég verð að vera með höfuðfat hérna, ann- ars frýs ég,“ segir hann ákveð- inn. Svo rífur hann af sér húf- una og sýnir hárið. Hann er með langa fléttu að aftan, en annars er hann með snoðaðan koll þar fyrir utan. „Þú sérð að bindi passar alls ekki við þessa hárgreiðslu, það bara gengur ekki.“ Og það verð- ur að viðurkennast, bindi og jakkaföt fara einhvern veginn ekki vel við svona greiðslu. Uppáhaldsflildn Uppáhaldsfötin, hver eru þau? „Það er bláa skyrtan mín, ég er búinn að eiga hana í 15 ár, fékk hana í Flónni á sínum tíma, var að vinna þar þá og hef notað hana síðan. Og þykkir Uppáhaldsfötin, bláa skyrtan og hvítir bómullarsokkar. mynd: hilmar bómullarsokkar. Ég elska að fara í nýja bómullarsokka. Það gefur svona „ummmmm, íííí, fílingu“,“ segir Illugi og það ískrar í hon- um af kátínu við tilhugsunina um nýja sokka. „Ég kaupi mér alltaf nýja sokka á opnunardegi sýninga minna,“ segir hann svo, „mér finnst það tilheyra“. Blátt og fjóluhlátt Uppáhaldslitur IIIs er blár. Allir bláir litir, nema kannski Qólu- blár. „Fjólublár er eiginlega eini Iiturinn sem ég fer eiginlega ekki í,“ segir hann hugsandi. „Annars hef ég verið að færa mig dálítið út í jarðarliti upp á síðkastið. Og svo er maður auð- vitað farinn að pæla meira í svona „professional“ fötum, föt- um sem henta minni starfsstétt. Annars er ég eiginlega stétt- Iaus...“ Illur á engin jakkaföt og engin föt sem hann skilgreinir sem spariföt. Nema bláu skyrtuna. Hann segist stundum vera að pæla í því að kaupa sér jakkaföt, en ekki látið verða af því enn. „Ef ég á að taka þetta saman í stuttu máli, þá er það helst að ég er bómullarmaður. Ég er alltaf í bómullarfötum, kannski er það arfur frá námsárunum, en ull stingur mig alveg hroða- lega, ég bara þoli hana ekki. Ég nota heldur aldrei venjulegar nærbuxur, heldur hálfsíðar stuttbuxur, þær eru mikið hlýrri,“ segir þessi fjölhæfi lista- maður að lokum. VS Mégane Berline Leikfélag Akureyrar é Hart bák Af þv{ ég skemmti mér svo vel. Arthúr Björgvin Bollason íDagsljósi. Ú'Ú'Ú' fostudagskvöld 14. nóv. kl. 20.30 UPPSELT laugard. 15. nóv. kl. 16.00 laus sæti laugardagskvöld 15. nóv. kl. 20.30 UPPSELT Sunnudaginn 16. nóv. kl. 20.30 laus sæti föstudagskvöld 21. nóv. kl. 20.30 UPPSELT laugard. 22. nóv. kl. 16.00 laus sæti laugardagskvöld 22. nóv. kl. 20.30 UPPSELT Næst síðasta sýningarhelgi föstudagskvöld 28. nóv. kl. 20.30 laus sæti laugard. 29. nóv. kl. 16.00 laus sæti Næst síðasta sýning laugardagskvöld 29. nóv. kl. 20.30 laus sæti Síðasta sýning Missið ekki af þessari bráðskemmtilegu sýningu. Á ferð með frú Daisy eftir Alfred Uhry í hlutverkunum: Daisy Werthan: Sigurveig Jónsdóttir Hoke Coleburn: Þráinn Karlsson Boolie Werthan: Aðalsteinn Bergdal Þýðing: Elísabet Snorradóttir Lýsing: Ingvar Björnsson Leikmynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir Leikstjórn: Ásdís Skúladóttir Frumsýning á Renniverkstæðinu annan í jólum, 26. des. kl. 20.30 2. sýning 27. des. kl. 20.30 3. sýning 28. des. kl. 20.30 4. sýning 30. des. Gjafakort í leikhúsið Jólagjöf sem gleður Vetð: Aimenn kort 1800 krónur Kort á Söngvaseið: Fullorðnir: 2.400 kr. Börn: 1.300 kr. Eldri borgarar: 1.500 kr. Söngvaseiður Aðalhlutverk: Þóra Einarsdóttir frumsýning t Samkomuhúsinu 6. mars ^ Markhúsar- guðspjall Einleikur Aðalsteins Bergdal Frumsýning á Renniverkstæðinu um páska Sími 462 1400 Munið Leikhúsgjuggið FLUGFÉIAG ÍSIANDS sími 570-3600 Utoguir er styrktaraðili Leikfélags Akureyrar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.