Dagur - 15.11.1997, Page 17
t^ur
LAUGARDAGUR 1 S.NÚVEMBER 19 97 - 33
LÍFIÐ í LANDINU
Ahuginn kviknaði
innan um tómatana
Þráttfyrír að íslend-
ingareigi ekki aðild að
Evrópusambandinu
hefur þeim íslending-
umjjölgað sem starfa
fyrír sambandið. Flest-
irþeirra eru verkefna-
ráðnirí ákveðinn tíma
en einn hefurþó veríð
ráðinn semfastur
starfsmaður í Brussel.
Það er líffræðingurínn
Dr. Indríði Benedikts-
son sem hefurstarfað
hjá Framkvæmda-
stjóm Evrópusam-
bandsinsírúmtár.
„Ég sá auglýsingu frá fram-
kvæmdastjórninni árið 1994 þar
sem þeir auglýstu eftir fólki til
starfa. í auglýsingunni var m.a.
beðið um sérhæfingu á sviði líf-
tækni og það féll mjög vel að því
sem ég hafði verið að vinna að í
doktorsritgerð minni. Ég sótti
um og komst inn á varamanna-
bekkinn hjá sambandinu. Það
þýðir að maður kemur til greina
í laus störf en engu er lofað um
vinnu. Vísindafulltrúar íslenska
sendiráðsins í Brussel voru mér
sfðan innan handar við að finna
stöðu. Það liðu rúm tvö ár frá
því að staðan var auglýst þar til
ég fékk vinnu. Þeir sem til
þekkja segja að þetta sé algeng-
ur biðtími."
íslendiugar fengu
að fylgja með
- Hvers vegna líffrædinám með
sérhæfingu i ■plöntulíftækni?
,/Etli áhuginn hafi ekki vakn-
að þegar ég ræktaði tómata og
agúrkur fyrir hungraða ferða-
langa í gróðrarstöðinni á Laug-
arvatni á unglingsárum mínum.
Faðir minn rak gróðrarstöð í 7
ár. Hann sá um fjármálin en ég
var ábyrgur fyrir ræktuninni
sjálfri og þar var ég með annan
fótinn til tvítugs."
- Hvernig stendur á þvt Is-
lendingur getur orðið fastur
starfsmaður Evrópusambandsins?
„Ég er spurður að þessu að með-
altali t\dsvar á dag,“ segir Indriði
og hlær. „Það má vera að þetta
hafi verið hálfgerður misskiln-
ingur,“ bætir hann við. „Auglýs-
ingin sem ég sá var birt í öllum
löndum Evrópska efnahags-
svæðisins. Islendingar fengu
svona að fljóta með. Eitthvað
um 2000 manns svöruðu þessari
auglýsingu en mér skilst að ein-
ungis hálfur annar tugur þeirra
hafi fengið vinnu fram að
þessu.“
Ábyrgux fyrir öllum verkefn-
uni Uftæknigeirans er snerta
plöntur
- Nií ertu kominn til Brussel. í
hverju er starf þitt fólgið?
„Ég starfa hjá stjórnardeild 12
sem sér um vísinda- og tækni-
mál. Ég er vísindafulltrúi á sviði
plöntulíftækni. Framkvæmda-
stjórnin veitir framlög til sam-
starfsverkefna milli Evrópuríkja
á ýmsum sviðum. A minni
könnu eru sem stendur öll verk-
efni innan líftæknigeirans sem
hafa með plöntur að gera. Til að
gefa hugmynd um stærðargráðu
þessara verkefna get ég sagt að
rannsóknastofurnar sem standa
að þeim eru samtals um 380
talsins. Þó er engin íslensk þar á
meðal enn sem komið er. Það er
af því að plöntulíftæknin hefur
kannski ekki fengið þau tækifæri
sem vert væri á Islandi. Fiskur-
inn er jú skiljanlega miklu mikil-
vægari fyrir efnahaginn. En
engu að síður er margt að gerast
í þessum fræðum sem áhugavert
væri fyrir Island eins og t. d. efl-
ing kuldaþolni í plöntum eða
stytting roskunartíma þeirra til
samræmis við hið stutta sumar á
íslandi."
Fólk illa upplýst um starf-
semi Evrópusambandsins
Þegar rætt er um málefni Evr-
ópusambandsins segist Indriði
oft verða undrandi á því hve
sumt fólk sem starfar í stjórn-
málum og blaðamennsku sé illa
upplýst: „Það er reyndar ótrúlegt
hve fólk veit oft Iítið um starf-
semi Evrópusambandsins. Sum-
ir þekkja jafnvel ekki muninn á
Evrópusambandinu (ESB), Frí-
verslunarsamtökum Evrópu
(EFTA), og Evrópska efnahags-
svæðinu (EES). Eg held að það
sé nauðsynlegt að uppfræða
meira en gert hefur verið.
Vandamálið er að þetta er nátt-
úrulega forsíðuefni svo lengi
sem það tengist ekki hneykslis-
málum. Sem innlegg í þessa
uppfræðslu get ég útskýrt að
starfsmenn Éramkvæmdastjórn-
arinnar, eins og ég, eru í raun-
inni í svipuðu starfi og starfs-
menn ráðuneyta. Við erum að
fylgja eftir ákvörðunum þingsins
og ráðherraráðsins en það síðar-
nefnda er skipað ráðherrum að-
ildarlandanna. Þannig erum við
eins konar miðlar milli hins
pólitíska valds og almennings
sem málin varða.“
Sloppinn við sloppinn
- Þú ert menntaður vísindamað-
ur en ert nú í skrifstofustarfi.
Saknarðu ekki rannsóknarstarfs-
ins?
„Meinar þú að vera sloppinn
við sloppinn," segir Indriði og
glottir. „Ollum störfum fylgja
kostir og gallar. Auðvitað er ým-
islegt sem ég sakna úr rann-
sóknageiranum en núverandi
starf tengist minni menntun
mikið þannig að ég er mjög sátt-
ur. Einn aðalkosturinn við starf-
ið hér er að maður hefur a.m.k.
á tilfinningunni að maður geti
komið einhverju til Ieiðar, haft
áhrif á ýmsa hluti og að vinnan
leiði til einhvers."
- Er eitthvað sem hefur komið
þér á óvart?
„Þetta hefur nú ekki verið svo
langur tími þannig að maður er
enn að læra. Það sem ef til vill
hefur komið mér helst á óvart er
hin ákveðna stéttaskipting á
vinnustaðnum. Allt skipulag er
mjög litað af slíku, þannig þurfa
t.d. einföldustu skrifleg sam-
skipti við fólk í öðrum stjórnar-
deildum að fara skriflega í gegn-
um yfirmenn beggja stjórnar-
deildanna. Við Islendingar
þekkjum varla svona skýra gogg-
unarröð úr okkar vinnuumhverfi
og sjálfur kann ég best við að
umgangast yfirmenn og undir-
menn á sama máta og held því
bara áfram.“
Er sjálfur genginn í ESB
- Nú ert þú eini fasti íslenski
starfsmaður Evrápusambandsins.
Það liggur því beint við að spyrja
þig hvort þú teljir að Islendingar
ættu að sækja um aðild að sam-
bandinu?
„Sjálfur er ég genginn í ESB
með starfi mínu hér þannig að
ég er hlynntur inngöngu ykkar
hinna líka. Stærsti þröskuldur-
inn eru jú sjávarútvegsmálin en
persónulega held ég að þar sem
þau eru svo gífurlega mikilvæg
fyrir okkur Islendinga þá hefð-
um við sterka stöðu til að ná
góðum samningum varðandi
þau. Að sjálfsögðu yrði aldrei
samþykkt á Islandi að afsala
fiskimiðunum, það vita allir, en
við vitum ekki hver yrði niður-
staðan á aðildarviðræðum nema
að byrja á þeim. Ég hugsa að ef
Island gerðist aðili myndu fáir
sjá eftir því til lengdar. Ahrifin
yrðu kannski ekki einu sinni
sýnileg fyrst um sinn en með
tímanum held ég þau yrðu já-
kvæð. Ef ekki væri jú alltaf hægt
að yfirgefa hópinn sem enginn
hefur ennþá gert nema Græn-
land, sem gerði það kannski
fyrst og fremst til að stríða Dön-
um. Ég er hins vegar mjög
áhugasamur um evrópumyntina
(Euró) og tel að það yrði af hinu
góða ef Islendingar gengju í Evr-
ópska myntbandalagið. Ég sé
ekki heldur hvaða sjálfstæði
felst í því að hafa gjaldmiðil sem
heitir eftir dönsku höfuðfati,"
bætir hann við kíminn.
Læt allavega grafa mig
heima
- En á Indriði von á þvt að koma
aftur til starfa íslandi.
„Ég útiloka ekkert í þeim efn-
um. Mér leið vel á Islandi og
það var ekki óánægja með neitt
þar sem gerði það að verkum að
ég hóf störf hér í Brussel. Von-
andi get ég orðið íslenskum
rannsóknaraðilum að liði í starfi
mínu hér og þannig haldið góð-
um tengslum til Islands. Þar að
auki á ég dóttur á íslandi þannig
að þau tengsl eru sterk. Ef ég
ynni á Islandi færi ég í frí til út-
landa en nú hef ég bara snúið
þessu við og get þá kannski not-
ið verunnar betur. Svo læt ég
a.m.k. örugglega grafa mig
heima,“ bætir hann við með tív-
ræðnum svip.
Andrés Pétursson