Dagur - 15.11.1997, Page 18
I
34 - LAUGARDAGUR 1S. NÓVEMBER 1997
POPPLÍFIÐ í LANDINU
i
t
i
I
i
i
i
i
i
t
i
uð þegar á heildina er
litið. Reykjavíkurnætur
í túlkun Botnleðju, Að-
eins eina nótt Með
Margréti Kristínu
Blöndal og Valgeiri
Sigurðssyni (hún m.a.
í Risaeðlunni, hann nú
í Lhooq) Orfeus og Efridís með Dr. Gunna og Krókódílamaður-
inn með Quarashi, eru allt dæmi um ólík en góð tilþrif á plöt-
unni. Öllum örugglega ekki til geðs, en engu að síður fín fjöl-
breyttni og leið til að glæða gamlar perlur Megasar nýju lífi. Svo
sannar þessi plata vel, að hann er ekki síður góður lagasmiður
en ljóðskáld.
Sá siður hefur tíðkast um þónokkuð Iangt skeið í útlöndum,
að setja saman svokallaðar „HeiðursplöturVTribute til að
votta hinum ýmsu hetjum fyrr og nú virðingu. Þar hefur tilhög-
unin oftast verið sú að tónlistarmenn af yngri kynslóðinni eru
fengnir til að túlka lög viðkomandi hetja með sínum hætti. Ein-
hverra hluta vegna hefur þetta alls ekki tíðkast hér á landi þó
ekki vanti efniviðinn, bæði hvað varðar góða lagasmiði af eldri
kynslóðinni og þá yngri til að túlka. Þegar kappar á borð við
Gunnar Þórðarson, Magnús Eiríksson o.fl. urðu fimmtugir
hefði þetta til að mynda verið tilhlíðilegt (og er reyndar enn
hvað þessa kappa varðar) en ekki varð af slíku þá. En loksins nú
í haust kom út plata með þessum formerkjum, þar sem sjálfur
meistari Megas er heiðraður. Og loksins þegar þetta er gert, þá
sannast það að fyrir löngu hefði mátt reyna. Megasarlögin, eins
og platan kallast, er nefnilega skrambi skemmtileg og velheppn-
Quarashi
Rapp og hipp hopp hefur nú loks hafið innreið sína í íslenskt
tónlistarlíf í sinni fjölbreytilegustu mynd.
Staðfesting þess eru sú, að nú eru komnar út tvær plötur þar
sem slíka tónlist er að finna, en þó með ólíkum formerkjum.
Quarashi með samnefndri sveit og Central magnetism með
Subteranean.
Úr vestri
Piltana þijá i Quarashi þarf vart að kynna, þeir hafa síðasta árið
notið vinsælda og stóru plötunnar þeirra verið beðið með nokk-
urri eftirvæntingu. Þeir sækja áhrif sin úr vestri, frá Los Angel-
es og eru því býsna beinskeyttir í tónum jafnt sem textum. Um-
fjöllunarefnin eru þó skiljanlega ekki þau sömu og hjá „ribb-
aldaröppurunum" þeldökku ....——
í Ameríku, slíkt myndi ein-
faldlega ekki passa. Þeir eru
þó samt nokkuð sniðugir og
rappsmíðarnar í kringum þá ^^H M’flÉk
allgóðar. Mr. Caufield sýnir rHH««^| JjV
t.d. að drengirnir eru þók- -r«v
menntalega sinnaðir. efnið 1
bráðgóða sögu um HHti^^^H
ungan skólapilt sem veit %JH
ekki hvað hann vill í Iífinu 9
(sagan var lesin í útvarpinu TM
fyrir ekki svo löngu af þýð- jHfJf^^^H TH
andanum sjálfum, Flosa .....M
Ólafssyni). Önnur
fin dæmi eru
Catch 22, rokkað-
ur moli þar sem
Heiðar úr Botn-
leðju fremur gítar-
gjörning, Dolphin
og Lone rangers,
þar sem Magga
Stína úr Risaeðl-
unni syngur fallega með. Veldur platan áreiðanlega ekki von-
brigðum hjá hinum Qölmörgu sem laðast hafa að Quarashi.
Hún er of vel unnin og vönduð til þess.
Frá vestri
Subterranean er einnig búin að vera á ferðinni í eitt ár, en þar
endar líka samanburðurinn milli þessara sveita, því þó báðar
teljist til rapps/hipp hopps er fátt líkt. Áhrif sín sækir Subterra-
nean nefnilega á hinn endann, frá austurstrandarrappinu, New
York t.a.m. þaðan sem Nas, Juble brothers og Fugees eru og
hafa verið hvað mest áberandi. Subterranean varð til í Svíþjóð,
en er nú gerð út héðan frá Islandi. Þau eru fjögur sem skipa
sveitina, bræðurnir Karl og Magnús, Ragna og hinn sænskætt-
aði Frew. Hefur sveitin verið að geta sér gott orð síðustu mán-
uði með tónleikahaldi í skólum og víðar og þannig komið sér
upp góðum hópi aðdáenda. Kom platan Central magnetism út
fyrir rúmri viku og inniheldur 12 ný og frumsamin Iög.
Garbage tekur upp
Það urðu fjölmörgum aðdáendum nokkur vonbrigði, þegar
bandaríska popprokk-sveitin Garbage með hina skoskættuðu
söngkonu Shirley Manson í fylkingarbrjósti, frestaði útgáfu
á sinni annarri plötu á þessu ári. Sveitin með Shirley og
trommarann Butch Vig innanborðs (sem ekki hvað síst var
frægur fyrir að vera upptökustjóri hjá Nirvana, Smashing
pumpkins o.fl.) hugðist um tíma gefa plötuna út í ár, en
vegna mikilla og erfiðra tónleikaferða, sem stóðu yfir í á
annað ár, var ákveðið að bíða. Síðustu mánuði hafa þau hins
vegar verið lokuð inni í hljóðveri og unnið plötuna að krafti.
Þykir líklegt að hún komi út í febrúar n.k. með tilheyrandi
tónleikahaldi í kjölfarið. Ekki hefur margt fregnast um inni-
hald plötunnar, nema hvað, að hún mun eitthvað verða
hrárri, en jafnframt „elektrónískari“, sem þýðir að dansáhrif
verða einhver.
lin af mun minni sölu á
J_ nýju plötu kryddpíanna, Spice
VVorld, koma sumum á óvart, aða-
lega þeim sjálfum, skv. fréttum fyrr
f vikunni. Ymsir fjármálaspekúlant-
ar höfðu nefnilega spáð því strax í
sumar, að æðinu í kringum stelp-
urnar myndi linna fljótlega, en það
tóku ekki margir mark á því.
|1\ /Tel B. og allar hinar geta þó
iVlhuggað sig við verðlaunin sem
'þíer hlutu á MTV hátfðinni fyrir
rúmri viku. Þar völdu áhorfendur
stöðvarinnar þær „hljómsveit árs-
ins“ sem kom nokkuð svo á óvart.
Svo er aldrei að vita nema frétta-
flutningurinn nú, um að nýja plat-
an hafi „aðeins“ selst í 200.000 ein-
tökum í fyrstu viku í stað nærri
milljón að vænst var að hálfu plötu-
kaupmanna, veki samúð og að sal-
an færist upp á við.
T---------------
igpgjggggg^
|I\/Teðal annarra sem fengu MTV
^IVJLverðlaun að þessu sinni voru
Prodigy, en þeir voru valdir besta
danssveitin, Hansons sem bestu ný-
liðarnir og fyrir besta lag, Janet
Jackson sem söngkona ársins (á
kostnað Bjarkar o.fl.) og Oasis sem
besta rokksveitin.
■pearl jam, Seattlerokkararnir
T margfrægu, hafa flestum að
óvörum boðað útkomu nýrrar smá-
skífu fyrir jólin og nýrrar plötu í
fébrúar. Var ekki búist við slíku á
næstunni, en útgáfa Pearl jam,
Epic hefur staðfest þessar fregnir.
Hafa Eddie Vedder og félagar lokið
við að taka upp 20 lög fyrir plöt-
Það eru margir kallaðir en öllu
færri útvaldir í útgáfuflóðinu
'fyrir jólin. Nú er fasti liður þessa
árstíma að komast á fullt og sem
fyrr er ekki á vísann að róa. I fyrra
kom það á óvart að Strumpajól varð
ein vinsælasta platan, seldist í vel
yfir tíu þúsund eintökum. Með
þann góða áraangur að leiðarljósi
eru því Strumpajól 2 á leiðinni frá
útgefandanum, Spori, og kemur
platan út í næstu viku.