Dagur - 31.12.1997, Side 3

Dagur - 31.12.1997, Side 3
Xfc^ur MIÐVIKVDAGUR 31.DESEMBER 1997 - 19 ANNÁLL ’97 íslendiitgar á Everest! „Við komionst ekki hærra“ hárust skila- boðin og voru orð að sönnu: ísleudingar voru komnir á hæsta fjallheims. Mikill fögnuður landsmanna sem voru í spreng af monti. 22. maí, Himalaya Þrír íslenskir fjallagarpar, þeir Björn Ólafsson, Einar K. Stefáns- son og Hallgrímur Magnússon unnu það afrek miðvikudaginn 21. maí að standa fyrstir Islend- inga á toppi Mount Everest í Lkimmnw Komnir heim. Þjódin samfagnaði innilega. Himalayafjöllum. Lokaáfanginn á toppinn tók 20 tíma og fóru þrír Sherpar auk eins Breta með ís- lendingunum upp síðasta spölinn. För þremenninganna vakti þjóðarathygli og stóðu margir á öndinni af spenningi, ætlunar- verkið hafði tekist þegar þeir til- kynntu: „Við komumst ekki hærra“. Mikil gleði braust út hjá aðstandendum og landsmönnum öllum. Everest-tindur er 8.849 metra hár og er súrefnið í loftirm aðeins um þriðjungur þess sem það er við sjávarmál. Kuldinn er ægilegur og miklir vindar, en þremenningarnir eru taldir hafa hagað för sinni af mikilli skynsemi í varasömu veðri. Sex manns höfðu farist í hlíðum Everest um vorið þegar Islending- arnir unnu afrek sitt. 25 milljónir Mikla athygli vakti þegar Sauð- árkróksbær og fjölmörg fyrirtæki á Sauðárkróki auk einstaklinga ákváðu að styrkja tugþrautar- hetjuna Jón Arnar Magnússon um upphæð sem samsvarar rúmum 25 milljónum króna á fjórum árum. Styrkurinn miðast við að Jón Arnar verði í topp- formi árið 2000 á Ólympíuleik- unum í Sydney en ekki er búið að afla allra peningana enn... Ekki pelafyllerí Þessi maður varð heimsfrægur á Islandi á einni nóttu með þvf að neita að yfirgefa félagsheimili á Vestfjörðum. Hvað heitir hann? Svar: Sigurður Ingi Pálsson veitingamaður sem vildi ekki leyfa pelafyllerí á þorrablóti kvenfélagsins á Patreksfirði heldur selja veitingar. Yfirvöld reyndu að fá hann burt úr hús- inu en það gekk treglega og fór málið fyrir dóm. Jón blæs út MikiII slagur varð milli Stöðvar 2 og Stöðvar 3 í janúar þegar fimm toppmenn yfirgáfu Stöð 2 og hófu störf á Stöð 3. Sú vist varð reyndar endaslepp, þar sem Stöð 2 keypti Stöð 3 skömmu síðar með það í hujga að leggja hana niður. Jón Olafsson var umtalaðasti fjölmiðlabarón Iandsins annað árið í röð. Þaulsetnir Hrafn og Illugi Jökulssynir sem risu einir gesta ekki úr sæti fyrir forseta íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni og forsetafrú, Guð- rúnu Katrínu Þorbergsdóttur, þegar Ieikrit föður þeirra, Dó- mínó, var frumsýnt í Borgarleik- húsinu. „Mér hefur alltaf þótt hvimleiður sá kóngasiður ís- lendinga að geta ekki setið kjurrir þótt forsetinn láti sjá sig,“ sagði Hrafn. Álverið á Gnmdartanga 2. apríl Bygging Norðuráls á Grundartanga hófst í apríl og var álver hann- að í fyrsta skipti á Islandi. Skiptar skoð- anir voru með framkvæmdina og voru ýmsir hópar gegn ál- verinu þótt fleiri væru því fylgj- andi. Álverið hefur góð áhrif á þjóðarafkomu Islendinga en aukin mengun og gróðurhúsaá- hrif varð mörgum þyrnir í auga á árinu. Samtökin Sól í Hvalfirði höfðu sig mjög í frammi og mót- mæltu. Nefna má auk byggignar álsversins á Grundartanga stækkun kerskálans í Straumsvík og Sultartangavirkjun. Guðmundur Bjarnason horfði upp á mikil stór- iðjuáform á fs- landi en alþjóð- legan þrýsting að minnka mengun. Umhverfísráðherra í Kyoto Undir lok ársins hélt umhverfis- ráðherra til Kyoto í Japan þar sem þjóðir heimsins vildu ná samkomulagi um minni mengun til að vernda andrúmsloftið. Grunnur að samkomulagi gerir ráð fyrir að Islendingar megi auka losun mengandi efna meira en aðrar þjóðir, en mun minna en áform eru uppi um hér á landi. Islensk stjórnvöld hafa ekki ákveðið hvort þau undirritið samkomulagið. Ömurleg afdrif Snæfums Hann ávann sér ást barnanna og fól þau i skauti sér en óknyttaormar vógu úr launsátri. Það varð hans bani. Grátklökkar mæður sársvekktra bama hringdu í blaðið og kröfðust skýringar á hvarfi snjókarls. Jak- ob bæjarstjóri sagði að bann hefði betur líkst sér! Akureyri 4. aprt'l „Snæfinnur svonefndur, snjó- karlinn pattaralegi á Ráðhús- torginu, Akureyri, er allur. Hann var rifinn í gærmorgun til grunna og hringdu grátklökkar mæður sársvekktra barna í Dag- Tímann í gær og vildu að skýr- inga yrði aflað. Með afar vandaðri rannsókn- arblaðamennsku kom í ljós að Jakob Björnsson bæjarstjóri vís- aði frá sér allri ábyrgð, en gaf þó í skyn að hann hefði eflaust beitt sér fyrir frekara langlífi snjó- karlsins ef um nákvæma eftir- mynd af honum hefði verið að ræða. Hann benti á Kaup- mannasamtökin á Akureyri og þar fengust þau svör að karlinn hefði verið farinn að láta veru- lega á sjá og orðinn lítið augna- yndi. Ekki var það bara vegna hláku heldur létu skemmdarvargar á Akureyri Snæfinn helst ekki í friði. Staðin var vakt um hann yfir páskana en ekki þótti til- hlýðilegt að vakta mannvirkið fram á vor. Stóð það heima að strax og vöktun lauk, sáu ein- hverjir ástæðu til að ráðast á Snæfinn og hvarf nef hans m.a. með voveiflegum hætti. „Haf þökk fyrir allt og allt,“ skrifaði blaðið 4. apríl sl. Kettir með krölii í dánarbú Tvær kröfur bárust í dánarbú aldraðrar konu frá Blönduósi sem skildi eftir sig 14 milljóna kr. peningaeign. Konan ánafnaði Kattavinafélagi Akureyrar allar eignirnar eða Kattavinafélagi Reykjavíkur í erfðaskrá en hvor- ugt félagið er til og því vandaðist málið. Systurdóttir konunnar var lögerfingi og gerði hún kröfu í búið ásamt köttunum. Kettirnir töpuðu um síðir málinu. bjóðargersemi Islendinga Björk Guð- mundsdóttir, var sæmd Tón- listarverðlaun- um Norður- landaráðs við hátíðlega at- höfn í Osló. Meðal annars kom fram í máli Björk sló i gegn dómnefndar- hvað eftir annað. manna að hún hlyti verðlaunin fyrir persónu- legan stíl. Björk hélt blaða- mannafund fyrir afhendinguna og sagðist hálfhrædd við öll verð- laun, henni fyndist iðulega sem verið væri að launa henni fyrir ævistarfið. Hún lýsti þó yfir stolti og þakklæti og hélt ótrauð áfram í plötuútgáfunni og alheims- frægð. Nýjasta plata hennar hef- ur fengið fínar móttökur, en það bjargaði söngkonunni ekki frá nýrnakasti undir lok ársins. Er sögð íhuga kaup á eyju við Skotland. Samkeppni í flugi Nýtt flugfélag á gömlum merg var stofnað við samruna Flugfé- lags Norðurlands og innanlands- deildar Flugleiða. Hlaut félagið nafnið Flugfélag Islands og lenti þegar í harðri samkeppni innan- lands við Islandsflug þegar þau tímamót urðu að hún gat hafist. Fargjöld lækkuðu fyrir tilverknað Islandsflugs en landsmenn laun- uðu treglega þá viðleitni. Is- landsflug kennir um „vildar- punktum" Flugleiða. Sam- keppnin er í járnum og ekki víst að lág fargjöld haldist lengi. Spaug er ekkert grín Höfðað var mál gegn Spaug- stofumönnum eftir þátt þeirra kvöldið fyrir páska. Grínar- arnir voru ákærðir fyrir guðlast og sagði biskupinn, Olaf- ur Skúlason, m.a. í kvörtunar- bréfi til RÚV að hann teldi Spaugstofuþáttinn „argasta guð- last“. Dagur-Tíminn spurði Þor- stein Pálsson dóms- og kirkju- málaráðherra hvort hann ætlaði að gera eitthvað í málinu eða hvaða skoðun hann hefði. „Sá ekki þáttinn og langar ekki í spólu með honurn," svaraði Þor- steinn. Spaugstofumenn voru ekki ákærðir þrátt fyrir eindreg- inn rannsóknarvilja Hallvarðs Einvarðssonar ríkissaksóknara sem heyrði af málinu í sundi.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.