Dagur - 31.12.1997, Qupperneq 6
22- MIÐVIKUDAGUR 31.DESEMBER 1997
FÓLKIÐ ’97
Haraldur Þórar/nsson.
Læknarnir wiínir crn
liígjafar
„Eg fékk slæmt hjartakast í nóv-
ember og leitaði strax til læknis.
Af Iýsingum annarra að dæma
grunaði mig að umkransæðastíflu
væri að ræða. Sú var raunin. Sig-
urður Halldórsson, læknir á
Kópaskeri, kom strax og farið var
með mig á Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri. Þar tók við mér Jón
Þór Sverrisson hjartasérfræðing-
ur og undir handarjaðri hans á
sjúkrahúsinu var ég næstu dag-
ana. Síðan tók við eftirmeðferð
og Jón Þór hefur sagt við mig að
nú megi ég ekki hreyfa mig eða
gera nokkurn hlut næsta mánuð.
Þessir tveir menn eru Iífgjafar
mínir og tvímælalaust menn árs-
ins,“ segir Haraldur Þórarinsson,
bifvélavirki í Kvistási í Keldu-
hverfi.
Steinunn Jóhannesdóttir.
Öðnun til uppörvunar
„Guðrún Katrín Þorbergsdóttir er
maður ársins fyrir glæsilega
frammistöðu í starfi sínu við hlið
forseta Islands á fyrsta ári hans í
embætti, og fyrir það hvernig hún
hefur mætt þvf stóra áfalli sem al-
varleg veikindi hennar eru. Hún
hefur ekki farið í felur heldur tek-
ist á við erfiðleikana af hugrekki
og með reisn sem ég held að geti
orðið öðrum til uppörvunar sem
Iíkt stendur á fyrir,“ segir Stein-
unn Jóhannesdóttir, leikkona og
rithöfundur.
Vanda Sigurgeirsdóttir.
Þrckvirki og viljastyrkur
„Mér finnst vinur minn Björn
Olafsson, Everestfari, vera maður
ársins," segir Vanda Sigurgeirs-
dóttir, þjálfari kvennalandsliðsins
í knattspyrnu. „Ég og maðurinn
minn vorum í sambandi við Björn
á Alnetinu meðan á ferðinni stóð
og fylgdumst einnig með ferða-
laginu í fjölmiðlum. Mér er Ijóst
að það er mikið afrek og þrekvirki
að ná á topp hæsta fjalls heims-
ins. Til þess þarf sterkan pers-
ónuleika og viljastyrk. Því eru
Everestfararnir menn ársins."
Kolbrún Haiidórsdóttir.
Mér kciniir Kristinn í hug
„Mér kemur fyrst í hug Kristinn
Björnsson, skíðamaður frá Olafs-
firði. Hann hefur staðið sig vel á
mótum erlendis og hefur verið
landi og þjóð til sóma. Ég hef
talsvert fylgst með skíðamönnum
í gegnum árin, því það er eins í
Olafsfirði og hér á Isafirði, allt
gengur út á skíði,“ segir Kolbrún
Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks í hinum nýja
meirihluta bæjarstjórnar ísafjarð-
arbæjar.
Helgi Hallvarðsson.
Davíð og Gæslumenn
„Mér kemur Davíð Oddsson í
hug fyrir að hafa gripið inn í at-
burðarás landsmála á ögurstund
svo sem í skattalækkuninni á dög-
unum og í gjaldskrármáli Pósts
og síma,“ segir Helgi Hallvarðs-
son, yfirmaður gæslufram-
kvæmda Landhelgisgæslunnar.
„Einnig nefni ég mína menn hér í
Gæslunni, sem sýndu frækna
frammistöðu í sjóslysunum á
fyrstu mánuðum ársins. Benóný
Ásgrímsson og áhöfnin á TF-LIF
sem bjargaði áhöfnum Víkartinds
og Dísarfells við erfiðar aðstæður.
Sömuleiðis get ég nefnt Einar
Valsson, skipherra á Ægi, sem
gerði tilraun til að bjarga Víkar-
tindi þegar allt var komið á loka-
punkt þar. Þá komst varðskipið
og áhöfn þess í mikla hættu með
þeim afleiðingum sem allir
þekkja.“
Hlhi og hetjur þyrliumar
„Mér finnst Hlín Agnarsdóttir
vera maður ársins vegna leikrits
hennar, Fyrirtíðarspenna, sem
sýnt var í Sjónvarpinu nú í
haust," segir Helga Haraldsdóttir,
forstöðumaður Ferðamálaráðs á
Akureyri. „En fleiri hafa gert það
gott á árinu. Ég get líka nefnt
flugmennina á þyrlu Gæslunnar
sem björguðu mönnum úr bráðri
lífshættu af Víkartindi og eftir að
Dísarfellið fórst úti á reginhafi.
X^ir
Maður
Helga Haraldsdóttir.
Sjálfsagt er það nú þyngra á met-
unum. Sömuleiðis get ég nefnt
Guðrúnu Katrínu Þorbergsdótt-
ur, forsetafrú, sem hefur tekist á
við veikindi sín af hetjuskap."
Þórunn Sigurðardóttir.
Afrek Auðuns
„Auðunn Kristinsson, sigmaður
Landhelgisgæslunnar, sem bjarg-
aði áhöfnum Víkartinds og Dísar-
fells um borð í TF LÍF, er maður
ársins. Afrek hans virkar ótrúlegt
á okkur landkrabbana, þó þessum
mönnum finnst þeir sjálfsagt að-
eins vera að vinna sín störf. Til að
láta sig síga niður í kaldan sjó við
erfiðar kringumstæður til að
bjarga mönnum úr bráðri Iífs-
hættu þarf mikið hugrekki. Ekk-
ert afrek jafnast á við að bjarga
mannslífi, jafnvel þó menn hafi
það að aðalstarfi," segir Þórunn
Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri
Reykjavíkur - menningarborgar
Evrópu árið 2000.
Björgvin G. Sigurðsson.
Flett ofau af misfellu
„Ég nefni Hrafn Jökulsson fyrir
að fletta ofan af því hvaða sér-
meðferð mál Frankíns Steiners
hafa hafa fengið hjá Iögreglunni.
I Mannlíf benti Hrafn á mikla
misfellu í okkar þjóðfélagi og
sýndi að víða er pottur brotinn í
réttarkerfinu. Ég tel einnig að
Hrafn hafi með greinum sínum
brotið ákveðið blað í íslenskri
blaðamennsku, og sýnt fram á
hvers megnug kraftmikil blaða-
mennska er. Hrafn er maður árs-
ins fyrir glæsileg vinnubrögð sín í
þessu máli þó eftirleikurinn hafi
reynst honum dýr,“ segir Björgvin
G. Sigurðsson, stjórnarmaður í
Grósku og ritstjóri Stúdenta-
blaðsins.
Ásdís Halla Bragadóttir.
Maður hugsjóna
„I mínum huga er formaður Sjálf-
stæðisflokksins, Davíð Oddsson,
forsætisráðherra, maður ársins.
Hann sýndi mikla festu á alþjóða-
vettv'angi þegar hann tók á móti
varaforseta Tævans og með því
undirstrikaði Davíð að hann er
maður hugsjóna. Yfirburðir hans
eru líka miklir á innanlandsvett-
vangi því undir hans forystu hef-
ur fylgi Sjálfstæðisflokksins verið
mikið og stöðugt á árinu. Auk
þess sýndi Davíð á sér nýja og
persónulega hlið á árinu með
bókinni Nokkrir góðir dagar án
Guðnýjar, sem hefur fengið mjög
góða dóma,“ segir Ásdís Halla
Bragadóttir, aðstoðarmaður
menntamálaráðherra og formað-
ur Sambands ungra sjálfstæðis-
manna.
Raddir kaífisíoíuiuiar
„Af því þú gafst mér tíma til að
hugsa mig um gerði ég skoðana-
könnun á kaffistofunni. Flestir
nefndu Kristin Björnsson, sem
vann mikilsháttar afrek í skíða-
brekkunum og er nú kominn í röð
fremstu skíðamanna heims. Dal-
víkingar þurfa því ekki að líta
lengra en út fyrir Múlann þegar
þeir velta upp þeirri spurningu
hver sé maður ársins. Sömuleiðis
nefndu margir þyrluflugmenn
Gæslunnar sem unnu mikil afrek
þegar þeir björguðu áhöfnum
skipa úr sjávarháska á fyrstu
mánuðum árs,“ segir Ari Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri
Snæfells hf. á Dalvík.
Atli Guðiaugsson.
Daginn þegar kappar knáir
„Um það bítast ekki fáir. / Ein-
hvern veginn man þó best / dag-
inn þegar kappar knáir / komust
upp á Everest,“ segir Atli Guð-
laugsson, skólastjóri Tónlistar-
skóla Akureyrar.
Magnús Stefánsson.
Pólfarinn úr Framsókn
„I mínum huga er vinur minn, fé-
lagi og samflokksmaður hér í
þinginu, Olafur Örn Haraldsson,
maður ársins, sem og félagar hans
þeir Haraldur Ólafsson og Ingþór
Bjarnason sem nú þramma yfir
Suðurpólinn. Það er mikill áhugi
fyrir þessu ferðalagi þeirra í þing-
liði Framsóknarflokksins og uppi
á vegg í þingflokksherberginu
erum við með stórt kort þar sem
við færum reglulega inn hvar
Ólafur sé staddur samkvæmt
þeim upplýsingum sem við fáum,“
segir Magnús Stefánsson, þing-
maður Framsóknarflokksins á
Vesturlandi.
Davíð landsfaðir
„Ótvírætt finnst mér Davíð Odds-
son vera maður ársins. Hann hef-
ur á þessu ári siglt inn í Iandsföð-